Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Síða 13
DV. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1986.
13
Neytendur
Neytenaur
Neytendur
m |
Á að þvinga neytendur til
að kaupa dýrari vörur?
UtSÖIu-
mjólk í
grunn-
skóla og
barna-
heimili
Þessa viku er mjólk seld á sérstöku
kynningarverði í grunnskólum lands-
ins. Mjólkurpelinn kostar aðeins 3
kr. eða 15 kr. fyrir alla vikuna. Fram-
haldið verður lægra verð en áður á
mjólkinni, sem mun kosta tæpar 6 kr.
feman til skólanna.
„Við erum nú að kanna þörf á kæli-
geymslum fyrir mjólk og aðra aðstöðu
á bamaheimilum og dagvistarstofn-
unum borgarinnar, en nú eru kæli-
geymslur í öllum grunnskólum
borgarinnar sem Mjólkursamsalan
hefur séð um að koma fyrir,“ sagði
Oddur Helgason, sölustjóri Mjólkur-
samsölunnar, í samtali við DV.
Hann sagði að ákveðið hefði verið
að ríkissjóður greiddi mjólkina niður
um 3 kr. hvem pela fyrir skólabömin.
Heildsöluverð á mjólkurpela frá
Mjólkursamsölunni er 8,91 kr. þannig
að verð eftir niðurgreiðslu er 5,91 kr.
- Fyrir nokkm var talað um að
greiða niður kókómjólk til skóla-
bama, en í kókómjólk er mjög mikill
sykur, var hætt við þá áætlun?
„Já, það var hætt við það í bili, í
það minnsta. Það er rétt að það er
nokkuð mikill sykur í kókómjólk og
hann er ekki til bóta, en það er samt
betra fyrir skólaböm að fá kókó-
mjólk, þrátt fyrir sykurinn, vegna
þess að í kókómjólk em öll önnur
hollustuefni mjólkurinnar," sagði
Oddur.
Hann sagði að sums staðar gæfu
fyrirtæki skólabömunum mjólk í
heila viku í senn. Nemendur í gmnn-
skólum landsins em um 40 þúsund
talsins, þannig að þama er um tals-
vert mikla neyslu að ræða, eða 40
þúsund pelafemur alla kennsludaga
ársins.
-A.Bj.
Innlent grænmeti ýtir því innflutta
sjálfkrafa af markaðinum þannig að
bað er óþai'fi að hækka verðið á því
innflutta til að „vernda“ það inn-
lenda. DV-mynd PK
„Ef litið er á nýjustu verðkönnun
Verðlagsstofnunar þar sem borið er
saman verð hinna ýmsu vörumerkja
sést að hægt er að fá innfluttar
franskar kartöflur ódýrastar á um 50
kr. kg, en innlendu kartöflumar eru
nær þrisvar sinnum dýrari. Ef verðið
á erlendu kartöflunum hækkar er
verið að þvinga neytendur til þess að
kaupa dýrari vöm,“ sagði Jón Magn-
ússon, lögmaður og fyrrverandi
formaður Neytendasamtakanna, í
samtali við neytendasíðu DV. Jón sit-
ur nú sem varaþingmaður á Alþingi,
kom einmitt inn daginn sem frumvarp
landbúnaðarráðherra um nýjar álög-
ur á innfluttar búvörur, eins og
grænmeti og kartöflur, var lagt fram.
„Þetta er gert undir því yfirskini
að verið sé að veita kartöfluverk-
smiðjunum í Þykkvabæ og á Sval-
barðseyri vemd. Það er auðvitað gott
og blessað að veita aðilum vernd en
spuming hve langt á að ganga. Ef á
að gera það með þessum gifurlegu
tollaálögum, sem þarna eiga að koma,
vaknar sú spurning hvort þetta sé
ekki óeðlilegt gagnvart neytendum.
Þessir aðilar selja sjálfum sér kartöfl-
ur sem er langt yfir markaðsverði í
heiminum og ætla síðan að ná söl-
unni með því að leggja verndartolla
á innflutning.
Þarna er líka um einkafyrirtæki að
ræða og við höfum ekki hugmynd um
hver staðan er hjá einkafyrirtækjum.
