Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Blaðsíða 10
10 DV. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1986.0 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Nú virðist sem endar séu að ná saman i kjaradeilunum í Noregi en töluvert á annað hundrað þúsund manns hafa verið þar frá vinnu að undanfömu, Óréttlæti? Þessi hótel geta haldið áfram starfrækslu sinni vegna starfsfólks utan verkalýðsfélaganna og nú þykir þeim sem eru í verkbanni ekki réttlátt að þetta fólk, sem gref- ur undan samstöðu verkalýðsfélag- anna, og jafnvel græðir á þeim, skuli seinna njóta góðs af þeim kauptöxt- um er samið verður um án þess að hafa lagt nokkuð af mörkum í stað- inn. En mestur er úlfaþyturinn meðal atvinnurekenda. Margir einstakir vinnuveitendur eru mjög óánægðir með samtök sín og þær aðgerðir er þau standa nú fyrir. Þeir telja þær illa skipulagðar og koma rangt niður á fólki. Sumir hafa hótað að segja sig úr samtök- um sínum og aðrir segjast munu virða aðgerðir félaga sinna að vett- ugi vegna þess að það sé spurning- um lif eða dauða fyrir þeirra fyrirtæki. En þegar slíkar aðgerðir hafa einu sinni hafist verður ekki aftur snúið svo auðveldlega nema með sam- þykki beggja deiluaðila. Umsóknir um undanþágur Nú streyma inn umsóknir um undanþágur frá verkbanninu sem bæði fulltrúar vinnuveitenda og launþega þurfa að samþykkja til þess að þær verði veittar. Gott dæmi um þetta var þegar útgáfa tveggja stærstu dagblaða landsins stöðvaðist vegna þess að vélvirkjar við prentsmiðjumar voru útilokaðir frá vinnu sinni. Vinnu- veitendasambandið veitti undan- Norsku vinnudeiiurnar: Lausn í sjónmáli Björg Eva Erlendsdóttir, fréttaritari DV í Osló: Óvæntar breytingar urðu á gangi mála í norsku vinnudeilunum um dieigina. í gærkvöld var tilkynnt að deilu- aðilar hefðu sest að samningaborð- inu á ný eftir viku verkbann sem flestir höfðu búist við að yrði miklu lengra. Bjöm Haug ríkissáttasemjari sagði í útvarpi í morgun að hann myndi nú leggja fram drög að samn- ingsuppkasti og að lausn deilunnar væri nú í sjónmáli. Bjöm Haug taldi jafnvel líkiegt að vinnustöðvuninni yrði aflétt um hádegisbil í dag. Það lítur út fyrir að launþegar fari betur út úr þessum kjarascimningum en þeir bjuggust við. I viðtali í morgun sagði einn af fulltrúum verkamannanna að laun- þegar væru sigurvegarar í deilunni og atvinnurekendur yrðu að sætta sig við langtum hærri kröfúr því baráttuaðferð þeirra hefði mistekist. Fyrsta verkbannið í rúma hálfa öld Verkbannið kostar þjóðfélagið ótrúlegar upphæðir og getur orðið langvarandi. Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 1931 að samtök atvinnurekenda hafa gripið til þessa ráðs. Þá mis- tókust aðgerðimar svo hrapallega að flestir héldu að baráttuaðferðin heyrði sögunni til og yrði aldrei notuð aftur. Nú ætla atvinnurekendur aftur að sýna mátt sinn og megin og kenna launþegum hverjir það eru sem ráða ferðinni í norsku atvinnu- lífi. Samningatilraunimar, sem eru undanfari þessa máls, reyndust al- gerlega árangurslausar. Ríkissátta- semjarinn Bjöm Haug var svartsýnn á samningana frá upp- hafi. Svartsýni hans reyndist eiga fullan rétt á sér því ekki tókst einu- sinni að fá aðilana til að semja um samningaaðferð hvað þá að nokkr- ar kröfúr launþega yrðu ræddar. í þessum samningum ætluðu launþegar að leggja höfuðáherslu á 37 og hálfs tíma vinnuviku. Þetta voru atvinnurekendur