Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Qupperneq 2
DV.'MÁNUDAGUR 14. (APRÍD 1980.1 \; Amarflug vann einvígiö í Alsír: Samningurinn hljóðar upp á 315 milijónir - búist við talsverðum hagnaði Arnarflug hefur gert samning við Alsírmenn um pílagrímaflug, en eins og fram hefur komið i fréttum að undanförnu kepptu Flugleiðir og Arnarflug um þenn- an samning. Amarflug undirritaði á laugardag- inn samning um pílagrímaflug við flugfélagið Air Algerie í Alsír. Samn- ingurinn hljóðar upp á liðlega 315 milljónir króna og stendur flugið yfir frá 20. júlí til 7. september. Fulltrúi Amarflugs, Goði Sveinsson, undirrit- aði samninginn. Jaínframt em hafnar viðræður við önnur lönd um píla- grímaflug. Að sögn Sighvats Blöndahls, blaða- íulltrúa Amarflugs, er gert ráð íyrir að talsverður hagnaður verði af þessu flugi. Gert er ráð fyrir að 5 DC-8 flug- vélar fljúgi fyrir Alsírmenn. Fjórar þeirra verða alfarið í pílagrímaflugi. Fimmta vélin verður eins konar vara- vél fyrir pílagrímafiugið en mun jafnhliða annast áætlunarflug fyrir alsírska flugfélagið. Stefnt er að því að sem flestir íslend- ingar starfi við þetta flug. Átta áhafnir fara frá Amarflugi og hefur hluti þeirra verið í þjálfun í Bandaríkjunum að undanfomu. Einnig er gert ráð fyr- ir að flugmenn frá Flugleiðum og Cargolux muni starfa við pílagríma- flugið í sumarfríum sínum. Búast má við því að um 100 þúsund pílagrímar verði fluttir til og frá Alsír. Flutningamir frá Alsír standa yfir fyrstu þrjár vikumar. Síðan verður 10 daga hlé. Þrjár vikur verða síðan not- aðar til að flytja pílagrímana til baka. Sighvatur sagði að óvíst væri um samninga um áætlunarflug í Alsir. Efnahagsástandið í landinu hefði versnað sarofara olíuverðslækkun sem hefði samdrátt í fór með sér. Þau mál ættu samt eftir að skýrast þegar líða færi á vorið. Viðræður em einnig í gangi um píla- grímaflug fyrir Túnis, Egyptaland og Vestur-Afríku. Sighvatur sagði að ekki væri ástæða til að ætla annað en Amarflug ætti möguleika á samn- ingi við þessi lörid. -APH Vesturlandsumdæmi: Stefan Skjaldarson ráðinn skattstjóri Fjármálaráðherra hefur skipað Stef- án Skjaldarsson lögfræðing til að vera skattstjóri Vesturlandsumdæmis frá og með 1. júlí næstkomandi. Ráðuneytinu bárust þrjár umsóknir um stöðuna. Umsækjendur auk Stef- áns vom Kjartan Jónsson lögfræðing- ur og einn sem óskaði nafnleyndar. -KB Eurovision: 14 þusund á mínútuna „Okkur reiknast til að við fáum 400 mínútur af innlendu sjónvarps- efhi fyrir þessar 6,5 milljónir sem settar hafa verið í keppnina,“ sagði Bjöm Bjömsson hjá Hugmynd sem annast framkvæmd söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hér á landi. „Það gerir 14 þúsund á mínút- una. Eða með öðrum orðum; við erum 10 sinnum ódýrari en þeir sem em að gera íslenskar kvikmyndir.“ Að sögn Hrafns Gunnlaugssonar, deildaretjóra innlendrar dagskrár- gerðar hjá sjónvarpinu, hafa Hugmyndarmenn ekki farið fram úr fjárhagsáætlun og ekkert bendir til að svo verði: „Ég hef óskað eflir því að verða látinn vita strax og fjár- hagsáætlunin fer úr böndum og það hefur ekki gerst enn,“ sagði Hrafn. -EHt Samæfíng björgunarsveita í Borgarfírði: Hundrað „slasaðir“ við Varmaland Frá Siguijóni Gunnarssyni, frétta- ritara DV í Borgarnesi: Um 200 félagar úr björgunarsveit- um á svæðinu frá Akureyri til Suðurlands komu saman til æfingar í Borgarfirði um helgina. Höfuð- stöðvar björgunarmanna á þessari æfingu vom í Þinghamri í Stafholts- tungum. Æfingin var af þeirri gerð sem kölluð er póstæfing. Þá em sveitim- ar kallaðar út án þess að vitað sé fyrir fram hvaða verkefni bíða þeirra. Er þá farið yfir skipulag fjar- skipta, auk þess sem hæfni í að bregðast við óvæntum verkefnum er æfð. { gærmorgun vom sveitimar kall- aðar út vegna ímyndaðs slyss sem átti að hafa geret við Varmaland þá um morguninn. Um 100 félagar í björgunarsveitum skáta í Borgamesi og Reykjavík léku þar fólk í ýmsu ásigkomulagi eftir alvarlegt slys. Vom þar sumir með beinbrot og aðrir með alvarlegri áverka. Hinir slösuðu vom fluttir í Þinghamar til forathugunar og þaðan áfram á sjúkrahús, allt eftir því hvereu alvar- leg meiðslin vom. Æfingin tókst í alla staði vel og komu ekki í ljós neinar alvarlegar veilur í skipulagi björgunaretarfsins. Að vísu var horfið frá því að flytja þá sem fara áttu á sjúkrahús alla þá leið til að spara bensín en að Hlúð að einum „slösuðum“ á björgunaræfingunni í Borgarfirði. öðm leyti var reynt að hafa alla Upphaflega stóð til að leika slysið þætti æfingarinnar sem raunhæ- í Borgamesi en vegna þess að tveir fasta. drengir drukknuðu þar á laugardeg- inum var horfið frá því og æfingin flutt að Varmalandi. Björgunarveit- armenn tóku þátt í leitinni að DV-mynd Siguijón Gunnarsson. drengjunum og lögðu til báta og fjar- skiptatæki auk mannskaps til að auðvelda leitina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.