Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Qupperneq 6
6
DV. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1986.
Peningamarkaðurinn
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuöi á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun,*eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Utvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga, sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
SparisjóÖir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%,-með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almepna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar 5 sparisjóða eru
með innstæðu bundna óverðtryggða í 18 mán-
uði en á 14,5% nafnvöxtum og 15,2% árs-
ávöxtun. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnai\
firði, Kópavogi, Borgamesi og Sparisjóður
Reykjavíkur bjóða þessa reikninga.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
em 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, Qög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert:
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfm eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2 4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru „yerðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lifeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15^2
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa Iánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í apríl 1986 er 1425 stig
en var í mars 1428 stig og í febrúar 1396 og
janúar 1364 stig. Miðað er við grunninn 100
í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) ___________11.-20.04. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM ! |
SJA SÉRLISTA ' ! 1 1
iiiiílil
INNLÁN överotryggð
SPARISJÓDSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán.uppsögn 10.0 10,25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán. uppsögn 12.5 12,9 12.5 9.5 10.5 10.0 10.0 12.0 10.0
12mán. uppsogn 14.0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0
SPARNAÐUR - LANSRÉTTUR Sparað J-5mán. 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp.6mánogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
tEkkareikningar Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
innlán verdtryggð SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán.uppsögn 3.5 3.0 2.5 3.0 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
INNLÁN gengistryggð GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 7.5 6.5 7.0 6.5 7.5 7.0 7.0 6.5
Sterlingspund 11.5 11.5 10.5 11,0 11,5 11.5 11.5 11.5 10.5
Vestur-þýsk mörk 4.5 4.0 3.5 4.0 3.5 4.0 3.5 3.5 3.5
Danskar krónur 8.0 9.5 7.0 8.0 7.0 7.5 7.0 7.0 7.0
ÚTLÁN úverðtryggð ALMENNIR VlXLAR (forvextir) 15,25 15.25 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAVÍXLAR 3) (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kge
ALMENN SKULDABRtF 2) 15.5 15.5 15,5 15,5 15,5 15.5 15.5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20,0 kge 20,0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR yfirdrAttur 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
útlAn verðtryggð skuldabrEf Að 21/2 éri 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
útlAn til framleiðsuj
sjAneðanmAlsi)
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 9,25%, í Bandaríkjadollurum 9, 0%, í sterlingspundum 13,25%, í
vestur-þýskum mörkum 5,75%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilal-
ána er 2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum
og viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge,
hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóð-
unum.
Vióskipti Viðskipti Viðskipti
Kæran vegna bílaviðskiptanna:
Spurning hvort
þetta sé ekki
brot á okurlögum
- segir forstöðumaður bankaeftirlrtsins
„Þegar kaupandinn tekur á sig
verulega hærri kostnað í lánsvið-
skiptum en hæstu leyfilega vexti, eins
og í þessum bílaviðskiptum, þá hljóta
menn að spyrja sig hvort þetta sé
ekki brot á okurlögunum,“sagði
Þórður Ólafsson forstöðumaður
bankaeftirlitsins í samtali við DV. í
DV á föstudag var sagt frá kæru eins
aðila á hendur bílaumboðinu Sveini
Egilssyni hf. en þar er hægt að fá
keypta bíla með afborgunarskilmál-
um upp í allt að tvö ár. Ofaná
venjulega vexti er bætt svo svokall-
aðri kostnaðar og ábyrgðaþóknun
sem er 12,5% af eftirstöðvunum.
Kaupandinn greiðir því alls 27,5% í
vexti og kostnað af skuldabréfunum
hjá umboðinu á meðan hæstu lö-
gleyfðu vextir eru 15,5%. Sami háttur
er hafður á hjá fleiri bílaumboðum
og raunar hjá fleiri fyrirtækjum.
„Að svo miklu leyti sem ég hef haft
aðstöðu til að kynna mér framkomnar
upplýsingar í þessu máli þá tel ég að
sú aðferð að velta fjármagnskostnaði
seljanda vegna kaupanna yfir á kaup-
andann í formi „kostnaðar og ábyrgð-
arþóknunar" sé óheimil enda sé
þóknunin og áskildir vextir í slíkum
samningi hærri samanlagt en hæstu
leyfilegir vextir og þóknun í lánsvið-
skiptum í því formi sem lánið er veitt.