tilbúnir til að ræða en með því skilyrði að lág- launatrygging, er hefur tryggt að - þeir lægst launuðu yrðu ekki út- undan í neiiium samningum, yrði felld niður. Þessi láglaunatrygging felur í sér að engir verkamanna- taxtar eru lægri en svo að þeir nemi 85 prósentum af meðallaunum iðn- verkamanns. Dæmigerð kvennastörf Þetta hefur oft komið sér vel fyrir fólk í þjónustustörfum og fleiri störfum sem oft em dæmigerð kvennastörf. Fulltrúar launþega segja að þessi trygging sé eitt af því mikilvægasta sem áunnist hefúr í nokkrum kjara- samningum og það komi því ekki til greina að breyta henni eða fella hana niður. En þetta vom skilyrði atvinnu- rekenda, þar við sat og engar umræður gátu orðið um frekari samningsatriði. Mörgum þykir undarlegt að kjör hinna lægst launuðu skyldu verða aðalþrætueplið í velferðarþjóðfé- laginu Noregi og að ráðist skuli haifa verið á gömul réttindi þeirra verst settu í stað þess að herða ólina annars staðar. Verkamannaflokkurinn kallar þetta árás á velferðarþjóðfélagið og varar ríkisstjómina við því að grípa inn í deilurnar með því að setja lög á deiluaðila. Káre Willoch forsætisráðherra segir að stjórnin hafi ekki hugann við áform um að grípa inn í vinnu- deilumar með lagasetningu að svo stöddu. Það er augljóslega mikil pólitík í málinu og telja menn að stöðvun vinnudeilnanna gæti haft í for með sér alvarlegar afleiðingar fýrir ríkisstjómina á meðan stjóm- arandstaðan er andsnúin slíku. Ekki búist við aðgerðum rík- isstjórnar Þess vegna búast menn við að rík- isstjómi grípi ekki til neinna aðgerða fyrr en áhrifin af vinnu- stöðvuninni séu orðin það alvarleg fyrir þjóðfélagið að engum þyki ráð- legt að bíða lengur og traustur meirihluti til staðar á þinginu fyrir slíkum aðgerðum. Enginn vill spá neinu um hversu lengi þetta ástand getur haldist. Núna em hundrað og tvö þúsund manns útilokuð frá vinnu sinni og við það bætist að yfir tuttugu þús- und manns bafa verið send heim vegna þess að fyrirtæki stöðvast af völdum verkfallsins. Búist er við að fleiri bætist þar við á næstu dögum. En samstaða atvinnurekenda er ekki eins traust og margir vilja halda. Sumir atvinnurekendur hafa fram að þessu einskis virt ákvörðun vinnuveitendasambandsins og halda áfram rekstri fyrirtækja sinna, oft á vafasaman hátt með því að láta starfsfólk utan verkalýðs- félaganna vinna verk sitt. Þetta ástand á þó fyrst og fremst við um hótelrekstur. Mörg hótel er samkvæmt aðgerðunum hefðu átt að loka hafa ekki gert það. Hefúr slíkt vakið mikla óánægju bæði meðal atvinnurekenda svo og á meðal þess starfsfólks þeirra hótela er orðið hefur að loka vegna ástandsins. þágu sina en fulltrúar launþega neituðu og geta því blöðin ekki komið út. Þetta finnst blaðaútgefendum lé- leg skipulagning af hálfu vinnuveit- enda og blöðin bera sig aumlega vegna þess að í viku hverri tapa þau milljónum og keppinautar þeirra á hinum blöðunum auka upplag sitt um allt að 40 prósent og kætast mjög. Eftir það sem á undan er gengið er trúlegt að vinnuveitendasam- bandið hugsi sig tvisvar um áður en aftur verður farið út í svona harðar aðgerðir. '1 Norsku borpallarnir á olíusvæðunum standa nú nánast mannlausir og bíða þess að lausn finnist í kjaradeilu verkalýðsfélaganna við vinnuveitendur. Norskur olíuiðnaður tapar hundruðum milljóna króna á dag vegna verk- fallsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.