Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Page 25
25 DV. LAUGARDAGUR19. OKTÖBER1985. Hér hlusta nokkrir af leikmönn- um KA á góð réð fré Lazic. Ljubomir Lazic vinnur við ostagerð hjé Mjólkursamlaginu é Akur- eyri. Hér heldur hann á nokkrum tegundum sem hann vinnur við að framleiða en sjálfur segist káppinn ekki láta ost inn fyrir sínar varir. gengur frekar lítiö með íslenskuna og ég er oft ákaflega einmana. Konan er í Frakklandi og börnin eru í skóla þar.” „íslenska landsliðið er mjög gott" Við víkjum talinu um stund að ís- lenskum handknattleik. Hvemig finnst þér íslenskur handknattleikur? „Islenskur handknattleikur er mjög góður og þá sér í lagi íslenska lands- liðið. 1. deildin er að vísu nokkuð veik vegna þess að flestir bestu leik- mennimir leika erlendis. Ef Bogdan landsliðsþjálfari þyrfti að tefla fram landsliði sem eingöngu væri skipað leikmönnum sem leika hér heima myndi liðið ekki gera neitt mikið meira en sigra Belgíu og Lúxemborg. En þaö eru ungir leikmenn sem eru á leiðinni. En til þess að þeir nái góðum árangri í framtíðinni þurfa þeir að spila með sér betri leikmönnum og taka þátt í erfið- um mótum og þau eru ekkitil staðar. „ísland á heima í A-keppninni" Hann heldur áfram: „Eg tel að ís- lenska landsliðið eigi heima í A-keppn- inni. Þrátt fyrir það verður róður liðs- ins í næstu HM-keppni mjög erfiður. Liöið gæti hæglega falliö í B-keppnina. Árangur landsliösins í framtíðinni held ég að fari mikið eftir því hvort þeir leikmenn sem leika erlendis hafi áfram þann vilja sem þarf til að leika fyrir íslenska landsliðið.” Hvar er Is- land í röðinni í heiminum í dag? „Af hverju ekki í 6. sæti? Til þess að taka þátt í A-keppninni þarf aö vera í einu af sex efstu sætunum í heiminum. Eftir HM-keppnina i Sviss kemur i ljós að nokkru leyti hvar íslenska liðið stendur. Ég persónulega vona að Is- land verði áfram í A-keppninni. Það kemur sér betur fyrir mig í framtíðinni þegar ég fer að seg ja að ég hafi þjálfað á Islandi. Ég er metnaðargjarn þjálf- ari. Á æfingum er ég allt annar maður en eftir æfingar. Ég sem þjálfari hef engan rétt á því að láta tilfinningar ráða ferðinni. Ef svo væri næði ég aldrei árangri.” „Það vantar borgina" Hvernig er útlitið hjá þínum mönn- umíKA? „Þegar ég kom hingað setti ég auövitað stefnuna á Islandsmeistara- titilinn. Ég þekki mína vinnu. Til þess að ná árangri i handknattleik þarf: Leikmenn, þjálfara, íþróttahús og borg, fólk sem vill handboltanum ekk- ert nema gott. Við höfum leikmenn, þjálfara, íþróttahús en því miður enga borg. Ég fékk sex til sjö æfingar með liðið í júlí, ágúst og september en síðan hefur þeim fækkaö. Klukkustundunum hefur fækkað úr 10,5 í 6. Vegna þessara fjögurra klukkutíma sem tapast fer likamlegt ástand leikmanna minna niður á við. Handbolti er ein helsta íþróttin í Evrópu og ég hélt að það væri Akureyringum einhvers virði aö eiga gott lið í 1. deild. Félagið þarf á meiri aöstoð að halda hjá þeim sem ráða feröinni. Ég skil ekki að tímum okkar sé fækkað um tæpan helming á meðan að lögreglumenn eru að leika sér í knattspyrnu í Iþróttahöllinni og fólk úti í bæ að spila badminton. Nú, við töpuðum fyrir Val og Viking í fyrstu leikjunum. Leikir okkar um síð- ustu helgi gegn Fram og KR voru mjög mikilvægir. Ef við hefðum komiö aftur til Akureyrar með fjögur stig heföum við örugglega lent í 3. sæti. Það er 100% öruggt. Við reynum auðvitað að kom- ast í Evrópukeppni en það kostar pen- inga og fólk verður aö fara aö hugsa út í það. Ef ég þjálfa hér áfram næsta ár mun ég enn stefna á fyrsta sætið. öll erfiðasta vinnan er búin eftir fyrsta árið með nýjum þjálfara og ég held að KA eigi góöa möguleika á aö ná mjög langt. Ég tala nú ekki um ef tveir til þrír leikmenn kæmu nýir til liðsins. En eitt helsta vandamálið fyrir KA er að liöið getur ekki tekið þátt í neinu undirbúningsmóti fyrir Islandsmótiö. Það vantar æfingaleiki fyrir Islands- mótið og vonandi verður hægt að bæta úrþví.” „Vinnur við ostagerð en borðar ekki ost" Þú vinnur hjá Mjólkursamlaginu: „Já, ég byrja mjög snemma á morgn- ana að vinna. Eg vinn við að blanda osta og það er bara ágætt starf. Ég hef aldrei komið nálægt svona löguöu áður og borða alls ekki osta. Þetta er skemmtileg reynsla sem maður fær með því að vinna við þetta. Ég er með um tuttugu þúsund í laun á mánuði og það er á mörkunum að ég nái að lifa af þessu. Ég þarf að vísu ekki að borga fyrir húsaleigu, rafmagn og hita og bíl hef ég og bensínið fæ ég frítt. Þessi tuttugu þúsund fara í kaup á mat.” „Ég veit ekki hvar Sjallinn er" Nú er hér heimsfrægt veitingahús á Islandi, Sjallinn svokallaöi. Við spurð- um kappann hvort hann hefði oft komiö þangað. „Nei. Vinnustaður þjálfarans er ekki á diskótekum. Ég hef ekki hugmynd um hvar Sjallinn er. Ég hef aldrei komiö þangaö. Leikmenn