Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Page 7
DV. MÁNUDAGUR18. NOVEMBER1985.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Neytendasamtökin:
KREFJAST BÆTTRA
NEYTENDAUPPLÝSINGA
Komið hefur fram í fréttum að á
markaði hér hafi verið hjólbarðar
sem búið sé að má af nafn framleið-
anda og/eða aðrar upplýsingar.
Neytendasamtökin benda neytend-
um á að vera á varðbergi gagnvart
vörum sem þannig eru boðnar til
sölu.
Nafn framleiðanda vöru er í öllum
tilfellum mikilsverðar upplýsingar
fyrir neytendur og í sumum tilfellum
ákveðin trygging fyrir gæðum. Þetta
á ekki síst við um vörur sem varða
öryggi neytenda, eins og ástand og
gæði hjólbarða.
Það verður að teljast furðuleg
framkoma seljenda gagnvart kaup-
anda að má burt, eða selja vöru sem
máðar hafa verið af, upplýsingar er
koma eiga væntanlegum kaupanda
eða notanda að gagni. Slíkt samrým-
ist varla góðum viðskiptaháttum.
Það er kaupandi vörunnar er greiðir
andvirði hennar og notar hana í
flestum tilvikum og tekur jafnvel
áhættuna af notkun hennar.
Neytendasamtökin ítreka enn
kröfu sína um bættar neytendaupp-
lýsingar og mótmæla því harðlega
að upplýsingum, sem fyrir hendi eru,
sé leynt eða þær vísvitandi máðar
burt.
(Úr fréttatilkynningu
Neytendasamtakanna.)
Afsláttur
f rá hverjju?
Þeir auglýMndur um áhuga hafa á afl auglýaa i bók-
unum vinaamlegast hafi aamband við auglýsingadaild
KOMA ÚT27. NÓV. OG 11. DES. NK.
VERSLANIR!
HINAR SÍVINSÆLU OG MYNDARLEGU
JÓLAGJAFAHANDBÆKUR
Verðlagsstofnun hefur sent frá sér
fréttatilkynningu þar sem villandi
upplýsingar í auglýsingum eru til
umfjöllunar.
Allar verðupplýsingar þurfa að
vera greinilegar og verður að kynna
þær á þann hátt að enginn misskiln-
ingur geti átt sér stað, segir í frétta-
tilkynningunni.
Tilefnið er að Verðlagsstofnun
barst athugasemd frá neytanda út
af afslætti sem verslun auglýsti.
Verslunin tilkynnti með stórum
stöfum á límmiða í skærum lit að
ákveðin söluvara væri seld með 10%
afslætti. Neytandinn taldi sig ekki
geta áttað sig á því frá hvaða upphæð
prósenturnar kæmu til frádráttar og
var það rétt ályktað hjá viðkomandi
neytanda.
Umbúðir
Umbúðir um vöru eru af ólíkum
stærðum og mismikið vörumagn í
umbúðunum. Því er það sjálfsögð
krafa neytenda að magn sé skráð á
umbúðir og lögboðið er það hjá fram-
leiðendum matvæla.
Til að auðvelda neytendum val láta
flestar verslanir í té upplýsingar um
kíló- eða lítraverð á umbúðum nokk-
urra vöruflokka, enda skiptir það
máli við verðsamanburð.
Nauðsynlegt er að þessar upplýs-
ingar séu réttar og auðskiljanlegar.
-ÞG
ÍStAumúla 33, Raykjavik, aAa i sima 82260
mllli kl. 9 og 17.30 vlrka daga fyrir 19. n6v.
vandaðaóar vörur
Hleðslutæki
6,12 og 24 volta.
Margar gerðir.
BENSÍNSTÖÐVAR
SKELJUNGS
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
Einhell
vandaðar vörur
Loftpressur
FYRIR LIGGJANDI
ALLTAF SAMA LÁGA
VERÐIÐ
Skeljungsbúðin
SiÖumúla33
símar81722 og 38125
Ertþú
undir ánrífum
LYFJA?
Lyf sem hafa áhrif á athyglisgáfu
og viöbragösflýti eru merkt með
RAUÐUM VIÐVÖRUNAR
ÞRÍHYRNINGI
GETRAUNALEIKUR
Bókaverslun Snæbjarnar bíður öllum sem
líta inn að Hafnarstræti 4 þátttöku í
skemmtilegum getraunaleik. Þú svarar
einfaldri spurningu og vikulega út
nóvember verður dregin út bókaúttekt að
verðmæti 7.500,- krónum.
BÓKAVERSLUN
SNÆBJARNAR
Hafnarstræti 4 s:14281