Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1985, Qupperneq 1
DAGBLAÐIЗVlSIR 268. TBL. - 75. og 11. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1985.
Sjómennirnir bundu bóta sina saman i mynni Reykjavikurhafnar i morgun. Akraborgin var fyrsta skipið sem lokaðist inni. DV-mynd KAE.
Trillukarlar loka
Reykjavíkurhöfn
varðskip bíður átekta fyrir utan
Reiðir trillukarlar lokuðu Reykja-
víkurhöfn skömmu fyrir klukkan tiu
í morgun til að mótmæla fiskveiði-
stefnu Halldórs Ásgrímssonar
sjávarútvegsráðherra. Mótmælin
beinast einkum gegn þriggja
mánaöa veiöibanni sem sett var á
smábátaeigendur fyrir viku.
Félag smábátaeigenda á Akranesi
haföi frumkvæði að mótmælaað-
gerðunum. Um tugur smábáta sigldi
úr Akraneshöfn upp úr klukkan sjö i
morgun. Trillukarlar úr Reykjavík,
Hafnarfirði og víðar, meðal annars
af Hellissandi, lokuðu einnig höfn-
inni.
Þegar blaöið fór í prentun var
óljóst hversu lengi sjómennimir ætl-
uöu að halda höfninni lokaöri. Heyrst
hafði aö það yrði til klukkan 14 í dag.
Hvort sem það var tilviljun eða
ekki geröist það um níuleytið í morg-
un, skömmu áður en aðgerðimar
hófust, að tvö varðskip birtust á ytri
höfninni. Varðskipið Oðinn sigldi frá
bryggju og út á ytri höfn. Varðskipið
Ægir kom skömmu síðar siglandi
milli Engeyjar og Viðeyjar, inn í
höfnina og iagðist að bryggju. Oðinn
beið átekta við Engey.
Trillukarlar, sem DV ræddi við á
Granda fyrir aðgerðimar í morgun,
höfðu ekki fögur orö um sjávarút-
vegsráðherra. „Þetta er tóm enda-
leysa sem hann er að gera. A hverju
eigum við að lifa? Hvað myndu
verslunareigendur segja ef þeim
yrði skipað að loka í þrjá mánuði?”
heyrðist spurt.
-KMU.
Kauptilboð í Cosmosfyrirtæki Haf skips:
Bætir eiginfjárstöðuna
um tæpar 30 milljónir
I gær barst Hafskipi kauptilboð í
dótturfyrirtæki sín i Bandaríkjunum
frá bandarískum aðilum. Líklegt er að
i dag veröi tekin ákvörðun um að taka
þessum tilboðum.
Samkvæmt upplýsingum DV mun
eiginfjárstaða Hafskips batna um
tæpar 30 milljónir ef af þessum
kaupum verður. Fyrirtækin sem hér
um ræðir eru bæði Cosmos fyrirtæki
Hafskips i Bandaríkjunum. Miklar lík-
ur eru taldar á að tilboðinu verði tekið
og eru lögfræðingar Hafskips að kanna
málið vestan hafs.
1 gær var haldinn langur kvöld-
fundur milli aðila frá Sambandinu og
Hafskips. Þar voru spilin lögð á borðið
af beggja hélfu. Litlar upplýsingar
hafa borist frá þessum fundi. Samt er
talið að viðræðum miði vel. I dag verða
áframhaldandi fundarhöld aðila skipa-
félaganna.
I dag eða á morgun mun Utvegs-
bankinn taka þátt í þessum viðræðum.
Líkur eru taldar á því að niðurstaða
þessara viðræðna ráðist nú um helg-
ina.
-APH.
Stórverkefni
erlendisí
hugbúnaði?
Frá Jónl G. Haukssyni, frétta-
manni DV á Akureyri:
Líkur eru á að Verk- og kerfis-
fræðistofan fái umfangsmikil verk-
efni í gerð hugbúnaðar fyrir er-
lendar loðnuverksmiðjur. Af því
gæti orðiö í kjölfar ferðar um 30
eigenda erlendra loðnuverksmiöja
til landsins eftir nokkra daga.
Verk- og kerfisfræðistofan ann-
aðist gerð alis hugbúnaðar í tölvu-
kerfi SQdarverksmiðja ríkisins á
Siglufirði í sumar. En sú loðnu-
bræðsla er sú eina i heimi sem er
tölvustýrð.
Verksmiðjan hefur vakið geysi-
lega athygli. Og eftir nokkra daga
koma til landsins eigendur loðnu-
verksmiðja í Noregi, Færeyjum,
Danmörku, Kanada og hugsanlega
Suður-Ameríku, gagngert til að
skoöa verksmiðjuna á Siglufiröi.
Þeir munu fyrst og fremst skoöa
tölvukerfi verksmiðjunnar. Þaö
var sett upp í sumar er verksmiöj-
an var endurbyggð að hluta. Raf-
hönnun annaðist hönnun kerfisins.
Talið er Ifklegt að það fyrirtæki
kæmi inn í dæmiö með Verk- og
kerfisfræðistofunni ef af verk-
efnum erlendis verður.
-JGH.
— sjánánarábls.2
Dótturfyrirtæki
Alusuisse íÁstraiíu:
SOOmilljónum
komiðundan
vegna
hækkunar
íhafi?
— sjð bls.2
Margirneyðast
tilaðskiptaum
pósthólfsnúmer
— sjá bls. 4
Eyðniístað
AIDS?
— sjábls.4
Ekkihægtaðfá
stjómarskrána
— sjá bls. 2