Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1985, Side 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 22. NÖVEMBER1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Franska parið Alain Mafart og Dominique Prieur fer i nýsjálenskt fangelsi i
10 ór.
Ennboristá
banaspjótum
íBeirút
10 ára fangelsi
fyrír að sökkva
Rainbow Warríor
Drunur sprenginga og hvinur byssu-
kúlna hljómuðu í Beirút í gær þegar
drúsar og shítarbárust á banaspjót-
um í múslímahverfum borgarinnar, á
sjálfan sjálfstæðisdag Líbanons.
Skæruliöar börðust um nóttina í
ýmsum borgarhverfum. Bardagarnir
lömuöu borgarlíf í gær í Vestur-Beirút.
Fréttamenn komust ekki út á götur
til að kanna skemmdir. Skólabörn uröu
að vera eftir í skólum sínum. Fólk fór
niður í kjallara meðan mest var
sprengt og skotiö.
Útvarpsstöðvar sögðu aö bardagar
hefðu aukist, þrátt fyrir tilmæli Abdel-
Halims Khaddam, varaforseta Sýr-
lands, og ýmissa leiðtoga skæruleiða-
sveitanna um að skæruliðar hættu
skothríö sinni. Skæruhðar virtu boð yf-
irmanna sinna að vettugi.
Fyrr á þessu ári börðust drúsar og
shitar hart á sömu svæðum.
Fresta varð hátíöahöldum vegna
þjóðhátíðardagsins.
Frönsku skötuhjúin úr Rainbow
Warrior-málinu hafa nú verið dæmd í
tíu ára fangelsi fyrir hlutdeild þeirra í
skemmdarverkinu á flaggskipi græn-
friðunga í höfninni í Auckland.
Alain Mafart majór og Dominique
Prieur höfuösmaður létu engin svip-
brigði á sér sjást þegar dómurinn var
kveðinn upp yfir þeim.
Dómarinn kvaðst vonast til þess að
þeim yrði ekki „veitt stutt orlof á
kostnaö ríkisins og síðan send heim til
Frakklands sem hetjur”, og vísaði þar
til óska franskra yfirvalda um að þeim
yrði vísað úr landi.
Þau höfðu fljótlega játað sig sek um
manndráp af gáleysi og skemmdar-
verkið en þau hafa ekkert látiö uppi
um hverjir voru í vitorði meö þeim.
Þau höföu ekki flutt sprengjurnar með
sér og ekki heldur komiö þeim fyrir í
skipinu né heldur höfðu þau stýrt að-
gerðinni eða skipulagt hana.
I dag leggur Grænfriðungur, flagg-
skip umhverfisverndarsamtakanna,
af stað í leiðangur til Suðurskauts-
landsins. Er það liöur í baráttu sam-
takanna fyrir því að Suðurskauts-
landið verði friðlýst sem alheimsþjóð-
garður. — Skipið er nýkomið til Auck-
land frá mótmælaaðgerðum við
Muruoa-eyjar, þar sem Frakkar vinna
að tiiraunum meö kjarnavopn. Þangað
átti Rainbow Warrior að sigla þegar
franska leyniþjónustan lét sökkva því í
höfninni í Auckland. Rainbow Warrior
náðist á flot aftur en hefur verið úr-
skurðað ónýtt og verður því sökkt viö
Nýja-Sjáland.
Svfffifi með plast-
hjartað er látrnn
Frá Gunnlaugi A. Jénssyni, fréttarit-
araDVíSvíþjóð:
Leif Stenberg, Svíinn með plast-
hjartað, lést í gær, 53 ára að aldri.
Síðasta apríl var grætt í hann plast-
hjarta í karólínska sjúkrahúsinu í
Stokkhólmi og var það í fyrsta sinn
sem slík aögerð var framkvæmd utan
Bandaríkjanna og sú fjórða í heimin-
um.
I hálft ár var Stenberg sá sjúkhng-
anna fjögurra sem haföi náð sér best
eftir aðgerðina og þann 19. júlí var
hann orðinn svo hress að hann hélt
NÚ líður mér vel!
.Ljósaskoðun
einnar og hálfrar klukkustundar lang-
an blaöamannafund. En ekki alls fyrir
löngu fékk hann heilablóðfall. Eftir
þaö seig stöðugt á ógæfuhliöina.
Bjarne Semb, norski læknirinn sem
stjórnaði aðgerðinni, segist ekki hafa i
hyggju að gera fleiri slíkar aðgerðir,
að minnsta kosti ekkí fyrr en auknar
rannsóknir gefi vonir um betri
árangur.
Rainbow Warrior i höfninni eftir að franskir leyniþjónustumenn sökktu skipinu.
Listaverkum verði skilað
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
hvatti öll aðildarríki sín í gær til þess
að skila listaverkaf jársjóðum aftur til
uppruna síns.
Með 123 atkvæðum gegn engu (15
sátu hjá) var samþykkt ályktun með
— segja Sameinuðu þjóðimar
áskorun tii allra landa „að hafa gott
samstarf við milliríkjanefndir sem
vinna að því að skila menningararfi
aftur til föðurhúsanna’ ’.
Það vory Egyptaland, Zaire og nokk-
ur þriðja heims ríki sem stóðu að flutn-
ingi ályktunartillögunnar.
Bretland, sem var eitt landanna er
sátu hjá, synjaði nýlega Grikkjum um
að skila þeim aftur Elgin-veggmynd-
unum. Það eru marmarastyttur, sem
voru hluti af Parþenon-hofinu, en flutt-
ar voru af Elgin lávarði til Englands á
19. öld. — Bretar halda því fram að
stytturnar hefðu eyðilagst í mengun-
inni í Aþenu.
5% AF SAMNINGUM,
15% VIÐ STAÐ-
GREIÐSLU.
Opiðí kvöld
til kl. 21,
laugard. 9—16.
afislottur
Gildir
til
mánaða-
móta
HUSGAGNADEILDAR
JISHÚSSINS
i imriH laiinii n I' Htiii.
Jón Loftsson hf. ________________
Hringbraut 121 Sími 10600