Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Blaðsíða 4
4
DV. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir
Söfnun Krabbameinsfélags íslands:
„Björtustu vonirem
20 milljón krónur“
- góða veðrið setti strik í reikninginn
„Þetta hefur gengið ljómandi vel.
Hins vegar hefur góða veðrið verið
okkar höfuðverkur. Margir hafa
notað það til útivistar og okkur
reiknast til að helmingur þeirra, sem
leitað var til á laugardaginn, hafi
verið að heiman. í dag erum við að
reyna að ná sambandi við þetta
fólk,“ sagði Árni Gunnarsson, ffam-
kvæmdastjóri söfnunarinnar sem
Krabbameinsfélag íslands stóð fyrir
nú um helgina, í viðtali við DV í gær.
Hann sagði að enn ættu eftir að
berast gíróseðlar og framlög frá fyr-
irtækjum. Einnig yrði haldið áfram
að taka á móti framlögum þessa
viku.
„Okkar björtustu vonir ganga út
á að það takist að safha 20 milljónum
króna. Við vitum þegar með nokk-
urri vissu að komnar eru inn 14 til
15 milljónir króna,“ sagði Ámi. Söfhunarstarf Krabbameinsfélagsins í fullum gangi, tekið við framlögum og allt skráð. Forseti Islands, Vigdís Finn-
bogadóttir, verndari söfnunarstarfsins, tók þátt i því sem sjálfboðaliði á laugardaginn.
Um 1700 sjálfboðaliðar tóku þátt
í söfhuninni. Ámi sagði að gefendur
væru allir af vilja gerðir. Algengast
væri að gefhar væru um 50 til 100
krónur en samt allt upp í 10 þúsund
krónur. Greinilegt væri þó að nokk-
uð erfitt væri hjá mörgum vegna
peningaleysis. íbúar í Mjóafirði gáfu
mest að meðaltali. Þeir gáfu samtals
15 þúsund krónur. Meðalframlag
íbúanna, sem eru 30, hefur því verið
500 krónur.
Söfnunarféð verður notað til að
efla hópskoðanir, einnig til að auka
rannsóknir og fræðslu- og upplýs-
ingastarfsemi.
-APH
Vigdfs Finnbogadóttir, forseti Islands, nælir barmmerki í einn þátttakanda söfnunarinnar.
DV-myndir KAE
Lögreglan
-áAkureyri
afram kven-
mannslaus
Akureyringar fá ekki að sjá
stúlkur klæddar lögreglubúningi á
ferð um götur bæjarins í sumar.
Fimm stúlkur sóttu um sumaraf-
leysingastörf hjá lögreglunni á
Akureyri en fengu ekki inni.
„Ég er ekki á móti kvenfólkinu,
en tel að kvenfólk geti ekki geng-
ið í öll störf lögreglumanna. Eg
vildi ekki hafa kvenmann við hlið
mér ef til átaka kæmi. Það yrði
slæmt að horfa upp á eða vita til
þess að kvenfólk væri slegið í and-
litið,“ sagði Erlingur Pálmason,
yfirlögregluþjónn á Akureyri.
Það starfa nú 30 lögregluþjónar
við löggæslu á Akureyri og Dal-
vík. Sjö þeirra hafa sagt upp
störfum. „Við emm með mikið af
nýliðum. Ég tel það best að nýlið-
amir séu af sama kyni. Eins og
staðan er í dag höfum við ekki
störf fyrir konur. Þeirra tími á
eflaust eftir að koma,“ sagði Er-
lingur. -SOS
Stórþing í
Digranesi
- aðalíþróttahús
Kopavogs einnig
raðstefnuholl
Lionshreyfingin hér á landi
heldur mndæmisþing sitt á þessu
ári í íjjróttahúsinu Digranesi í
Kópavogi. Þingið verður í vor og
þar munu nokkur hundmð manns
koma saman til þinghalds. Kiwan-
ishreyfingin hefur nú sótt um
afnot af húsinu til sams konar
þinghalds á næsta ári. Þeir vilja
fá Digranesskólann með.
Digranas er eitt af stærstu
íþróttahúsum á landinu og byggt
með það fyrir augum að þjóna fjöl-
þættri starfsemi, sem er raunar
ekki öll hafin. Rétt áður en það
var fullgert var haldinn í húsinu
Norrænn byggingardagur, sem
var meiriháttar viðburður. Þá
hafa verið haldnar stórar innan-
bæjarsamkomur í íþróttahúsinu.
HERB
í dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari
Hver er maðurinn?
Kaffibaunirnar ætla að verða þeim
dýrkeyptar, forstjómm Sambands-
ins. Nú er búið að þingfesta ákæmna
á hendur helstu forstjómm SÍS og
máttu þeir bíða eins og hveijir aðrir
sakborningar í biðsal dómsms, eftir
að vera kallaðir inn á færibandi til
að hlusta á sakargiftfrnar.
