Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Síða 43
DV. MÁNUDAGUR18. NOVEMBER1985.
43
ndinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn
Skaftafellssýslu. Hér í Reykjavík
virðast allt að 10% unglinga hafa
tekið upp þessa sérstöku gerð af flá-
mæli.
Aðaleinkenni gamla flámælisins
voru að hljóðin i og u nálguðust e og
ö. Alþekkt dæmi um þetta eru að
skyr varð sker og fluga að flögu.
Flámæltir menn notuðu reyndar
millihljóð í þessum tilvikum. Þeir
sem ekki voru flámæltir heyrðu
hljóðin ef til vill skýrar en hinir.
í nýja flámælinu verður ö að u.
Dæmi um það er að sögur verða sug-
ur og er þá væntanlega eitthvert
millihljóð notað. Þessi hljóðbreyting
er með öðrum orðum öfug við gamla
flámælið. Á sama hátt kemur fyrir
að e verði i en það er ekki eins
áberandi.
Með því að tala um gamalt og nýtt
flámæli er gefíð í skyn að eitthvað
áður óþekkt hafi gerst. Það er þó
spurning hversu nýtt nýja flámælið
er. Ef til vill er þetta sami grautur-
inn, aðeins mismunandi kryddaður."
Það sem koma skal
Af hverju er talið að breytingar
eins og i átt að flámæli verði?
„Það er alkunnugt meðal málfræð-
inga að sérhljóðakerfið í íslenskunni
er á reiki. Um það eru til gömul
dæmi og ný. Sumir segja að flámæli
sé ekki ólíkleg breyting á hljóðkerf-
inu miðað við fyrri breytingar. Flá-
mælið sé með öðrum orðum líkleg-
asta breytingin, liggi það á annað
borð fyrir málinu að breytast. Einnig
hefur því verið haldið fram að flá-
mæliskerfið sé stöðugra en hitt. Það
er eitthvað í málkerfinu sem veldur
þessum hræringum. Við getum sagt
að það sé ekki ánægt með sjálft sig.
Hins vegar treystir enginn sér til að
skýra svona breytingar, T.d. veit
enginn af hverju y rann saman við
i fyrir mörgum öldum.
Það er möguleiki að flámælið sé
að brjótast fram á einu sviði þegar
það hefur verið barið niður á öðru.“
Erfiður slagur
Hefur það þá alla tíð verið málfars-
leg kúgun að berjast gegn flámæl-
inu?
„Ja, ef flámælið er þáttur í eðlilegri
þróun þá er spurning hvort það er
til einhvers að berjast gegn því.
Kemur það ekki alltaf upp aftur í
nýrri mynd? Er þá ekki eins gott að
kenna börnunum eitthvað annað?
Þetta er samviskuspurning fyrir yfir-
völd menntamála. Það getur vel
farið svo að ef þetta nýja afbrigði af
flámæli verður barið niður þá komi
annað afbrigði þess fram í staðinn.
Sjálfsagt líður einhver tími þar til
nýtt afbrigði verður ráðandi. Breyt-
ingar á máli gerast ekki með einni
kynslóð. Hitt hafa menn reynt að
þegar tiltekinn framburður er orðinn
Eru
reykvískir
unglingar
að verða
flámæltir?
Þannig lítur flámæli Reykvík-
inga út begar búið er að festa það
á blað. Áberandi er að margt gam-
alt fólk er enn flámælt. Það sést á
línunum sem rísa hæst til hægri.
Meiri athygli vekur þó að línurnar
rísa einnig til vinstri þar sem flá-
mæli unglinga er skráð. Greinilegt
er að umtalsverður fjöldi reyk-
vískra unglinga hefur tekið upp
sérstakt afbrigði af flámæli. í máli
þeirra verður saga að sugu og
jafnvel setur að situr. (Línuritið
er tekið úr tímaritinu Íslenskt mál,
6. árg. 1984).
Guðvarður Már Gunnlaugsson: -
Flámæli reykvískra unglinga er
ein merkilegasta niðurstaða
rannsóknarinnar á framburði í
landinu.
fólki eiginlegur virðist það vera erfitt
að venja það af því aftur. Þágufalls-
sýki er nú leiðrétt hjá skólabörnum
og þau læra réttu beyginguna. Samt
sem áður er ranga beygingin þeim
eiginlegri. Eins er þegar fólk venur
sig á einhvern framburð, t.d. vest-
firskan einhljóðaframburð; þá vill
hann gleymast þegar mikið gengur á.
Svipað þessu gerist þegar málrann-
sóknarmaður kemur í heimsókn. Þá
reynir fólk að fela þann framburð
sem það telur að sé ófinn. Þetta
verður alltaf að hafa í huga þegar
málfar er rannsakað. Líka verður að
varast að byggja rannsókn á lestri.
Börnum er kennt að lesa hratt. Þau
lesa því oft í belg og biðu og eftir
því óskýrt. Fullorðið fólk les aftur á
móti skýrar vegna æfingarinnar. Það
er áberandi að margar konur lesa
betur en karlar. Sjálfsagt er það
vegna æfingarinnar við að lesa fyrir
bömin og bárnabörnin."
Einkunn
200
A A = flámæli á i — fylgnitala v. aldur 0.3146 Flám. á i: 102.6
A A = fiámæli á u — — 0.2328 — u: 102.8
♦ * = flámæli á e — — 0.0755 — e: 106.2
* = fiámæli á ö — — 0.1448 — ö: 107.5
GK
Velkomin á nýja Laugaveginn
Teg. 765, litur svartur. Verð
kr. 3.295.
Teg. 608, litur svartur. Verð
kr. 3.288.
Puffins leöurstigvél, teg
532. iitir svartur. grár. Verð Teg. 9220 - 9266. ASS st.g
1RR vél úr mjuku skinni, litir,
r' grár, svartur. Verð kr.
4.460.
svartur °k'askór- '°9- 765. Iitil
svartur. Verð kr. 1.649. Stærðir bfUnn kr. 2.898
28 — 34.
PÓST-
SENDONI
Vantar þig skó ?
Þú fœrö þó hjá
Laugavegi 11 S: 21675