Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1985, Síða 14
14
DV. FÖSTUDAGUR 22. NÖVEMBER1985.
Menning
Menning
Menning
Menning
ÆSKUHEIMUR
SKÁLDS
Einar Bragi:
AF MÖNNUM ERTU KOMINN, endurminn-
ingar.
Mál og menning, 1985.195 bls.
Ljóðskáldið og formbyltingarmað-
urinn Einar Bragi hefur undanfarin
ár verið að skrá sögu heimahaga
sinna á Eskifirði og umhverfi og
hafa þegar komið út íjögur bindi af
þeirri sögu undir nafninu ESKJA.
Hann hefur einnig sett á prent þrjú
bindi mannlífs- og sagnaþáttá sem
heita ÞÁ VAR ÖLDIN ÖNNUR og
fjalla um fólk á Austfjörðum.
Sem skáld er Einar Bragi kunnast-
ur fyrir ljóð sín og þann þátt sem
hann átti í formbyltingu ljóðagerðar,
einnig fyrir ágætar þýðingar sínar,
einkum á ljóðum, ekki hvað síst ljóð-
um fámennra grannþjóða okkar, svo
sem Grænlendinga og Sama. Hann
var einn af ritstjórum Birtings og var
frumkvöðull þess merkilega menn-
ingarrits sem áreiðanlega hefur haft
meira uppeldisgildi en nokkurt ann-
að bókmennta- og listatímarit hér á
landi.
Allt sem Einar Bragi skrifar er
fágað. Svo er um nýjustu bók hans,
AF MÖNNUM ERTU KOMINN,
endurminningar gefnar út af Máli
og menningu. Bókin skiptist í tvo
Bókmenntir
RannveigG.
Ágústsdóttir
meginhluta. I fyrri hlutanum, Á
grundinni, segir Einar Bragi frá
móður sinni og fólki í næsta um-
hverfi sem á einhvern hátt tengist
honum í æsku. I síðari hlutanum,
sem nefndur er Faðir minn, fer höf-
undur út fyrir þröngan hring hlað-
Vesturbærinn:
Vinsæll vettvangur
Þetta er nú einum of...
Höfundur: Guölaug Richter.
Myndir: Anna Cynthia Leplar.
Útgefandi: Mál og menning, 1985.
Já, nú er komin út enn ein vestur-
bæjarsagan og síst sú lakasta (af
mörgum góðum). Ég fæ ekki betur
séð en satt og rétt sé það sem segir
aftan á bókinni:
Þetta er nú einum of... er
skemmtileg saga af krökkun-
um í vesturbænum þegar
TÍVOLÍ var rétt hjá flugvell-
inum og Trípolíbíó sýndi
Zorró og Roy Rogers myndir
og þegar fullur poki af vinar-
brauðum kostaði fimmkall!
Það sem meira er, þetta er lifandi
og sönn frásögn af lífi fólks sem hefur
blóð í æðum og tilfinningar í taugum.
Kristján Snorrason, 9 ára, er sögu-
hetja þessarar nýju bókar eftir nýjan
höfund sem skrifar fyrir börn en er
greinilega enginn viðvaningur með
pennann.
Heim úr sveitinni
Stjáni er á leið heim úr sveitinni í
upphafi sögu, heim í skólann og
skyldustörfin sem hann hefur með
höndum á heimilinu. Sögusviðið er
síðan Reykjavík, vesturbærinn,
fjaran, höfnin og Holtið, uppáhalds-
staður krakkanna í hverfinu og
úrvalsstaður fyrir bófahasar, rútu-
bílaleik eða draugaleik enda trónir
Draugahúsið þar afsíðis með öllum
sínum ógnum. Ekki má gleyma ein-
um aðalvettvangi sögunnar sem er
litla kjallaraíbúðin. Þar eiga heimili
foreldrar Stjána með ómegð sína: sex
börn. Stjáni er elstur, þá Vala,
Bogga, Þura, Maja og nýfæddur
bróðir sem hlýtur nafnið Snorri
þegar líður á söguna. Þama býr líka
Dadda sem vinnur í búð við Lauga-
veginn og er mömmu til halds og
trausts þvi að pabbi er háseti á milli-
landaskipi og því lítið heima. Þarna
hefur hver sín sérkenni sem höfund-
urinn ber fyllstu virðingu fyrir. Les-
andi á því gott með að sjá fyrir sér
þessar persónur hverja fyrir sig og
taka þátt í lífi þeirra.
