Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Blaðsíða 42
42
DV. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
V
s
Ólyginn
sagði...
Kim
Basinger
kom 16 ára gömul til New
York með lúna ferðatösku,
biblíu og draum um frægð.
Siðan eru liðin 14 ár; ferðata-
skan góða komin á haugana,
biblían rykfellur óhreyfð ein-
hverstaðar í glatkistunni en
draumurinn um frægðina hef-
ur ræst. Hún hefur stótt af festu
og öryggi á toppinn. Fyrst
vann hún sem fyrirsæta. Það-
an lá leiðin á sviðið og nú
hefur henni hlotnast sá heiður
að leika á móti Richard Gere
í næstu mynd hans.
Mick
Jagger
er að gefast upp á félaga sín-
um Keith Richards. Deilur
þeirra rista nú svo djúpt að
óttast er um framtíð Rolling
Stones. Konur þeirra eru einn-
ig komnar í hár saman. Deilan
snýst um það að Richards vill
ólmur fara í tónleikaferð til að
viðhalda imynd þessarar
langlífustu hljómsveitar rokks-
ins. Vandinn er bara sá að
Jagger mennir ekki að standa
i þessum þeytingi öllu lengur.
Björn
Borg
hugsar nú um það eitt að nafn
hans lifi áfram þótt sjtarna
hans hnígi til viöar eftir aö
hann hefur yfirgefiö tennisvel-
lina fyrir fullt og fast. Nýverið
var erfinginn skýrður og hon-
um gefið nafnið Robin-Björn
Borg. Gamli Björn vonast til
aö þegar tímar líða þá verði
sá stutti ekki siður liötækur
meö tennisspaöann en hann
var á velmektardögum sinum.
Við þurfum nú ekki að bíða
nema í svo sem tvo áratugi til
aö sjá hvort kappanum veröur
að ósk sinni.
Frá Gizuri í. Helgasyni, Zurich:
Eftir að gert var heyrinkunnugt um trúlofun þeirra Söru og Andrews
prins hefur líf ungrar lögfræðistúdínu, Michelle McGaugh (25 ára), gjör-
breyst.
Hún er nefnilega svo keimlík Söru í útliti að fólk stoppar hana á götum
úti, biður um eiginhandaráritanir og tekur ljósmyndir í gríð og erg.
Vinir mínir nefna mig í dag aldrei annað en Söru eða Fergie, segir
Michelle - en væri ég í raun og veru Sara þá myndi ég klæða mig miklu
betur en ég hefi nú ráð á.“
Hver veit nema snótin geti gert sér pening úr þessu öllu saman og far-
ið að klæða sig betur.
Dýrin eru ekki sein á sér að brölta á fætur þegar þau eru einu sinni
komin úr móðurkviði, en mannfólkið getur líka verið fljótt upp á lag-
ið. Hún Súsanna litla Gunnarsdóttir, eða Sússí eins og hún var kölluð
í gamla daga, var ekki nema þriggja mánaða þegar hún gat staðið
bísperrt í lófa stjúpa sín, Þorgeirs Jónssonar. En það gekk að vísu
ekki átakalaust, þvi atriðið krafðist mikilla æfinga og var byrjað strax
eftir fæðingu. Nú er Sússí orðin stór og myndarleg kona og eftir því
sem næst verður komist ávallt í mjög góðu jafnvægi; lc;l>
Ursi (Ursúla) Andress
deildi einni sæng
með Bardot og
Roger Vadim
í heila viku
Frá Gizuri í. Helgasyni, Zurich:
Hin svissneska fegurðar- og
kvikmyndastjarna Úrsúla Andr-
ess, 50 ára að aldri, svaf í heila
viku í kompaníi með Brigittu
Bardot og þáverandi eiginmanni
hennar, leikstjóranum Roger
Vadim. Þessu er haldið fram af
leikstjóranum sjálfum í bók sem
hann helgar fyrrverandi eigin-
konum sínum, Brigittu Bardot,
Jane Fonda og Chaterine Dene-
uve.
Roger Vadim, sem er 58 ára,
lætur hugann reika til ákveðins
tíma í Rómaborg þar sem þau
hjónin, Brigitta og hann, höfðu
rekist á Úrsúlu og hún faiið þess
á leit við hann að fá að dveljast
með honum um hríð.
Sagði Bardot við bón hennar
að henni væri vissulega guðvel-
komið að dveljast með þeim en
því miður hefðu þau aðeins eitt
rúm en það væri nægjanlega stórt
fyrir þau öll.
Roger Vadim skrifar síðan: „Á
þennan hátt deildi ég einni sæng
með Úrsúlu Andress og Brigittu
Bardot í heila viku.“ Hann heldur
áfram: „Við stóðum ekki í neinu
ástarsambandi þessa viku, ég
daðraði ekki einu sinni við
hana.“
Bók Vadims, sem nú alveg ný-
verið kom á markað í Bandaríkj-
unum, hefur farið svo fyrir
brjóstið á tveim fyrrverandi eig-
inkonum hans, þeim Brigittu
Bardot og Jane Fonda, að þær
hafa ákveðið að höfða mál gegn
honum. Það munu aðallega vera
svefnherbergislýsingarnar sem
fara svo í taugamar á dömunum.
Vadim skrifar m.a. um Brigittu
Bardot: Við héldum okkur í
svefnherberginu svo mánuðum
skipti - en um Jane Fonda segir
hann: „Þegar ég hitti hana í
fyrsta skipti varð ég gjörsamlega
náttúrulaus." Ástæðan - hún var
sífellt að tuða á því að þau þyrftu
að koma sér í rúmið.
Ursi („okkar eina og sanna?“) Andress - nakin og yndisleg, slapp-
ar af í rúminu sínu.