Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Síða 8
DV. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1986.
BUN
VERKTAKAR -
SVEITARFÉLÖG
GÖTUSÓPARI sem tengja má við flestar
gerðir dráttarvéla.
Fáanlegur með 200 lítra vatnstank og safnara. Til af-
greiðslu með stuttum fyrirvara, sýnishorn á staðn-
um.
Sundaborg7. Sími 82530.
a
ÞRIDJUDAGUR
I5.APRÍL
HÚSAVÍK KL. 12-15
HÚSAVÍKUR BÍÓ
SIGLUFJÖRÐUR KL. 19-21
BENSÍNSTÖÐIN
MIDVIKUDAGUR
16. APRÍL
BLÖNDUÓS KL. 11-13
BLÖNDUSKÁLI
HVAMMSTANGI KL. 16-19
KAUPFÉLAGIÐ
FIMMTUDAGUR
17. APRÍL
ÍSAFJÖRÐUR KL. 16-20
BENSÍNSTÖÐ ESSO
Utlönd
Utlönd
Útlönd
Mandela hót■
ar ofbeldi til
aðnávöldum
Winnie Mandela, leiðtogi blakkra
þjóðemissinna í Suður-Afnku, sagði í
gær, að blökkumenn mundu losa sig
undan stjóm hvítra á þessu ári. Gaf
hún í skyn að jafiivel yrði gripið til
ofbeldis til þess að koma því í kring.
Mandela flutti ræður í þrem
blökkumannahverfum við Jóhannes-
arborg í gær og sagði við mikinn
fögnuð áheyrenda: „1 sameiningu,
hönd í hönd með eldspýtum okkar og
hálsmenum skulum við frelsa landið.“
„Hálsmenið" kalla blökkumenn þá
grimmilegu aðferð, sem höfð hefur
verið við að taka af lífi blökkumenn,
er taldir em sýna lögregluyfirvöldum
samvinnu. Bíldekk vætt í bensíni er
sett utan um háls fómardýrsins og
eldur borinn að. Hefur múgurinn
nokkrum sinnum skemmt sér við slík
morð.
Winnie Mandela, sem er eiginkona
hins fangelsaða blökkumannaleiðtoga
Nelson Mandela, sagði. „Við erum nú
komin á mjög alvarlegt stig í baráttu
okkar. Tími ræðuhalda og rökræðna
er á enda.“ Og einnig: „Á árinu 1986
skulu menn sjá frelsun hins kúgaða
meirihluta (blökkumanna)."
Mikinn fjölda blökkumanna dreif að
í Soweto, stærsta blökkumannahverf-
inu við Jóhannesarborg, til þess að
11 íV-WJK/MWjI
hlýða á ræðu Mandela. og eins í hinum
hverfunum. Gerður var góður rómur
að máli Mandela, þegar hún sagði
meðal annars: „Við blökkumenn störf-
um í eldhúsi hvíta manns, við ölum
upp böm hans og hefðum getað drepið
þau hvenær sem við vildum."
Um helgina létu þrír blökkumenn
lífið, þegar brennuvargar kveiktu í
kofaþyrpinu í Mooiplaas-hverfinu í
Höfðahverfi. Lögreglan skaut til bana
ungmenn í Katlehong við Jóhannesar-
borg, eftir að varðflokkur hafði verið
grýttur. Hafa þá alls 1450 manns verið
drepnir á síðustu 26 mánuðum, síðan
þessi óeirðaalda hófst.
Gaddafy hótar Evrópu
Pétur Pétursson, fréttaritari DV í Barcelona:
Bettino Craxi, forsætisráðherra Ítalíu og Felipe Gonzales forsætisráðherra Spánar fóm þess á leit fyrir helgi við
utanríkisráðherra Efnahagsbandalagsins að boðað yrði til neyðarfundar í bandalaginu vegna aukinnar spennu á
Miðjarðarhafi.
Tilefnið var að sjötti floti Bandaríkjamanna hélt úr spænskum og ítölskum höfhum á leið sinni til stranda Líbýu.
Gaddafy Líbýuleiðtogi hefur kallað allar borgir í Suður-Evrópu skotmörk frá og með siðasta föstudegi, komi til
átaka við Bandaríkin þar sem ríki Atlantshafsbandalagsins standi á bak við sjötta flotann og auðveldi undirbúning
hans.
Valda þessi ummæli hans mönnum talsverðum áhyggjum hér og hafa menn þá i huga hótanir hans um að breyta
Miðjarðarhafinu í eldhaf.
Spænski sendiherrann í Tripóli hefur verið kallaður heim til skrafs og ráðagerða.
Upphaflega var áætlað að hafa fundinn á miðvikudag en ráðherrar hafa nú flýtt honum til dagsins í dag vegna
þeirrar spennu í samskiptum Bandaríkjanna og Líbýu sem enn er yfirvofandi.
Bandaríkin leggja allt kapp á að fá samþykki og aðstoð Evrópuþjóða til að aðstoða við sameiginlegar refsiaðgerð-
ir gegn Líbýustjóm og telja stjómmálaskýrendur þessa nýju herferð sjötta flotans knýja Spán og ítaliu til aðgerða.
HAUSTKOSNINGAR Á SPÁNI
Pétur Pétursson, fréttaritari
DV í Barcelona:
Miðstjóm spænska sósíalistaflokks-
ins ákvað það á fúndi sínum síðastlið-
inn föstudag að fastsetja komandi
þingkosningar í október næstkom-
andi.
Áður höfðu verið á lofti raddir hér
á Spáni um að þeim yrði flýtt og haldn-
ar í júní, en þá verða fylkisstjómar-
kosningar í Andalúsíu.
Hópar innan sósíalistaflokksins hafa
verið mjög hlynntir því að flýta kosn-
ingunum vegna sterkrar stöðu hans
og vegna spamaðar er af því hlytist.
Það myndi spara stjómmálaflokk-
unum hér yfir 300 miljón peseta að
samhæfa kosningabaráttu þingkosn-
inganna fylkiskosningunum í Anda-
lúsíu.
Aðaltilefhi fundarins var þó að víta
félaga úr vinstri armi flokksins fyrir
óhlýðni og brot á flokksaga en þeir
höfðu sett sig upp á móti ríkisstjóm-
inni í baráttu hennar fyrir aðild
Spánar að Atlantshafebandalaginu.
Ekki vom þó ákveðnar beinar refe-
ingar, heldur lá það í loftinu eftir
fundinn að hinir seku mættu alveg
segja af sér þeim trúnaðarstörfúm er
þeir hafa gegnt fyrir flokkinn.
Á laugardag lýstu hinir 21 fúlltrúar
vinstri arms sósíalistaflokksins því yffr
að enginn myndi segj a af sér úr þeirra
röðum vegna grundvallarástæðna.