Bútur af lífinu
En nátengdust manni verðúr auð-
vitað söguhetjan sjálf, Stjáni, enda
eru atburðir sögunnar byggðir á
daglegu amstri hans, áhyggjum og
gleði. Áhyggjumar eru flestar
bundnar skyldustörfum hans: barna-
pössun og heimilisstörfum og því
hvort hann eigi möguleika á að taka
þátt í einu eða öðm sem félagar hans
em að skipuleggja. Gleðistundirnar
em samt margar og birtast stundum
'ir minnst varir. Það þarf ekki annað
en góða hugmynd til að gera hvers-
dagslífið að skemmtun einni. Dæmi
um slíkt er Tívolíferð þeirra systkina
eða ferð niður að Tjörn með nesti -
og franskbrauð með osti, kakó og
góður félagsskapur getur létt hin
erfiðustu heimilisstörf ótrúlega mik-
ið.
Viðfangsefni þessarar sögu er lífið
sjálft í Reykjavík fyrir u.þ.b. aldar-
fjórðungi, auðvitað aðeins örlítill
Barnabækur
Hildur Hermóðsdóttir
bútur sem gmndvallast á vali höf-
undarins. Börn, og reyndar allir, geta
hér lesið skemmtilega sögu sem þarf
ekki útskýringa við. En ef íhugað er
örlítið nánar hvaða þætti höfundur
hefur valið sér kemur í ljós að sögu-
persónur sínar sækir hann flestar í
hóp alþýðunnar.
ísmásjánni
Þær eru venjulegt fólk sem vinnur
hörðum höndum og er að koma yfir
sig þaki inni í Smáíbúðahverfi.
(Kunnugir geta þekkt hvert kenni-
leiti í sögunni.) Höfundur hefur líka
valið að hafa sögupersónur sínar
breyskar. Meira að segja pabbi,
átrúnaðargoð Stjána sem stendur á
stalli framan af sögunni, þolir ekki
smásjá stöðugrar nálægðar eftir að
hann hættir á sjónum og sýnir þá
veikari hliðar. Móður sína og að-
stöðu hennar sér Stjáni líka smám
saman í nýju ljósi. En viðhorf Stjána
til foreldra sinna ber líka vott vax-
andi þroska hans á sögutímanum
sem er einn vetur.
Höfundur velur sér dreng að aðal-
persónu, dreng sem stendur við hlið
móður sinnar og sinnir börnum og
heimili af stakri alúð - og er það
varla tilviljun. Drengurinn býr yfir
mjög trúverðugum persónuleika.
Oftast er hann býsna jákvæður þrátt
fyrir harðar kröfur en hann á það
líka til að snúa ranghverfunni út,
eins og við öll. Hann þarf að neita
sér um ýmsa skemmtun og verður
þá erfitt að halda velli í félagahópn-
um.
Engin gervispenna
Þeir atburðir sem höfundur lætur
bera uppi söguna eru allir valdir úr
hversdagslífinu. Raunverulegir, litlir
atburðir sem gætu komið fyrir hvern
sem er - engin gervispenna, engar
gervilausnir.
Ekki verður skilist svo við athugun
á vali höfundarins að nefna ekki
Engilbert. Þessi fínpússaði prófess-
orssonur í Iakkskóm, köflóttum
jakka og með hringspangagleraugu
á nefi stingur hlægilega í stúf við
hina krakkana í sögunni. En „ekki
er allt sem sýnist“. í Engilbert finnur
Stjáni hinn sanna, skemmtilega vin.
„Þú átt eftir að skilja þetta allt betur
seinna,“ segir hann eitt sinn við
Stjána. Sé ég ekki betur en þessi
ágæta persóna undirstriki fordóma-
leysi höfundar gagnvart fólki, mann-
skilning og húmor.
Frásögn Guðlaugar er leikandi létt
og sögð á lifandi máli en vönduðu.
