Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Qupperneq 48
MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1986. Sigurður Helgason: „Erum mjög óhressir" 'TW1 „Við erum mjög óhressir með að Arnarflug skuli vera að undirbjóða okkur. Það er að okkar mati mjög óæskilegt og þjóðhagslega óhag- kvæmt að tvö flugfélög héðan séu að bítast um pílagrímaflug á saman stað í heiminum. Við teljum að það sé komin söguleg hefð fyrir því að Flug- leiðir sé með Alsírflugið," sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða, í viðtali við DV. Sigurður sagði að hann hefði ekki séð samninginn sem Arnarflug gerði. Svo virtist sem þar væri verið að tala um töluvert lægra verð en Flugleiðir bauð í upphafi. „Við töldum okkur .ekki geta farið neðar. Það þarf lítið að bera út af í þessu til að tap verði. -:.-**Miðað við það tímaverð sem Alsír- menn kröfðust er ekki þess virði að fara út í þetta,“ sagði Sigurður. Sigurður sagði að Flugleiðir væri í viðræðum við önnur ríki um píla- grímaflug. Sigurður útilokaði ekki heldur að eitthvað yrði úr samingum við Air Algerie. Þeir væru ekki form- lega búnir að rifta rammasamningi þeim sem gerður var í febrúar. Arnar- flugssamningurinn, sem gerður var fyrir helgi, hljóðar aðeins upp á þriðj- ung af þeirri upphæð sem gert var ráð __fyrir í samningi Flugleiða. -APH Nýtt þak á vexti viðskipta- skuldabréfa Seðlabankinn lagði fyrir síðustu mánaðamót blátt bann við því að inn- lánsstofnanir beittu sérstökum vöxtum eða vöxtum kaupgengis við kaup á skuldabréfum. Þetta gildir um öll skuldabréf útgefin eftir 1. apríl og þannig er órjúfanlegt 15,5% vaxtaþak á öllum skuldabréfum. Eins og DV skýrði frá á laugardag- inn taka allir bankar nema Lands- banki og Búnaðarbanki, svo og flestir ■ 4S»stærstu sparisjóðir, viðskiptavíxla á kaupgengi. Það gefur nú um 30% ársvexti á sama tíma og vextir á al- mennum víxlum eru 15,25% og bankarnir tveir taka 19,5% vexti af þessum víxlum. Til síðustu mánaða- móta voru viðskiptaskuldabréf keypt með hliðstæðum hætti. HERB Simi: 52866 Geriö uerösamanburö og pantiö úr Væri ekki gáfulegra að koma upp pólitískri hundahreinsunarstöð? Iðnaðarráðherra í könnunarviðræðum við olíumenn í París: Þre'rfar á risa- olíuhreinsun „Ég var hér heilan dag að ræða „Þetta er hugmynd sem komið er væntanlegur heim í vikulokin. við olíumcnn, sem tengjast mörgum hefur upp áður en þá reyndist ekki „Jú, ég átti erindi út fyrir mitt af helstu olíulöndunum. Við rædd- vera fyrir hendi nægur áhugi af ráðuneyti, sem hefði tekið tvo daga. um um þann möguleika að koma okkar hálfu. Nú hef ég tekið upp upp á fslandi mjög stórri olíuhreins- þráðinn aftur og fæ væntanlega að Ég tók hins vegar að mér að sitja unarstöð fyrir markaði bæði vestan vita það fljótlega eftir að ég kem tvo fundi fyrir Matthías Bjarnason og austan við okkur, auk heima- heim hvort olíuframleiðendumir viðskiptaráðherra, sem er þreyttur. markaðarins," sagði Albert telja olíuhreinsun á íslandi áhuga- Þetta verður þess vegna hálfsmán- Guðmundsson iðnaðarráöherra í verða núna eða á næstunni.“ Albert aðarferð," sagði Albert. samtali við DV. hefur verið í Paris undanfarið og HERB Veðrið á morgun: Áfram kalt Á morgun verður norðaustlæg átt ríkjandi um allt land. Veður verður þó tiltölulega bjart sunnanlands en él norðan til á landinu. Vindhraði verður á bilinu 2-4 vindstig. Veður verður því áfram kalt með allt að 7 stiga frosti fyrir norðan, en nokkru hlýrra eða 2-4 stiga frosti fyrir sunnan. -S.Konn Bátar sem tóku þátt í leitinni að drengjunum og björgunarsveitarmenn á bryggjunni í Borgarnesi. DV-myndir Snorri Kristleifsson. Hafnarfjörður: H-listinn ákveðinn Listi Félags óháðra borgara í Hafh- arfirði, H-listinn, vegna bæjarstjórn- arkosninganna í vor liggur fyrir. Oddviti hans síðast, Vilhjálmur G. Skúlason, gaf ekki kost á sér. í hans sæti á listanum kemur Snorri Jónsson fulltrúi. Andrea Þórðardóttir hús- móðir er áfram í öðru sæti. Þau Vilhjálmur eru núverandi bæjaifull- trúar listans. 13.-11. sæti em: Árni Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður, Kristín Guð- mundsdóttir læknaritari, Karel Karelsson sjómaður, Ásdís Jónsdóttir hjúkmnarfræðingur, Jóhann Guð- bjartsson iðnverkamaður, Ásthildur Einarsdóttir tækniteiknari, Ómar Smári Ármannsson lögreglumaður, Stefanía Sigurðardóttir skrifstofu- maður og Hilmar Kristensson versl- unarmaður. -HERB Dauðaslys í Borgarfirði: Tveir átta ára drengir drukkn- uðu Tveir átta ára gamlir drengir frá Borgamesi drukknuðu í sjónum skammt frá bænum á laugardag. Lík þeirra fundust laust eftir kí. 17.00 í svokölluðum Bæjarvogi suð- ur af bænum Þursstöðum tun 2 kílómetra fyrir vestan bæinn. Að sögn Rúnars Guðjónssonar, sýslumanns í Borgarnesi, er talið að drengirnir hafi farið að heiman frá sér um kl. 9.00 um morguninn. Af málsatvikum er ljóst að þeir hafa . farið frá landi á lélegum plastfleka. Talið er að straumurinn út úr firð- inum liafi hrifið flékann með sér og drengimir fallið af honum á rekinu út fjörðinn. Beðið var um aðstoð lögreglu í Borgarnesi á þriðja tímanum. Var fyrst leitað í bænum til að ganga úr skugga um hvort drengjunum hefði dvalist þar við leik. Þegar sú leit bar ekki árangur vont fjörur gengnar en einnig án árangurs. Svo stóð. á að björgunarsveitir víðs vegar af vetanverðu landinu vom við samæfmgu í Borgarfirði og var þegar leitað til þeirra og víð- tæk leit skipulögð. Jafiiframt var leitað úr lofti á tveim einkaflugvél- um úr Borgarfirði. Fundust dren- gimir síðan látnir við flekann á sjötta tímanum eins og áður sagði. Drengimir hétu Vilberg Egilsson til heimilis að Þorsteinsgötu 5 og Bjarki Ólafsson til heimilis að Borg- arbraut 34. -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.