Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1985, Qupperneq 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 22. NOVEMBER1985.
Framsóknarmenn gagnrýndu
vaxtastefnuna:
„Mistök að gefa
vextina frjálsa”
— segir Haraldur Ólafsson f umræðunni
um okurlánaviðskipti sem f ram fór
á Alþingi í gær
Ríkisstjóminni hefur flest tekist vel.
Þó hefur orðið misbrestur i peninga-
málunum. Vertir eru of háir. Þessi
stefna hefur orðið stökkpallur fyrir
okrarafélög sem nota háu vextina sér
til afsökunar. Okurlánaviðskiptin eru
ein af afleiðingum vaxtastefnu ríkis-
stjómarinnar.
Þetta sagði Páll Pétursson, for-
maður þingflokks Framsóknar-
flokksins, efnislega er hann hóf fram-
haldsumræðu á Alþingi um okurlána-
viðskiptin.
„Lánsfé er dýrt og okurlánastarf-
semin blómstrar þegar fólk er i
peningavandræðum. Gróðapungamir
nota sér neyð og heimsku annarra,”
sagði Páll.
Haraldur Olafsson, Framsóknar-
flokki, tók í sama streng.
„Ég er þeirrar skoðunar aö það hafi
verið gerð mistök þegar ríkisstjómin
gaf vexti frjálsa. Sú ákvöröun var afar
óheppileg og næsta óskiljanleg þegar
kjarasamningar voru fram undan,”
sagði Haraldur.
Guðrún Agnarsdóttir, Kvennalista,
sagði aö þetta ástand i okurmálum
væri afleiöing af stefnu ríkisstjómar-
innar. Þaö væri alvörumál þegar ríkis-
stjómin ræki menn til að taka okurlán.
Hún vakti einnig máls á aðgerðaleysi
ríkisstjómarinnar í málefnum hús-
byggjenda.
Matthías Bjamason viðskipta-
ráðherra var sýnilega ekki ánægður
með ummæli Guðrúnar. Hann sagði aö
Kvennalistinn hefði aldrei þurft að
taka ábyrgö. Málflutningur þing-
manna þess flokks einkenndist af
gaspri, lágkúm og ábyrgðarleysi.
Hann sagði einnig aö Páll Pétursson
heföi flutt sina ræöu í Kvennalistastíl.
Matthias sagöi aö þessi mál væru
ekki einföld og timi til kominn að kjósa
þingmenn sem ræddu málin á alvar-
legum grundvelli. Ríkisstjórnin myndi
gera allt til þess að koma í veg fyrir
okurlánastarfsemi. En þaö yrði ekki
gert með því að lækka vexti. Þá fyrst
myndi fólk með sparifé láta okur-
lánara ávaxta fé sitt.
Fleiri þingmenn tóku til máls og stóð
umræðan framákvöld. APH
Lengra niður vilja starfsmennirnir, sem raða í pósthólfin, ekki beygja sig.
DV-mynd PK.
Fjölmargir neyðast til að skipta um pósthólf snúmer:
Fá Norðmenn hluta
af loðnukökunni?
Boxarar neita
að beygja sig
Sjávarútvegsráðuneytið hefur beint
fyrirspum til Norðmanna hvort þeir
hafi hug á að nýta sér hlut af þeim
loðnukvóta sem ákveðið var að bæta
viö á þessari vertíð.
Samkvæmt samningum eiga
Norðmenn rétt á 15 prósentum af
loðnukvótanum. Af þeim 500 þúsund
tonnum, sem bættust við, eiga þeir því
rétt á 75 þúsund tnnnum.
Væntanlegt er svar frá Norð-
„Við erum alls ekki á móti því að fólk
fái aö setja upp móttökuskerm, til
dæmis á þak fjölbýlishúss. Við erum
ekki á móti þróuninni,” sagði Hilmar
Guðlaugsson, formaður byggingar-
nefndar Reykjavíkurborgar, í fram-
haldi af frétt DV í gær um móttöku-
diska.
mönnum innan skamms. Þangað til
hefur verið ákveöið að úthluta 400
þúsund tonnum af kvótanum. I hlut
hvers skips fellur 16.200 til 25.700 tonn
og fer það eftir stærð þeirra.
Þá hefur verið ákveðið aö banna
allar loðnuveiðar yfir jól og áramót.
Samkvæmt því er loönuskipum
óheimilt að stunda veiðar frá 17.
desember til 2. janúar.
„Það er ekki rétt að byggingarnefnd
hafi samþykkt að Ari Þór þurfi aö taka
niður sinn skerm. Málinu var frestað á
grundvelli bréfs, sem Ari Þór sendi
okkur, þar sem hann bað um frest
þangað til endanleg staösetning hefði
veriðákveðin,”sagðiHilmar. -KMU.
„Við neyðumst til að prenta öll
umslög, alla reikninga og allt bréfs-
efni upp á nýtt. Og ekki borgar
pósturinn það,” sagði Sigurður
Olafsson, lyfsali í Reykjavíkur-
apóteki.
„Við þurfum að breyta um pósthólf
sem við höfum haft í 50—60 ár.
Astæöan er sú að starfsfólkið í póst-
húsinu neitar að beygja sig,” sagði
Sigurður.
Upphaf málsins má rekja til þess
að ný pósthólf voru tekin í notkun í
póstútibúinu við Pósthússtræti í
ágústmánuði síðastliönum. Nýju
pósthólfin voru frábrugðin þeim
gömlu meðal annars að því leyti að
neöstu raðir pósthólfanna voru
nokkru neðar en áöur.