„Þetta myndi afi blindi kalla húm-
or.“ Þetta hugsar Stjáni með sér
einhvern tíma í viðskiptum við
Engilbert. Ósjálfrátt varð mér oft
hugsað til þessarar setningar síðan
við lesturinn, líklega vegna þess hve
frásögnin er full af húmor og
skemmtilegheitum - eins og reyndar
lífsbaráttan sjálf þrátt fyrir allt.
Sagan endar á því að Stjáni er aftur
á leið í sveitina eftir langan vetur.
Vonandi heyrum við bráðlega af
honum þar eða þá í Smáíbúðahverf-
inu!
Teikningar Önnu Cynthiu eru.
mjög viðfelldnar og letur viðráðan-
legt fyrir sæmilega læsa.
HH
varpans og lýsir lífinu í fæðingarbæ
sínum á þriðja og fjórða áratugnum.
Þar fléttar hann saman við lýsingu
föður síns þróunarsögu staðarins,
vinnu- og verkalýðssögu. Faðir
hans var sjómaður og útgerðarmaður
eigin skips, einn af frumherjum
samvinnuútgerðar á staðnum og um
tíma starfsmaður landhelgisgæsl-
unnar.
Skáld fyrir sjómann
Höfundur ætlaði líka að verða
sjómaður. Ekkert annað kom til
greina. En þótt hann gerði djarf-
mannlegar tilraunir varð hann að
hætta við sjómennskuna því hann
varð óvinnufær á sjó vegna sjóveiki.
Þannig eignuðumst við skáld fyrir
sjómann.
Endurminningar Einars Braga
beinast út á við, að umhverfi, and-
rúmslofti og náttúrufari staðarins.
En þó er það fyrst og fremst maður-
inn sem er í sviðsljósinu. Um hann
snýst allt líf manna. Athyglinni er
aðallega beint að einni persónu í
einu og höfundur fylgir henni fram
um ævi og stundum allt til dauða ef
hún er öll þegar sagan er skráð. Að
öðrum kosti segir hann lesanda frá
högum viðkomandi persónu og
hvernig lífið hafi leikið hana. Hann
segir okkur sem sagt nýjustu fréttir
af vinum sínum sem hann hefur
vakið áhuga okkar á með lystilegum
lýsingum og ýkjulausum. Og hann
sýnir okkur Ijóslega hver var mann-
gildishugsjón þessa fólks: hógværð,
hjálpsemi og æðruleysi.
Sjálfur er höfundur minniháttar í
frásögninni, treður sér lítt fram, og
lesandi sér heiminn með augum hans
og samsamar sig honum. Þannig
kynnist hann sögumanni í gegnum
viðbrögð hans við öðru fólki og
náttúrunni. Það er augljóst að höf-
undur hefur átt bjarta æsku. Hann
hefúr verið hjá góðu fólki og gróska
hefur verið í mrmnlífinu þrátt fyrir
kreppu; þó ekki „vegna hennar" eins
og margir segja sem ekki upplifðu
hana og halda að tómur diskur sé
eitthvað andlega upplífgandi. En
gæfa fiskiþorpanna við strendur
Einar Bragi rithöfundur.
landsins var þrátt fyrir allt sú að það
var alltaf fiskur á disknum hjá öllum.
Sjómennirnir sáu um það, gáfu jafn-
vel allan afla sinn við löndun úr t.d.
fyrsta róðri.
Kurteis frásögn
Höfundur veltir sér ekki upp úr
aumingjasögum og er ekkert fyrir
að ganga fram af velsæmistilfinning-
um fólks. Aldrei gerir hann lítið úr
sögufólki sínu, þvert á móti - hann
upphefur það og gefur því reisn. Það
gerir hann m.a. með hógværum lýs-
ingum og góðlátlegu skopi. Ég held
að hver Islendingur ætti að þekkja
þetta ágæta fólk sem Einar Bragi
lýsir því það hefur haldið í okkur
lífinu sem á eftir komum.
Frésagnarstíll Einars Braga er
hefðbundinn en þó frjáls. Hann getur
leyft sér að hlaupa fram og aftur í
tíma og rúmi og tengir hann þannig
saman reynslu og viðhorf barns við
þekkingu söguhöfundar sem fullorð-
ins manns. Frásögnin er kurteis og
Iýsingar hófstilltar og agaðar en
dvelja þó sinn tíma við hvert eitt
atriði sem sköpum skipta svo að
lesandi kemst inn í heim sögunnar
og getur horft í kringum sig.
