Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Side 48
Forsætisráðherra
mun fleiri ferðadaga
Þaö sem a£ er þessu ári er fjöldi
ferðadaga Steingríms Herrnannsson-
ar forsætisráöherra, vegna utan-
landsferöa, oröinn 48. Ferðadagar
Páls Péturssoiiar, formanns Noröur-
iandaráös, eru þins vegar 30 vegna
formannsstarfsins. Páll var reyndar
ókominn af fundi ráösins á Álands-
eyjum þannig að feröadagar eru
orönir37.
Steingrímur lýsti því nýlega yfir í
blaðaviðtali aö sér blöskraöi tíðar
ferðir þingmanna vegna Norður-
landaráðs. Páll Pétursson gagnrýndi
þessi ummæli á þingflokksfundi
Framsóknarflokksins fyrir skömmu.
Nú hafa þeir Páll og Steingrímur afl-
að sér upplýsinga um utanlandsferö-
ir hvor annars.
Á þessu ári hefur forsætisráðherra
farið í f jórar utanlandsferðir og dval-
iö að jafnaði erlendis í 12 daga. Fyrst
fór hann til Italíu í boöi B. Craxi for-
sætisráöherra. Næst í boöi ríkis-
stjóra Minnesota á Islandskynningu
og í sömu ferð til Mexíkó á fund um
framtíðarspár og kannanir. I þriðju
ferðinni fór hann til Israel og hélt
fyrirlestur um verðbólguþjóðfélagið
og í sömu ferð til Madrid á ársfund
frjálslyndra flokka. Síöasta ferðin
var farin til New York í tilefni 40 ára
afmælis Sameinuðu þjóðanna.
Frá ársbyrjun til 7. nóvember
hafði Páll Pétursson farið í utan-
landsferðir vegna starfs síns í Norð-
urlandaráði. Á þessum tíma var far-
ið í 43 ferðir á vegum Norðurlanda-
ráös. Af þeim voru 40 greiddar af Al-
þingi og 3 af sameiginlegum sjóðum
Norðurlandaráðs. Ferðadagar voru
samanlagt 196 og voru dagpening-
arnir 184 þeirra greiddir af Alþingi.
Á þessu tímabili fóru utan 8 þing-
menn og 1. starfsmaður.
Fram til ársloka er áætlaö að farið
veröi í 9 ferðir aö auki og feröadagar
veröi 43. Þegar hefur verið farið í
nokkrar þessara ferða.
APH
Selfoss:
Plastverk-
smiðja brann
til grunna
Plastverksmiðjan Mörk við Skeiöa-
vegamót brann til grunna á sunnu-
dagsmorgun. Fuðraði byggingin upp
„eins og hendi væri veifað”, að sögn
sjónarvotta. Var byggingin fallin
þegar slökkviliðið á Selfossi kom á
staðinn og fékk það ekki viö neitt ráðiö.
Það var um hálffimm á sunnudags-
morgun sem tilkynning barst á Selfoss
um að eldur væri kviknaður í verk-
smiöjunni. Höfðu menn fariö þangaö
um þrjúleytiö í fyrnnótt en uröu þá
einskis varir. Slökkviliðið á Selfossi fór
á staöinn. Þá var eldurinn orðinn
magnaður og hiti gífurlegur. Bygging-
in, járnvarið timburhús meö plast-
einangrun, brann til kaldra kola á ör-
skömmumtíma.
Til marks um hitann, sem myndaöist
við brunann, má geta þess að álfelgur
af sportbíl voru geymdar í verksmiðju-
byggingunni. Þær voru vart sjáanleg-
ar eftir brunann.
Eigandi verksmiðjunnar, Ingimar
Baldvinsson, haföi húsnæðiö á leigu en
það var í eigu Gaflsins í Hafnarfirði.
Var hvorutveggja tryggt, þ.e. hús-
næðið og tækin til atvinnurekstrarins.
Enn er ekki vitað hversu mikið tjón
varð í brunanum. Eldsupptök eru
ókunn. -JSS
Suðureyri:
Tvær trill-
ur sukku
Tvær trillur sukku í höfninni á Suður-
eyri viö Súgandaf jörð aðfaranótt föstu-
dagsins síðastliöins. Þær náöust báðar
upp daginn eftir, tiltöiulega lítið
skemmdar.
Trillurnar, Sigurörn ÍS og Berti G.
IS, höfðu veriö bundnar í höfninni. Á
aðfallinu fylltust þær af sjó og sukku.
Þeim var báðum náð upp daginn eftir
meðaðstoðkrana og stærri báta. -JSS
VinnuslysíHéðni
Vinnuslys varö í Vélsmiðjunni Héðni
í gær. Maður hlaut skurð á höfði þegar
hann var að vinna við að pressa legur.