Erlendur Einarsson Iét taka af sér
mynd við þetta sögulega tækifæri.
Það var vel við hæfi. Maðurinn er
vanur því að stilla sér upp fyrir ljós-
myndara á tyllidögum Sambandsins
og þá í forstjórastellingum að hætti
konungborinna. Eins og alþjóð veit
er Erlendur Einarsson kominn af
konungakyni á báða leggi og hefur
gefið út ættartré sitt af því tilefni.
Hvað forfeðumir segja þegar þeir sjá
afkomandann dreginn fyrir rétt eins
og hvem annan ótíndan glæpamann
og svara til saka fyrir fjársvik,
skjalafals og gjaldeyrisbrot er annað
mál. Ríkharður þriðji mun þó ekki
kippa sér upp við það.
Þegar stór mál og alvarleg em sótt
og varin í útlöndum, þar sem sak-
borningar em af misjöfnu sauða-
húsi, mafiuforingjar, höfuðpaurar í
bófaflokkum ellegar byssubráðir of-
stopamenn, em þeir jafnan leiddir
inn í réttarsalinn með hauspoka.
Kemur það í veg fyrir að ljósmyndar-
ar geti myndað þá eða almenningur
borið kennsl á þá og gert þeim miska.
Kaffibaunamálið er að sigla inn í
sama farveg.
Auðvitað er það fjarri lagi að for-
stjórar Sambandsins séu bendlaðir
við refsiverð athæfi í líkingu við
mafluna eða gangsterana i villta
vestrinu. Meint brot þeirra fyrr-
nefndu em sárasaklaus í saman-
burði við AlCapone, Baby Face eða
aðra fræga afbrotamenn. Samt þótti
Erlendi nauðsynlegt að fara að hætti
erlendra bófaforingja og skýla sér
með plastmöppu þegar ljósmyndara
bar að við þingfestinguna. Ekki er
leiðum að likjast.
Ekki er því að neita að gaman hefði
verið að sjá Erlend með hauspoka
að hætti útlendra, en svona hafa
tækniframfarirnar farið með okkur,
að nú em hauspokarnir ekki lengur
í tísku og frambærilegustu menn
verða að notast við plastmöppur.
Sambandsforstjóramir halda fram
sakleysi sínu i þessu kaffibaunamáli.
Þeir segja að þessar tvö hundmð
milljónir, eða hvað það nú var, sem
fer á milli mála, hafi nánast verið
millifærsluatriði frá einu Sambands-
fyrirtæki til annars. Þeir skilja ekki
hvers vegna ákæmvaldið og fjöl-
miðlamir em að skipta sér af máli
sem ekki kemur neinum við nema
þeim sjálfum. Þeir segja að þetta séu
algildir viðskiptahættir - að milli-
færa tvö hundmð milljónir með þeim
hætti sem þeir gerðu og telja þetta
ofsóknir á hendur sér.
Ekki skulu þessar fullyrðingar
rengdar, enda er Dagfari lítill bis-
nessmaður og hefur ekki vit á
upphæðum sem þessum. En ef þetta
er rétt með sakleysið og millifærsl-
urnar em góðar og gildar í viðskipt-
um Sambandsins þá er það sennilega
skýringin á því hvers vegna Erlendur
lætur mynda sig með með plast-
möppu fyrir andlitinu. Hann kann
ekki við að auglýsa sakleysi sitt.
Erlendur fer bráðum að hætta hjá
Sambandinu og nýr maður að taka
við. Gamli forstjórinn vill ekki vera
í sviðsljósinu og stela glæpnum frá
nýja forstjóranum. Þeir eru ekki
vanir því hjá Sambandinu að stela
glæpunum hver frá öðrum.
Hins vegar er þessi hæverska hjá
Erlendi óþörf. Erlendur þekkir alla
og allir þekkja Erlend og þar að auki
fer hann bráðum að hætta hjá SÍS
og þarf ekkert að fara huldu höfði
úr þessu. Það hefur áreiðanlega eng-
inn áhuga á að ná sér niðri á Erlendi
Einarssyni, enda þótt nokkrar kaffi-
baunir hafi verið millifærðar hjá
Sambandinu. Nema að þetta hafi
verið myndataka fyrir ættartréð!
Maður veit aldrei upp á hverju þetta
kóngafólk tekur.
Á íslandi hafa verið gefnar út bæk-
ur sem heita: Hver er maðurinn?
Myndin af Erlendi Einarssyni með
plastmöppuna fyrir andlitinu er upp-
lögð i þá bók. Það verður dýrkeypt
mynd, alveg eins og réttarhöldin
munu reynast dýrkeypt. Já, það má
með sanni segja, þetta verða dýr-
keyptar kaffibaunir.
Dagfari