Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Side 20
DV. MÁNÍJDAGUR 14. APRÍL 1986. FIRMAKEPPNI Firmakeppni HK í innanhússknattspyrnu ferfram í íþróttahúsi Digraness 18., 19. og 20. apríl næstkom- andi. Leiktími 2x10 mín. Þátttökutilkynning tilkynnist Lárusi S. Ásgeirssyni í heimasíma 46324 og i vinnusíma 28777. i ' . LAUSAR STÖÐUR HiÁ REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. Forstöðumannastaða við skóladagheimilið Fornhaga 8. Umsóknarfrestur til 23. apríl. Fóstrustöður á eftirtalin heimili: Dagheimilin Austurborg, Suðurborg, Völvuborg, Múlaborg, Dyngjuborg og Hagaborg. Dagheimilin/leikskólana Hraunborg, Rofaborg og Ösp. Leikskólana Arnarborg, Fellaborg, Leikfell, Lækjaborg og Staðarborg. Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónar- fóstrur á skrifstofu dagvistar í síma 27222 og forstöðu- menn viðkomandi heimila. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 28. apríl. Nú hefjast námskeiðin í fallhlífarstökki aftur. Fyrsta flokks kennsla frá upphafi til enda. Einungis er kennt á fullkomnasta útbúnað sem völ er á. Allar nánari uppl. gefnar í síma 72732 milli kl. 18 og 20 virka daga. Stofnfundur hverfafélags í Grafarvogi Stofnfundur hverfafélags sjálfstæðismanna í Grafarvogi verður haldinn í sjálfstæðishúsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1, miðvikudaginn 16. apríl nk. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Stofnun hverfafélags í Grafarvogi 2. Lög félagsins samþykkt 3. Kjör stjórnar 4. Ræða Davíðs Oddssonar borgarstjóra íbúar í Grafarvogi eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í stofnun félagsins. Fulltrúaráð sj álfstæðisfélaganna í Reykjavík Ferrando (Viðar Gunnarsson) og liðsmenn Lúna greifa fagna sigri. II Trovatore, eða óperan ríka við Ingólfsstræti Óperan II Trovatore eftir Giuseppe Verdi við texta Salvatore Cammarano i sýningu íslensku óperunnar 11. april. Stjórnandi: Gerhard Deckert Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir. Leikmynd: Una Collins. Búningar: Una Collins/Hulda Kristin Magnúsdóttir. Lýsing: David Walters. Sýningarstjórn: Kristín S. Kristjánsdóttir/ Ingunn Ósk Sturludóttir. Konsertmeistari: Szymon Kuran. Kór og hljómsveit íslensku óperunnar. í aðalhlutverkum: Luna: Krístinn Sig- mundsson; Leonora: Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir; Azucena: Sigriður Ella Magnús- dóttir; Manrico: Garðar Cortes; Ferrando: Viðar Gunnarsson; Ines: Elisabet Waage; Ruiz: Stefán Guömundsson; Gamall si- gauni: Sigurður Þóröarson; Sendiboði; Snorri Wium. íslenska óperan frumsýndi þretL ánda verkefhi sitt, II Trovatore eftir Verdi, þann ellefta apríl. Þrettán virtist vera í þessu tilviki hin mesta happatala, að segja ef taka á yfir- leitt nokkurt mark á gildi talna í þessu sambandi. Efhi óperunnar hafa verið gerð svo ágæt skil í grein hér í blaðinu að ekki er þörf á að rekja það frekar. Ekki fer hjá þvi að maður beri sýningar á níðþröngu sviði íslensku óperunnar saman við sýningar á langtum stærri sviðum erlendra óperuhúsa. Og maður veltir þvi óhjákvæmilega fyrir sér hvemig sé hægt að koma viðamiklum sýn- ingum fyrir á þessu sviðskríli. Gjaman hefur sú lausn verið valin að færa leikinn á tvær hæðir til að gömýta plássið, en til þess var ekki gripið nú. Samt finnst mér engin sýning hafa rúmast þar jafhvel til þessa. Bárujárnsarkítektúr - hreint ekki óeðlilegur Hvemig í ósköpunum? spyr mað- ur, því sýningin er jafhfjölmenn og ýmsar fyrri sýningar íslensku óper- unnar. Galdurinn liggur eflaust í snilldarútfærslu