I þessu tilliti beri því að skoða ákvæði
4. og 1. málsgreinar 7 greinar laga
nr. 58 frá 1960 um bann við okri, drátt-
arvexti og fleira. Ef verðlagning
hlutarins er frjáls eða hækkað verð
rúmast innan heimilda verðlagsyrfir-
valda væri eðlilegra að hækka verð
hlutarins sem svarar til fjármagns-
kostnaðarins og kalla hlutina réttum
nöfnum. Hvort slík heimil er til stað-
ar i umræddu tilviki þori ég ekki að
tjá mig um. Annars heyrir þetta mál
frekar undir Verðlagsstofnun," sagði
Þórður Ólafsson forstöðumaður
bankaeftirlitsins.
DV hafði samband við Gísla ísleifs-
son lögfræðing hjá Verðlagsstofnun-
ar og sagði hann að beðið væri eftir
skriflegri kæru vegna þessa máls.
Gísli vildi ekki leggja neinn dóm á
hvort umrædd kostnaðar og ábyrgð-
arþóknun væri lögmæt. „Það er búið
að rugla svo mikið með þessa vexti
að það veit enginn hvað er rétt í þess-
um málum, ekki einu sinni Seðla-
bankinn,“sagði Gísli.
-EH
litil verðbólga
Vísitala framfærslukostnaðar mið-
að við verðlag í aprílbyrjun reyndist
vera 166,2 stig (febrúar 1984 = 100) eða
0,61% hærri en í marsbyrjun 1986,
samkvæmt tölum frá Hagstofu Is-
lands.
Af þessari hækkun stafa 0,3% af
hækkun húsnæðisliðs vísitölunar, 0,
1% stafa af hækkun á verði fatnaðar-
vöru, 0,1% af hækkun á verði land-
búnaðarafurða og 0,4% af hækkun á
verði ýmissa vöru- og þjónustuliða. Á
móti þessari hækkun kom 6,3% lækk-
un á verði bensínlítra sem olli 0,3%
lækkun vísitölunnar. Þá má geta þess
að lækkun á verði eggja olli rúmlega
0,2% lækkun vísitölunnar og vó upp
örlitlar verðhækkanir á matvörum,
öðrum en landbúnaðarvörum.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi-
tala framfærslukostnaðar hækkað
um 25,8%. Hækkun vísitölunnar um
0,61% á einum mánuði frá mars til
apríl svarar til 7,6% árshækkunar.
Undanfama þrjá mánuði hefur vísi-
talan hækkað um 1,33% og jafngildir
sú hækkun 5,4% verðbólgu á heilu
ári.
-EH
Bolli Héðinsson.
Bolli Héðins-
son fram-
kvæmda-
stjóri
hjá Lrf-Verði
Bolli Héðinsson hagfræðingur
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Líftryggingafélagsins Varðar
hf. Bolli var áður hagfræðingur
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins.
Bolli er viðskiptafræðingur frá
Háskóla íslands og var fréttamaður
hjá sjónvarpinu að námi loknu en
réðst síðan til Farmanna- og fiski-
mannasambandsins.
Bolli er fæddur 5. febrúar 1954.
Hann er kvæntur Ástu Thoroddsen
og eiga þau þrjú böm.
-EH
Flugleiðir í Þýskalandi:
LandkynningarskrHstofan flytur
Skrifstofa Flugleiða í Hamborg hef-
ur verið flutt yfir til Frankfurt am
Main. Heimilisfang skrifstofunnar er:
Islándisches Fremdenverkehrsamt
Brönnerstrasse 11, 2. stock
6000 Framkfurt/M. 1,
Sími 069-285583 og telex 411 857
Þann 1. apríl sl. tók Dieter Wendl-
er-Jóhannsson við starfi Ómars
Benediktssonar sem var forstöðu-
maður landkynningarskrifstofunnar í
Hamborg. Dieter hefur starfað hjá
Flugfélagi íslands og Flugleiðum hf.
í Frankfurt sl. 22 ár.
-EH