Meiðsli mannsins urðu ekki alvarleg.
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
25050
SENDIBÍLASTOÐIN Hf
LOKI
Ætli þeir Denni og Poul
séu að venja sig af þúfna-
göngulaginu?
Jú, það var örugglega mætt á réttan stað í morgun, gamla starfsfólkið i Bæjarútgerð Reykjavikur.
Nú heitir vinnustaðurinn reyndar ekki Bæjarútgerð Reykjavíkur heldur Grandi hf. Hér sjáum við nokkra
starfsmenn taka niður gamla nafnið og setja upp ný skilti með nýju nafni. hhei/DV mynd Sveinn.
Rannsóknir á ónæmnstæringu:
Brýnt að f inna hús
Vörumarkaöshúsið í Ármúla er nú
til sölu. Heilbrigðisráðuneytið hefur
áhuga á þessu húsi undir ýmsa starf-
semi, þar á meðal rannsóknir á
ónæmistæringu. DV hafði samband
við Magnús Pétursson hagsýslu-
stjóra vegna þessa máls og sagði
hann að verið væri að meta húsið af
hálfu ríkisins. Hagstæðara væri að
kaupa allt húsið en aðeins hluta af
því. Ymsar stofnanir á vegum ríkis-
ins væru bráðlega á götunni og sum-
ar dreifðar um alla Reykjavík. Kom-
iö hefði til tals aö Hollustuvernd rík-
isins gæti rúmast þarna líka og fleiri
stofnanir á vegum ríkisins. „Náms-
gagnastofnun og Leiklistaskólinn eru
einnig bráðlega á götunni og þeirra
húsnæðisvandamál þarf einnig að
leysa,” sagöi Magnús.
200—300 fermetrar eru ætlaðir
undir ónæmistæringarrannsóknir.
Magnús sagði að ýmis önnur hús
væru í athugun en Vörumarkaðshús-
ið kæmi sterklega til greina.
Stefán Friðfinnsson hjá Vöru-
markaðinum sagði að ýmsir hefðu
sýnt húsinu áhuga, t.d. Háskóli Is-
lands, og viðræður í gangi við aðra
aðila. „Viö verðum að selja húsið til
þess að geta klárað framkvæmdir
við Vörumarkaðinn á Eiðisgranda.
Þegar húsið selst mun versluninni
við Armúla verða lokað. Við höfum
átt við erfiðleika að stríða. Opnun
nýja Hagkaupshússins mun ekki
létta róðurinn hjá okkur í Ármúlan-
um,”sagði Stefán.
KB
Hafir þú ábendingu
eöa vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notaö i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn..
Kjarasamningar:
Kraf an er
kaupmáttar-
trygging
t
t
i
Kaupmáttartrygging er sú krafa
sem lögð verður á samningaborðið um
áramót af verslunar- og verkamönn-
um.
1 kjaramálaályktun þings Verka-
mannasambandsins og Landssam-
bands íslenskra verslunarmanna er
þess krafist að samiö verði um kaup-
máttartryggingu í komandi samning-
um. Ekki er þó skýrt nánar hvernig
skulið samiö um slíkt. Ljóst er að lítill
áhugi er á að taka upp gamla vísitölu-
kerfið, meiri áhersla er lögð á að ríkis-
stjórnin leggi fram bindandi loforð í
samningunum.
Endurkjörið var í stjórnir þessara
samtaka. Björn Þórhallsson var
endurkjörinn formaður LlV og Guð-
mundur J. Guömundsson endurkjörinn
formaður VMSl.
APH
t
í
i
i
i
i
i
i
i
Akureyri:
Sjö piltar
handteknir
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DV á Akureyri.
Sjö unglingar voru handteknir
vegna skrílsláta í miöbænum á Akur-
eyri sl. föstudagskvöld. Þeir voru allir
látnir gista fangageymslur um nóttina.
Unglingarnir, allt piltar, voru ekki
handteknir á sama tíma. Fyrst voru
þrír handteknir. Þaö var kl. hálfeitt.
Einn þeirra fékk þá þörf fyrir að br jóta
rúðu í pylsuvagni skammt frá Hafnar-
stræti 100.
Lögreglan horfði á piltinn brjóta
rúðuna. Þegar hann var handtekinn
komu félagar hans tveir til skjalanna.
Þaö endaði með því að þeir voru hand-
teknir lika.
Næstu þrír voru handteknir um eitt-
leytið og einn var handtekinn í kjölfar
innbrots í nýjan pizzu-stað í Brekku-
götunni. Þar höfðu fjórir piltar veriö á
ferð. Þeir brutu spjald í einum glugg-
anum og fóru inn. Spjaldið var í vegna
þess að rúðan hafði nýlega verið brot-
Frjálst, ohaö dagblað
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1985.
FR ÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.