Það er ekki góð regla að viðskiptaað-
ili geti fengið slíka vernd hjá ríkinu,"
sagði Jón.
I viðtölum við Þorstein Pálsson
fiármálaráðherra og Ólaf G. Einars-
son, formann þingflokks Sjálfstæðis-
FRANSKAR KARTÖFLUR - verð á 1 kg
Busser, 2,5 kg 50,00
Vriezo, 2,5 kg 60,80
Farm Frites-Oven ready, 5 kg 71,80
Valley Farms, 2,27 kg 77,79
Lutosa,1 kg 79,35
Valley Farms, 1 kg 83,93
Farm Frites-Oven ready, 1804 g 89,50
Farm Frites-Oven ready, 907 g 91,88
McCain, 1 kg 130,33
Þykkvabæjar, 1500 g 140,52
Fransman, 1500 g 143,54
Þykkvabæjar, 700 g 146,12
Fransman, 700 g 146,77
Samkvæmt könnun Verðlagsstofnunar eru sex erlend vörumerki í frönskum
kartöflum á markaðinum hér með þessum tveimur innlendu. Þær innlendu
eru nærri þrisvar sinnum dýrari en þær erlendu. Nú skal þvinga fólk til að
kaupa þær innlendu.
Jón Magnússon, lögmaður og fyrrver-
andi formaður Neytendasamtakanna.
flokksins, hefur komið fram að
frumvarpinu verði breytt á þann veg
að nýju álögumar nái aðeins til unn-
inna kartaflna. Nú er frumvarpið
komið til landbúnaðarnefndar, en for-
maður hennar er Egill Jónsson (S).
Loks má geta þess að Jón Magnús-
son sagði að þær landbúnaðarvörur
sem em niðurgreiddar i nágranna-
löndum okkar, löndum Efnahags-
bandalagsins og Bandaríkjunum
væru aðallega mjólk, kjötvörur og
fóðurkorn og annað i þeim dúr. Það
væri af og frá að grænmeti væri nið-
urgreitt eins og látið væri i veðri
vaka í greinargerð með frumvarpinu.
Þá er rétt að taka fram að innflutn-
ingur á erlendu grænmeti fellur niður
af sjálfu sér þegar sama innlenda
framleiðslan er fyrir hendi. Þannig
er það aðeins fyrirsláttur að „vernda"
þurfi innlenda framleiðslu með því
að setja tolla á innflutta grænmetið.
Nýlega lækkaði grænmetið um 15-
20% í verði þegar tollar á því voru
lækkaðir.
-A.Bj.
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTAN
Austurstræti 17, III. hæð,
s.26278
Til sölu eru nú þegar eftir-
talin fyrirtæki:
Vinveitingastaðir, barnafataverslanir,
vefnaðarvöruverslanir, fataverslanir,
videoleigur, sjoppur, kjörbúðir með
kvöldsöluleyfi, kjötverslanir, matvöru-
verslanir með videoleigum, bygginga-
vöruverslanir, heildsölur margs konar.
fiskbúð, bifreiðaverkstæði, bilamálun,
bjórpubb, pylsuvagn, prentsmiðjur,
kjötvinnsla, harðfiskverkun og -sala,
ryðvarnarskáli, matvöruverslun með
kjötvinnslu, úskast strax, bakari,
snyrtistofa, þungavinnuvélar: t.d. jarð-
ýtur, payloader, o.fl.,
Vegna mikillar eftirspurnar getum við
bætt við okkur ýmsum fyrirtækjum á
söluskrá.
Opið aila daga frá kl. 9
til 17 og laugardaga frá
kl. 9 til 16.
Sölumenn:
Magnús Sigurjónsson hs. 79542
Birgir Þorvaldsson hs. 15299.
BILALflGA
Útibú i kringum landið
REYKJAVÍK:.91-31815/686915
AKUREYRI:...96-21715/23515
BORGARNES:.........93-7618
BLÖNDUÓS:.....95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:.95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.....96-71489
HÚSAVIK:....96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:.......97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..97-8303
interRerrt
Þorskalýsi eða ufsalysi fra Lysi hf.
. heilsunnar vegna
ARGUS«D
LYSI
Lýsihf. Grandavegi42, Reykjavík.