„Boxararnir”, en svo kallast þeir
starfsmenn pósthússins sem raöa í
pósthólfin, neituöu frá upphafi aö
raða í þrjár neðstu raðir póst-
hólfanna, alls um 500 pósthólf.
„Boxurunum”, sem eru átta talsins
á tveim vöktum, finnst of erfitt að
beygja sig svo langt niður.
Póstur og sími brást við með því að
skrifa notendum pósthólfanna og
biðja þá aö hafa samband, að sögn
Gísla Jóns Sigurössonar útibússtjóra.
Þeim, sem ekki höfðu samband, var
úthlutaö nýju pósthólfi. Reynt var að
hafa númer þess nýja lfkt hinu
gamla.
Einstaka hólf í neöstu rööunum er
enn í notkun, aöallega fyrir starfs-
menn pósthússins.
Björn Björnsson póstmeistari
sagöi að hólfin með gömlu
númerunum yrðu geymd í eitt ár
meöan breytingin væri að ganga
yfir. Hann sagði að hólfin í neðstu
röðunum hefðu ekki veriö tekin úr
notkun. Þau væru upplögð fyrir
félagasamtök og aðra aðila með
litinnpóst.
-KMU.
APH
Ekki búið að banna
Ara að hafa diskinn
Páll Bergþórsson leggur til að orðið eyðni verði notað í stað aids:
Get fallist á orð-
ið ónæmistæring
Eins og fram kom í DV í gær ríkir
ekki einnig um hvaða íslenskt orð á
aðnotayfiraids.
Þó má telja að flestir sem til
þekkja geti sætt sig við orðið ónæmis-
tæring. Undantekningar eru á því,
eins og fram kom hjá viðmælendum
DVígær.
DV hafði samband við Baldur
Jónsson hjá islenskri málnefnd
vegna þessa. Hann sagðist geta
samþykkt orðið ónæmistæring, ekki
sist vegna þess að orðanefnd lækna-
félaganna hefði ákveðið að nota það.
Að vísu væri þaö lengra og óþjálla
en alnæmi, en oröið alnæmi værí
notaö yfir annan sjúkdóm og á þeirri
f orsendu ekki hægt að nota það.
Aðspurður sagöi Baldur að þróunin
í þessu oröamáli hefði veríð á eftir-
farandimáta:
Haustiö 1983: Menn hófu að leita að
íslensku heiti í stað aids. Fyrst kom
fram hugmyndin áunnin ónæmis-
bæklun. Sumir töldu þaö ekki hæfa
og sögðu að ákominn ónæmisbrestur
væri betra. Þá heyrðist orðiö
ínæmine.
7. mai 1985: Kom í Morgunblaðinu
tillaga frá lesanda um orðið óvar.
10. maí 1985: Orðið alnæmi notaö á
forsíðu Morgunblaösins.
11. maí 1985: I 287. þætti um íslenskt
mál talar Gisli Jónsson um orðið
næma.
13. júní 1985: öm Bjarnason, for-
maður orðanefndar lækna, kynnir
orðið ónæmistæring i málræktar-
þætti.
25. júni 1985: Helgi Hálfdánarson
segir að orðið næming mundi hæfa.
-s v
wmfr*. :
Páll Bergþórsson veðurfræðingur
— Með nýja hugmynd — Eyðni —
— segirBaldur
Jónsson hjá
íslenskri
málnefnd
Splunkuný hugmynd
Nýjasta tillagan, sem hvergi hefur
komið fram, er orðið eyðni. Þykir
þessi tillaga nokkuð góð.
Kemur hún frá Páli Bergþórssyni
veöurfræðingi.
DV hafði tal af Páli á Veður-
stofunni. Sagði hann þetta orð dregiö
af sögninni að eyða. Hljóölíking við
útlenska orðið aids væri auðheyrð í
framburði. Auk þess væri þetta
auðvelt í samsetningu, t.d. eyðnllyf,
eyðnivelra. Kostirnir væru að ekki
þyrfti aö nota stafinn s í samsetn-
ingum.
Baldur Jónsson sagöist fyrir sitt
leyti hafa samþykkt orðið ónæmis-
tæring, en leist engu að síður vel á
hugmynd Páls um orðið eyðni.
KB
Ummæli bankastjóra
í rannsóknarnefnd
Guömundur Einarsson, Bandalagi
jafnaðarmanna, hefur í bréfi til
Matthíasar Bjarnasonar, ráðherra
bankamála, krafist þess aö skipuð
verði rannsóknarnefnd til að kanna
ummæli bankastjóra tJtvegsbankans
vegna Hafskips.
Þaö var í júni síöastliönum sem
Guðmundur Einarsson vakti máls á
því að veð Utvegsbankans væru ekki
nægileg fyrir lánum Hafskips hjá
bankanum.
I svari þáverandi viðskiptaráðherra
kom fram að bankastjórar Utvegs-
bankans teldu að full veð væru fyrir
lánum Hafskips. Annað hefur komiö í
ljós núna. Guömundur vill að þessi
ummæli verði könnuð nánar. APH.
Frumvarp um okurlán
Þingmenn Alþýöubandalagsins hafa
ákveðið að leggja fram frumvarp um
okurlánaviöskipti á næstu dögum.
Þetta kom fram í ræðu Steingríms J.
Sigfússonar sem hann hélt þegar okur-
málin voru á dagskrá Alþingis í gær.
Frumvarpinu er ætlaö að koma í veg
fyrir að viðskipti af þessu tagi geti
þrifist. Hann sagði einnig að þá myndi
einnig reyna á vilja þingmanna um að
koma í veg fyrir þessi viðskipti.
APH