sviðsmyndarinnar og þekkingu og útsjónarsemi leik- stjórans. Lýsingin var hér í raun hluti leikmyndarinnar og gerði sitt til að skapa áhrifin. Vitaskuld á maður í fyrstu bágt með að sjá hvað bárujámsarkítektúr hafi að gera á Spáni fyrir mörg hundmð árum. En ekki líður á löngu áður en manni stendur rétt á sama hvort nokkum tíma hafi verið til blikkhús á Spáni, fyrr eða síðar. Sviðið er rammi um óperuna, ýmist logagylltur eða dimmur og drungalegur eftir því sem við á. Eitt er víst að hann dregur ekki athygli áheyrandans frá söngnum Tónlist EYJÓLFUR MELSTED og leiknum, eins og stundum gerist með íburðarins sviðsmyndir í stóm ópemnum. Það gera búningamir ekki heldur. Þeir verka raunsannir, einfaldir og án alls prjáls en í þeim gerður hæfilegur munur milli ef- naðri fyrirmanna og sauðsvarts almúga. Einn soldáti sást þó veifa sverði með körfuhjöltum, eins og smíðuð vom í Toledo og hjá Wilkin- son eða Rosenthal, af vandaðri gerð en yfirmenn hans bám. En mikið út fyrir það náði ósamræmið ekki. Engan öðrum fremur Frammistaða söngvaranna var' með miklum ágætum. Venjulega tí- undar maður frammistöðu hvers og eins, að minnsta kosti þeirra sem í aðalhlutverkúnum em, en ég sé næsta lítinn tilgang með því nú. Það yrði einungis upptalning á sömu lýs- ingarorðum um alla og yrði þá einfaldast að setja matið upp í formi einkunnaspjalds. í raun er afar sjald- gæft að hitta á jafngott einsöngvara- lið og söng þessa sýningu. Út úr hópnum er tæpast hægt að draga neinn einstakan sem stóð sig öðrum betur. Einmitt það gerir þessa sýn- ingu einstaka. Annars staðar hefur maður séð og heyrt nokkrar stjöm- ur, sem leigðar em til svo og svo margra sýninga. Stjömumar belgja sig síðan sem mest þær mega á kostnað fastaliðs hússins og skilja nákvæmlega ekkert eftir þegar þær fara, nema ef vera skyldi dýra aug- lýsingu fyrir húsið út á við. En það er leitun að svo góðri sýningu, sem þessari II Trovatore uppfærslu, byggðri á fastaliði hússins eingöngu. Maríónettumeistari með lifandi brúður Kórinn og hljómsveitin vom af sama flokki og einsöngvaramir. Kórinn skilar ekki aðeins söngnum vel, heldur em framkoma hans og staðsetningar hans fúmlausari og markvissari en áður hefur sést í húsinu við Ingólfsstræti. Hljóm- sveitina hef ég heldur ekki heyrt spila jafhóhikað með fúllum krafti fýrr. Þó lék hún aldrei gróft og yfir- gnæfði ekki heldur. Kraftinn og góða frammistöðu allra, jafnt á sviði sem í gryfju, má sjálfsagt þakka að vemlegu leyti góðum undirbúningi. Þó held ég að það hefði aldrei skilað sér ef ekki hefði á stjómpalli staðið frábær stjómandi, Gerhaid Deckert, sem hélt öllum þráðum í sínum styrku höndum. Stundum er góðum óperustjómendum líkt við stjóm- endur strengbrúða. Gerhard Deckert er einmitt einn slíkur maríónettu- meistari, nema hvað brúðumar hans em lifandi. Yfir eða undir getu Til em þeir sem segja, þegar söngv- arar gera betur en almennt var við af þeim búist, að þeir hafi sungið yfir getu. Hvílík fjarstæða það er að halda slíku fram. Nær væri að segja að þeir hefðu í önnur skipti sungið undir sinni raunverulegu getu. En þetta kvöldið held ég að allir söngv- aramir hafi náð sínu besta. Enda var sýningin í einu orði sagt, frábær. Það óperuhús sem getur boðið upp á jafiifrábæra sýningu með fastaliði sínu, eða svo gott sem, í öllum hlut- verkum er ríkt, fyrir utan að vera tiltölulega sjaldgæft. Menn hafa kannski ekki gert sér grein fyrir því fyrr en nú hversu rík óperan við Ingólfestræti er. EM.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.