Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Síða 2
2
DV. MÁNUDAGUR18. NOVEMBER1985.
Haraldur Ólafsson, eini þingmaður Framsóknar á suðvesf urhorninu:
„Útiloka ekki að sýna
verði sérstöðu okkar”
„Ég útiloka alls ekki aö sýna veröi
sérstööu okkar framsóknarmanna í
fólksflestu kjördæmunum tveim. Þó
er dálítið hætt viö aö á þaö verði litiö
sem klofning ef viö bjóðum fram sér-
merkta lista,” segir Haraldur Ölafs-
son, eini framsóknarþingmaöurinn á
suðvesturhorninu, um hugsanlega F-
lista.
„Viö höfum gert okkur ljósan
skoðanamun á milli flokksmanna í
tveim fjölmennustu kjördæmunum
og hinum. Á fulltrúaráösfundi í
Reykjavík í vor var engu aö síður
lögö áhersla á þaö aö flokkurinn
kæmi fram sameinaöur. Viö Magnús
Olafsson og Bjarni Einarsson töl-
uðum fyrir því og þaö var samþykkt
ágreiningslaust.”
Þegar DV ræddi viö Harald, en
hann er nú í New York á þingi Sam-
einuöu þjóðanna, var þungt í honum
yfir ummælum formanns Fram-
sóknarflokksins í nýbirtu tímarits-
viðtali. Þar nefndi Steingrímur Her-
mannsson ákveðna menn sem æski-
lega frambjóöendur í Reykjavík,
Guömund G. Þórarinsson, Finn
Ingólfsson og Þórö Yngva
Guðmundsson, sem hann telur þó full
hægrisinnaðan. Raunar kemur
Þóröur Yngvi úr Alþýöubandalag-
inu.
I viðtalinu nefndi Steingrimur
hvorki þingmanninn Harald Olafs-
son né varaþingmanninn Björn Lín-
dal. „Eg heyri það aö menn eru
farnir aö tala um þessi framboös-
mál. Þaö hafa falliö afar óheppilegar
yfirlýsingar og ekki líklegar til þess
aö efla samstööu innan flokksins í
Reykjavík,” sagöi Haraldur.
Áttu þá viö ummæli Steingríms?
„Þiö skiljiö líklega hvaö ég á viö.”
Þú hefur væntanlega hug á að gefa
kost á þér til áframhaldandi þing-
mennsku? „Eg ræö auövitaö ekki
þeirri framtíö en ég hef engar áætl-
anir um aö draga mig í hlé,” sagöi
Haraldur Ölafsson.
HERB.
Stóra Gunna og litli Jón i trúðsliki
nutu athygli gesta á nýja Laugaveg-
inum. Sannkölluð karnivalstemmn-
ing rikti og brúnin lyftist á fólki.
Menn gleymdu áhyggjum af undan-
gengnu óveðri.
Laugavegurinn bókstaflega iðaði af mannfólki. Varla var hægt að þverfóta fyrir fólki.
Glæsibifreið borgarstjóra rennur fyrst bifreiða eftir nýja Laugaveginum.
DV-mynd KAE.
Stemmning við opnun Laugavegaríns
Þaö var líf og f jör á Laugaveginum
í fyrradag. Þá var neösti hluti hans
opnaöur við hátíölega athöfn. Margt
gladdi augu og eyru hinna f jölmörgu
sem heimsóttu Laugaveginn í tilefni
opnunarinnar. Skemmtilegar furöu-
verur gengu upp og niöur Laugaveg-
inn, félagar úr hljómsveitinni Kukl
spiluöu og sungu hástöfum og aðrir
listamenn skemmtu. Mikil stemmn-
ing skapaðist. Verslanir á Lauga-
veginum voru almennt opnar af
þessu tilefni.
Síöastliöin ár hafa skipulagsyfir-
völd, stjórnmálamenn og faglegir
ráögjafar meö fjölbreytta sérþekk-
ingu á sviöi borgarhönnunar leitaö
leiða til að bæta umhverfi og umferö
gamla miöbæjarins. Fegrun Lauga-
vegar er einn áfangi í þeirri viðleitni
borgaryfirvalda og ráögjafa þeirra
til aö auka metnaö í gerö umhverfis
og þannig auka á umhverfislega
menningu í höfuöborginni.
Framkvæmdin á göturými Lauga-
vegar, milli Klapparstígs og Skóla-
vöröustígs, tók rúmlega fjóra
mánuöi. Aö undirbúningi vann
Laugavegsnefnd, sem í sátu
fulltrúar skipulagsnefndar,
umhverfismálaráös, umferðar-
nefndar, SVR, kaupmanna við
Laugaveg ásamt starfsmönnum
Borgarskipulags.
Meginmarkmið þessara breytinga
er aö auövelda gangandi vegfarend-
um umferð um þennan hluta göt-
unnar á kostnaö þess rýmis, sem ak-
andi umferö haföi til athafna.
Áframhald aögerða byggist á
reynslu af þessari framkvæmd og
vilja og metnaöi yfirvalda og borgar-
búa.
KB
Plötur f estar á þök
Björgunarsveitin Ingólfur i Reykjavik var í önnum við að aðstoða fólk i
óveðrinu sem gekk yfir i fyrrinótt. Fóru björgunarsveitarmenn um og festu
þakplötur, ásamt fleiru sem til féll. Þeir voru að störfum i Safamýrinni
þegar þessi mynd var tekin. Þar höfðu plötur losnað á þaki en björgunar-
sveitarmenn komu i tæka tið til að negla þær niður.
DV-mynd S.
Akureyri:
Þakplöt-
ur fuku
af
húsum
Frá Jóni G. Haukssyni, blaða-
manni DV á Akureyri:
Hávaðarok geröi á Akureyri í
gærmorgun. Mest var rokiö í há-
deginu. Vindur fór þá upp í 12 vind-
stig. Þakplötur fuku af nokkrum
húsum en skemmdir uröu litlar.
Þaö var um sexleytiö í gær-
morgun sem verulega fór aö
hvessa. Fyrsta útkall lögreglunnar
kom nokkru síöar, eöa umtíuleytiö,
þegar þakplötur fuku af hinu
þekkta húsi, Sigurhæðum.
Næstu útköll komu um tólfleytiö.
Þakplötur fuku af húsi í Hafnar-
stræti, Lundargötu og tveim í
Brekkunni. I Lundargötu skemmd-
ist bíll þegar þakplata fauk á hann.
Bátur tókst á loft
Grandagardur fór ekki varhluta af óveörinu sem gekk gfir
um helgina. Þar hafdi þessi bátur verið settur upp fgrir
veturinn. Hann hélst þó ekki kgrr í hrgðjunum en tókst á
loft og fauk nokkurn spöl. Urðu töluverðar skemmdir á hon-
um eins og sést á meðfglgjandi mgnd. DV-mgnd S.