hafa að vísu verið að reyna að fá mig með sér en ég hef ekki haft áhuga. Svo er líka það að ég vil ekki kynnast leikmönnum of mikiö. Það er eflaust gott að fara í Sjallann til aö ná sér í konu en ég geri mér ljóst að öll samtöl þar aö lútandi verða aö fara fram á íslensku. Hvernig líst þér á kvenfólkið hér á Akureyri? „Ég hef nú ekki verið að horfa mjög mikið á það en það sem ég hef séð er ósköp venjulegt kvenfólk. Innan um eru auðvitað mjög fallegar konur sem gaman væri að geta talað við. Þá væri ísinn brotinn.” Ert þú alls kostar ánægöur með veru þína á Islandi til þessa? „Já, það sem mér viðkemur en það er nú ekki stór hamingja. Ég er aöeins óánægður með handboltann. KA-liðið hefur orðið útundan hjá þeim sem stjórna. Reynsla mín þessa mánuði, sem ég hef verið hér, er alls ekki í sam- ræmi við það sem ég hafði hugsað mér áður en ég kom hingað.” Telur þú að „standard” þinn sem þjálfara hafi falliö eftir aö þú komst hingaðtillands? „Já, ég tel að svo sé. Ég kom hingað handboltans vegna en ekki vegna peninganna. Vandamálið liggur ekki í peningum.” Telur þú að þú verðir þjálfari KA næsta vetur? „Já, ég á von á því. Utkoman úr mínu starfi hjá liðinu ætti aö koma i ljós á öðru eða þriðja ári.” Eitthvað sérstakt að lokum? „Mig langar bara til að lýsa yfir ánægju minni með það aö hafa getað hlegiö og skemmt mér á meðan á þessu viðtali stóð. Ég hef ekki gert mikið að því að hlæja síðan ég kom hingað,” sagði Ljubomir Lazic. Þar með voru þeir félagar kvaddir og sérstakar þakkir í lokin til Ölafs R. Olafssonar fyrir snörunina. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 101., 104. og 106. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985á eigninni Digranesvegi 56 — hluta —, tal. eign Siguröar Eiríkssonar og Ernu Hróarsdóttur, ferfram að kröfu Bæjarsjóös Kópavogs, Veödeildar Landsbanka islands og Friðjóns Arnar Friöjónssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 22. október 1985 kl. 15.10. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð annað og sföasta á Flúðaseli 32, þingl. eign Róberts J. Jack, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. október 1985 kl. 13.30. Borgarfógetaembættiö í Reykjavik. Nauðungaruppboð annaö og síðasta á hluta i Strandaseli 4, þingl. eign Sigurðar H. Tryggvasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Ásgeirs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri miövikudaginn 23. október 1985 kl. 16.15. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 10. og 13. tbl. þess 1985 á Kögurseli 34, þingl. eign Hreins Halldórssonar, fer fram eftir kröfu Hákonar H. Kristjónssonar hdl. og Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. október 1985 kl. 14.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og siöasta á hluta í Lynghaga 10, þingl. eign Jóhanns Sigurðs- sonar og önnu Jónu Jónsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Róberts Á. Hreiðarssonar hdl. og Þorvarðs Sæmundssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. október 1985 kl. 10.30. / Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og siðasta á hluta í Brávallagötu 46, þingl. eign Flosa Ásmunds- sonar, fer fram eftir kröfu Sigríöar Thorlacius hdl. á eigninni sjálfri mið- vikudaginn 23. október 1985 kl. 11.15. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á hiuta í öldugranda 3, tal. eign Árna S. Gunnlaugs- sonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Árna Guðjóns- sonar hrl. og Guðna Á. Haraldssonar hdl. á eigninni sjálfri miðviku- daginn 23. október 1985 kl. 10.45. Borgarfógetaembættiö i Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og siöasta á hluta í Starrahólum 6, þingl. eign Eggerts Eliassonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka islands og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. október 1985 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta i Tunguseli 8, þingl. eign Steingríms S. Björnssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik og Landsbanka islands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. október 1985 kl. 16.30. Borgarfógetaembættiö i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 48., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta i Stifluseli 3, þingl. eign Elnu Þórarinsdóttur, fer fram eftir kröfu Veð- deildar Landsbankans og Gjaldheimtunnar í Reykjavlk á eigninni sjálfri miövikudaginn 23. október 1985 kl. 15.15. Borgarfógetaembættið I Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta I Bugðulæk 13, þingl. eign Markúsar Valgeirs Úlfssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans og Sigriðar Thorlacius hdl. á eigninni sjálfri þriöjudaginn 22. október 1985 kl. 16.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. -SK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.