Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1985, Side 36
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
efla vitneskju um
frétt — hringdu þá i
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist efla er
notað i DV, greifl-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Vifl tökum
vifl fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1985.
Alheimsforseti JC:
Andrés náði
ekki kjöri
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DV á Akureyri:
„Cg er að vonum svekktur. Eg átti
allt eins von á að sigra. Það voru mjög
jákvæðar undirtektir við framboði
minu. Bn þetta fór svona. Barouni frá
Túnis sigraði. Það er ekkert annað aö
gera en að taka þvi eins og það ber aö
höndum. Mér þykir leiöinlegt aö geta
ekki fært þér betri fréttir.”
Þetta sagði Andrés B. Sigurösson,
sem var í kjöri til heimsforseta JC,
þegar DV náði sambandi við hann i
nótt á heimsþingi JC í Carta Gena i
Kolumbíu. Kosningu var þá rétt nýlok-
ið. Túnismaðurinn Barouni sigraði.
Þrír voru í kjöri. Andrés, Barouni og
frambjóðandi frá Equador. Baráttan
stóð allan tímann milli Andrésar og
Barouni. En sá síöarnefndi var í fram-
boði til heimsforseta i annaö sinn.
„Hann reyndi í fyrra og það var því
ákveðin samúð meö honum,” sagði
Ami Þór Amason, kosningastjóri
Andrésar, í samtali við DV í nótt. „Þar
spilaöi einnig inn í að hann er frá
Afríku og sú heimsálfa hefur aldrei átt
heimsforsetann.”
Ami sagði ennfremur aö voldugustu
JC-löndin, Japan og Bandaríkin, sem
hefðu verið mjög jákvæð gagnvart
framboöi Andrésar, hefðu snúist á
sveifmeðBarouni.
„Þaö var ákveðin pólitik i þessu.
Evrópa átti heimsforsetann ’83 og ’84.
Það var því veðjað á mann þriöja
heimsins í þetta skipti,” sagði Ami Þór
Araason.
Olíaranníhöfn-
inaáTálknafirði
Þó nokkurt magn af olíu rann í sjóinn
í höfninni í Tálknafirði í gær þegar verið
var aö dæla oUu á bát. OUuleiðsla undir
bryggjunni fór í sundur. Ekki er vitað
hve mikiö magn fór í sjóinn þar sem
mælingar hafa ekki farið fram. Talið
er að um 20 þús. Utrar hafi farið í sjó-
inn. Þaö er þó ekki mikil oUubrák í
höfninni.
-SOS
LOKI
Með lögum skal land
byggjal
Af um áttatiu mönnum sem áttu fé
í okurlánaveltu Hermanns Björg-
vinssonar eru þrír lögmenn. Sá fyrsti
var yfirheyrður í fyrradag. Sam-
kvæmt upplýsingum sem DV hefur
aflað sér eru lögmennimir Ingvar
Bjömsson, Pétqr J. Kjerulf og Björn
Pálsson.
Þeir Ingvar og Pétur reka saman
lögfræöiþjónustu og fasteignasölu í
Hafnarfirði. Þeir eru báðir héraðs-
dómslogmenn. Bjöm er einnig hér-
aðsdómslögmaöur. Hann rekur ekki
opinberlega lögfræðiþjónustu og er
ekki í Lögmannaf élaginu.
Aðild þessara lögmanna aö máU
Hermanns er talin UtU í upphæðum
miðað við heildarveltuna.
Stjóm Lögmannafélagsins hefur
ekki á prjónunum nein afskipti af
málum lögmanna innan félags-
ins sem tengjast okurlánamálinu.
Aö sögn Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar, formanns Lögmannafélags*
ins, eru engar forsendur fyrir slikum
afskiptum á þessu stigi.
Ef lögmenn fá á sig opinbera
ákæm getur komið til þess að stjóm
Lögmannafélagsins leggi fram
beiðni til dómsmálaráðuneytisins
um að viðkomandi lögmenn verði
sviptir lögmannsréttindum. Krafa
um slíkt gæti einnig legið fyrir í opin-
beruákærunni.
