Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Blaðsíða 18
18 DV. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1986. KENNARAR! Vegna seinkunar sem varð á útsendingu sérrits KÍ, þar sem kynnt voru tilboð um utanferðir á vegum félagsins, tilkynnist hér með að hægt verður að senda inn umsóknir út þessa viku, til 19. apríl. Orlofsnefnd Kennarasambands íslands. Rafverktakar - rafiðnaðarmenn á orkuveitusvæði Rafmagnsveitu Reykjavíkur: Munið kynningarfundinn að Hótel Esju þriðjudags- kvöld kl. 20.00. RER rafmagnseftirl.it ríkisins Rakarastofan Klapparstíg Hárgre'iðslustofan Klapparstíg Sími12725 rímapantanir 13010 Menning Menning Menning Mannlvf í Himalaja- fjöllum Marie Thöger: Dídi og Púspa Bókaforlagiö Bríet, Rvík 1985. Þessi bók virðist ætluð unglingum og gefin út af nýju forlagi sem ég hef ekki kynnst fyrr. Á forsíðu er fjallalandslag og tvær suðrænar stúlkur ungar í suðurlandabúningi, dökkar á hár og hörund, þó ekki svertingjalegar, minna helst á Ind- verja. Þýðandi er Ölafur Thorlacius og hefur hann leyst sitt verk svo vel af hendi að smásmugulegur lesandi staðnæmdist aðeins þrisvar sinnum, hefði kannski viljað gera þar smá- vægilega orðabreytingu. Bókin er auðveld í lestri. Þetta er fyrsta þýdda bókin sem ég ritdæmi eftir tíu til fimmtán ára hlé í þeirri iðju. Nú eru eflaust komnir fram nýir þýðendur, hinir gömlu famir að draga saman seglin. Þessi fyrsti, sem ég kynnist hér, lofar góðu. En ekki veit ég hvort hann hefur valið bókina. Líklega stendur að for- laginu, sem ber nafn Bríetar gömlu kvenréttindaskömngs - sem mér auðnaðist að sjá áður en hún hvarf af sviði - hugsjónafélag mannrétt- indafólks. Þriðji heimurinn Og þá þarf að gera til þess nokkrar kröfur. Ef á að segja frá fólki í fjar- lægum löndum, sem á við harðrétti og frelsisskort að búa, þarf helst að AUGLÝSING Embætti skattstjóra Norðurlandsumdæmis eystra er laust til umsóknar og veitist frá 1. júlí 1986. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist tekjudeild fjármálaráðuneytisins, merktar „staða 260", fyrir 14. maí 1986. 8. apríl 1986. Fjármálaráðuneytið. TILKYNNING TIL LAUNASKATTSGREIÐENDA Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að gjald- dagi launaskatts fyrir mánuðina janúar og febrúar er 15. apríl nk. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn- heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. TILKYNNING TIL SÖLUSKATTSGREIÐENDA Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjald- dagi söluskatts fyrir marsmánuð er 15. apríl. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. 7. apríl 1986. Fjármálaráðuneytið. Afmælistónleikar Kariakórs Reykjavíkur Afmælistónleikar Karlakórs Reykjavíkur í Langholtskirkju 8. april. Stjórnandi: Páll Pampichler Pálsson. Undlrlelkari: Guörún Anna Kristinsdóttir. Sextíu ár munu nú liðin síðan Karlakór Reykjavikur var stofnaður að frumkvæði Sigurðar Þórðarsonar sem lengst af var stjómandi hans. Svo skemmtilega vildi til að einn af stofnendunum og meðstjómandi Sigurðar á fyrstu árunum, Hallgrím- ur Sigtryggsson, söng með á þessum afinælistónleikum í liði gamalla fé- laga, sem stundum em nefndir því leiða nafni Old Boys. En hverfúm nú að afmælistónleik- unum. Efhisskrá þeirra var alíslensk og finnst mér það í sjálfu sér virðing- arvert, ekki síst þar sem hún var út af fyrir sig vel frambærileg. Hún var býsna kunnugleg, svona rétt eins og Tónlist EYJÓLFUR MELSTED hljómurinn í kómum og söngstíll sá sem með honum hefur þróast og við hann loðað í gegnum árin. Alveg eins og það hefúr alltaf verið - svo lengi sem ég man að minnsta kosti. Það, að eiga sér sinn sérstaka hljóm vitnar um ríka og sterka hefð, sem hlýtur að verka sem hin besta kjöl- festa í starfi kórs og hjálpa honum til að finna sér staðfestu. Annars er félagsþáttur kórstarfsins síst minni að vöxtum en söngurinn, en verður skiljanlega útundan þegar fjallað er um tónleika í blaðgrein. „Alveg eins og það hefur alltaf verið“ - Alveg eins og það hefur alltaf verið - á sér bæði jákvæða og nei- kvæða merkingu. Jákvæða þegar vitnað er til hefðarinnar, sem hér var að ofan getið. Neikvæða þegar sömu agnúana er að finna á söngn- um og síðast. Og síðast var ömgg- lega hvorki í gær né fyrradag því að Karlakór Reykjavíkur hefur það síður en svo fyrir vana að hóa í tón- listargagnrýnendur á tónleika sína á hv'erju ári. En einhvem veginn urðu gömlu agnúarnir, sem felast fyrst og fremst í því að sumir kórlim- ir þurfa ævilega að hanga eftir (líklega til að að sýna hvað þeir geti haldið tóninum lengi) og aðrir (en líka oft þeir sömu) þurfa endilega Karlakór Reykjavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.