Frágangur bókarinnar er til fyrir-
myndar og lesmál allt hreint af vill-
um. Texti við myndir hefði mátt vera
fyllri. Einnig hefði verið gott að hafa
kort af Austfjörðum og þá hefði mátt
merkja inn aukalega þá staði sem
nefndir eru í bókinni en eru komnir
í eyði eða eru ekki á venjulegum
landakortum, eins og útræði o.fl. Það
er óþægilegt að þurfa að flækjast
með landakort við lesturinn en ég lét
mig nú samt hafa það svo að ég gæti
ímyndað mér fjallasýn úr fæðingar-
stöðum söguhetjanna og íjarlægð
milli elskenda enn nánar en fram
kemur í annars afbragðsgóðum lýs-
ingum höfundar.
Við lestur minninganna sakna ég
eiginlega bara eins: að Vestfirðingar
skuli ekki eiga sér neinn Einar
Braga.
Rannveig
Flautukvartett
Tónleikar i Gerðubergi 17. nóvember.
Flytjendur: Flautukvarlett, skipaður Mart-
ial Nardeau, Guðrúnu Birgisdóttur, Kol-
beini Bjarnasyni og Bernard Wilkinson.
Efnisskrá: Georg Philipp Telemann: La
Caccia; Friedrich Kuhlau: Kvartett op.
103; Marc Bertomieu: Chats; Eugéne
Bozza: Jour d’été a la montagne.
Kvartett, skipaður fjórum þver-
flautum, held ég að sé fyrirbæri sem
aldrei hefur leikið heila opinbera
tónleika á íslandi fyrr en nú. Þó
hafði maður haft af því pata að
kjarni þessa kvartetts hefði verið
að bauka með spil af þessu tagi um
allnokkurt skeið. En oft eru menn
að bauka eitt og annað án þess að
sjá ástæðu til að koma því á fram-
færi og er það að minnsta kosti í
sumum tilvikum miður að ekki sé
uppskátt gert. En hversu forvitni-
légt það út af fyrir sig er að hlýða
á svo óvenjulega samsetningu þá
eru það gæði leiksins sem hljóta
að vega þyngra en forvitnileikinn.
Og hér vantaði ekkert upp á í þeim
efnum. Satt best að segja held ég
að ótrúlegt verði að teljast að hægt
sé að hóa saman fjórum jafngildum
flautuleikurum af svo háum gæða-
flokki í ekki stærra plássi en henni
Stór-Reykjavík.
Georg Philipp Telemann.,
„sveitasælu- og veiðisöngvar“
Tónleikar
Eyjólfur Melsted
Sveitasælan og beint
útúrÁlfhól
Verkefnavalið var mjög róman-
tískt. Kannski dettur engum nema
rómantískum mönnum í hug að
semja músík fyrir fjórar flautur?
Þó held ég að módernistar ættu
ekki að vera í vandræðum með að
sjóða eitthvað annað bitastætt
handa svona flokki, ekki síst vegna
þess hversu vel sá flokkur, sem hér
um ræðir, er mannaður. Nánast
allt sem þau léku var prógrammús-
ík: Sveitasælu- og veiðisöngur
Telemanns, Fjalla- og sveitasælu-
stemmningar Bozza, Kattalýsingar
Berthomieus. Svo kom blessaður
kallinn hann Kuhlau sem að vísu
engar tilvísanir gaf fyrir kvartett-
inum sínum en svipurinn á músík-
inni kom beint út úr Álfhól. Efnis-
skráin samanstóð sem sé af falleg-
um og viðkunnanlegum en kannski
ekki að sama skapi risháum tón-
smíðum. Einhvern veginn virtist
rishæðin samt litlu máli skipta því
að samstilling, leikni og alúð flytj-
endanna við leikinn lyfti huga
áheyrandans í staðinn.
Þetta voru síðustu tónleikarnir í
yfirstandandi tónleikaröð Gerðu-
bergs. Tiltækið tókst vel og verður
vonandi framhald á.
EM