HERB
Þetta er sýnishorn af tákkunum, sem Hermann Björgvinsson notafli
vifl iánveitingar. Á móti fákk hann einfaldlega hærri tákka. Munurinn
var mismikill hlutfallslega og gat þýtt 10—16°/« mánaðarvexti. Þar af
fengu þeir sem lögfiu til fá almennt tvöfalda opinbera dráttarvexti,
sem hafa verið 3,5—3,75% undanfarifi, efla 7—7,5% tvöfaldir. Þannig
varfi okrið tvöfalt, innleggjendur okrufiu á Hermanni og Hermann á
lántakendunum.
____ r r r
M0RÐARASA
ÍSLENDING
drepinn á Grænhöfðaeyjum
„Eg fékk mér gönguferö niður á
strönd að loknum kvöldverði og á
heimleiðinni undu sér að mér nokkrir
innfæddir og létu dólgslega,” sagði
Siguröur Grímsson kvikmyndagerð-
armaður í samtali við DV. „Eg
reyndi að hrista þá af mér en þá fékk-
ég grjót í hausinn. Vissi ég ekki af
mér næstu stundimar þar sem ég lá i
öngviti í heitum sandinum á strönd-
inni.”
Sigurður var á Grænhöfðaeyjum
ásamt félaga sínum, Karli Sig-
tryggssyni, að kvikmynda mannlíf
og íslenska hjálparstarfið á eyjunum
er atburðir þessir urðu. Voru þeir
búnir aö dvelja í 7 vikur við störf á
Grænhöfðaeyjum þegar árásin á Sig-
urö var gerð. Hann hlaut slæm höfuð-
meiösl, sinar í handlegg slitnuöu og
hann handleggsbrotnaði. Að sögn
rússnesks læknis á sjúkrahúsinu í
Praia, höfuðborg Grænhöfðaeyja,
mátti ekki muna nema hársbreidd að
Sigurður léti lífiö i árásinni.
„Þessir fólar hafa vafah'tið ætlað
aö ræna mig en höfðu ekki annað upp
úr krafsinu en skóna mina og úr,”
sagði Sigurður Grímsson. Hann er nú
kominn heim og á batavegi. Helgar-
blað DV birtir viðtal við Sigurð
Grímsson um moröárásina og Græn-
höfðaeyjar á morgun. -EHt.
Sigurfiur Grímsson á hoimili sinu i Reykjavik: — Þeir höffiu ekki nema
skóna mina upp úr krafsinu. DV-mynd S.
Skuldabréfa-
útgáf a Kópa-
vogsogSS
Kaupþing hf. hefur tilkynnt tvö
skuldabréfaútboð. Er þar annars veg-
ar um að ræða skuldabréfaútboð
Sláturfélags Suðurlands aö nafnverði
60 milljónir kr. og hins vegar skulda-
bréfaútboð Kópavogskaupstaðar að
naf nverði 30 miUjónir kr.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem
skuldabréf eru gefin út beinlínis til sölu
á Verðbréfaþingi Islands. Einnig mun
þetta vera í fyrsta skipti sem Búnaöar-
banki Islands tekur þátt í skuldabréfa-
útboði en hann mun ábyrgjast endur-
greiðslu skuldabréfanna frá Sláturfé-
laginu. Þetta skuldabréfaútboð Slátur-
félagsins er það stærsta sem frá einka-
aðilahefurkomið.
Kópavogskaupstaður fer meðútgáfu
skuldabréfa sinna inn á nýjar brautir
þvi sveitarfélag hefiu- aldrei aflað fjár
til framkvæmda á þennan hátt áður.
Þar að auki er útboð Kópavogs eitt það
stærsta sem hefur farið fram hér-
lendis. -SMJ.
Fórnumekki
Framsókn
Steingrímur Hermannsson sagöi í
blaðaviðtali fyrir skömmu að Fram-
sóknarflokknum væri fómandi fyrir
lækkun erlendra skulda og lægri verð-
bólgu.
Páll Pétursson, formaður þingflokks
framsóknarmanna, er á öndverðum
meiði. „Framsóknarflokkurinn var
ekki stofnaður til þess aö koma verö-
bólgunni niður fyrir 10%,” segir Páll.
„Hann var stofnaður til að vinna aö
framgangi ákveðinna hugsjóna en ekki
fyrir skammtímamarkmið. ’ ’
Páll ræðir um þessi mál — ásamt
deilu þeirra Steingríms um feröalög —
í viðtali við helgarblað DV á morgun.
-GG.
r
r
JÁ
ípf
W
■':
. %