Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Síða 21
DV. MÁNUDAGDR 14. APRÍL 1986.
21
Frábært afrek
Sigga Einars
Sigurður Einarsson, spjótkastar-
inn kunni í Ármanni, náði mjög
góðum árangri á laugardag. Kast-
aði nýja spjótinu 79,24 m á móti í
Mississippi. Eftir því sem DV veit
best hcfur aðeins einn maður kast-
að spjótinu lengra í ár, Brian
Crouser, USA, 79,86 m. Það var hins
vegar fyrir 1. apríl en aðeins afrek
eftir 1. apríl eru staðfest á afreka-
skrá. Samkvæmt þvi ætti Siggi að
vera með besta árangur ársins. Að
áliti sérfræðinga er árangur með
nýja spjótinu rúmlega 10% lakari
en með því gamla. Þessi árangur
Sigga ætti því að vera nálægt 90 m
með gamla spjótinu, þó auðvitað
sé erfitt að spá í slíkt.
Á mótinu kastaði Vésteinn Haf-
steinsson kringlu 63,47 m og Eggert
Bogason 57,82 m.
ÓU/hsím.
ipronir
iprouir
Iþróttir
• Eðvarð Þór, kjörinn sá besti.
• Hugrún Ólafsdóttir, kom mest á
óvart.
• Magnús Ólafsson, snjöll met.
Stórsigur Islands i Kalott-
keppninni -13 íslandsmet
- ísland hlaut 249 stig og varð 49 stigum á undan næsta landi. íslandsmetin að nálgast 50 á árinu
„Þetta var stórkostlegt. fslenska
sundfólkið hafði ótrúlega mikla yfir-
burði. Náði fljótt forustu í stiga-
keppninni og eftir það var sigurinn
aldrei í hættu. Hafði 19 stiga forustu
eftir fyrri daginn og jók muninn veru-
lega siðari keppnisdaginn svo
munurinn var 49 stig á næsta land í
lokin. Einhver mesti ef ekki mesti
stigamunur í Kalott-keppninni frá
upphafi,“ sagði Ellen Ingvadóttir,
fararstjóri ísl. sundfólksins, eftir að
það hafði sigrað á Kalott-mótinu í
Oulu í Norður-Finnlandi í gær. ísland
hlaut 249 stig. Norður-Noregur varð
i öðru sæti með 200 stig. Siðan komu
N-Svíar með 198 stig en gestgjafarnir,
Finnar, ráku lestina með 181 stig.
Alls voru 13 íslandsmet sett í
keppninni, átta á laugardag og fimm
í gær. 1 sumum var bæting metanna
ótrúlega mikil og sýnir vel þá grósku
sem er hjá sundfólki okkar. Það sem
af er árinu eru íslandsmetiri að nálg-
ast fimmtíu.
• Eðvarð Þór Eðvarðsson, Njarð-
vik, var eftir keppnina kjörinn besti
sundmaður mótsins. Setti fimm ís-
landsmet auk íslandsmeta í boðsund-
um.
• Hugrún Ólafsdóttir, yngst sund-
systkinanna í Þorlákshöfn, var
kjörin sá sundmaður mótsins sem
mest kom á óvart. Hún er 14 ára.
Setti íslandsmet í 100 m flugsundi
auk boðsunda.
Fyrri keppnisdagurinn
Keppnin hófst á laugardag í 8oo m
skriðsundi kvenna. Ingibjörg Arnar-
dóttir varð í fimmta sæti á 9:29,80
mín. Þórunn Guðmundsdóttir sjötta
á 9:31,14 mín. 1 næsta sundi, 100 m
baksundi, sigraði Eðvarð og setti ís-
landsmet. Synti á 56,30 sek. og bætti
það met sitt í 56,26 sek. í gær, þegar
hann synti fyrsta sprettinn fyrir ís-
land í 4x100 m fjórsundi. Keppt var
í 25 m laug i Finnlandi. Ragnar Guð-
mundsson varð í 8. sæti á 1:05,77 mín.
Annar sigur íslands kom í næsta
sundi, 100 m skriðsundi. Þar sigraði
Bryndís Ólafsdóttir á góðum tíma,
58,37 sek. Helga Sigurðardóttir varð
fimmta á 1:01,12 mín. Ragnheiður
Runólfsdóttir varð önnur í 200 m
bringusundi á 2:38,29 mín. og Þuríð-
ur Pétursdóttir fimmta á 2:47,65 mín.
Annað Islandsmetið var sett í
fimmta sundinu, 200 m flugsundi
karla. Magnús Ólafsson varð annar
á 2:07.41 mín. Eldra metið átti Ingi
Þór Jónsson, 2:09,76 min. Jóhann
Bjömsson varð sjöundi í sundinu á
2:16,47 mín. í næstu grein varð tvö-
faldur íslenskur sigur. Ragnar
Guðmundsson sigraði í 400 m skrið-
sundinu á 4:07,44 mín. en Magnús,
nýkominn úr flugsundinu, varð ann-
ar á 4:08,01 mín.
íslandsmet Hugrúnar
Hugrún Ólafsdóttir, 14 ára, kom
heldur betur á óvart þegar hún sigr-
aði í 100 m flugsundi á nýju íslands-
meti, synti á 1:05,49 mín. Eldra metið
átti systir hennar, Bryndís, 1:06,19
mín. og Bryndís varð fjórða í sundinu
á 1:06,98 mín.
í 100 m bringusundi var tvöfaldur
íslenskur sigur. Eðvarð Þór sigraði
á 1:05,10 mín. og bætti íslandsmet
sitt um tvö sekúndubrot. Tryggvi
Helgason varð annar á 1:07,06 mín.
í 200 m baksundi kvenna varð Ragn-
heiður í fjórða sæti en setti samt
íslandsmet, 2:27,93 mín. Eldra met
hennar var 2:30,10 mín. Þórunn varð
áttunda á 2:32,22 mín.
Aftur unnu þeir Eðvarð Þór og
Tryggvi tvöfaldan sigur. Það var í
200 m fjórsundi og Eðvarð sigraði á
fslandsmeti, 2:06,28 mín. Eldra met
hans var 2:08,63 mín. Tryggvi varð
annar en því miður fékkst tími hans
ekki uppgefinn. í tveimur síðustu
greinunum fyrri daginn, boðsundun-
um, settu íslensku sveitirnar f slands-
met. Urðu í öðru sæti í sundunum.
Kvennasveitin (Þórunn, Hugrún,
Ragnheiður og Bryndís) synti 4x100
m fjórsund á 4:31,54 mín. Bætti fs-
landsmetið um rúmar 6 sekúndur,
4:37,64 mín. Karlasveitin (Magnús,
Ragnar, Eðvarð og Tómas Þráins-
son) synti 200 m skriðsund á 7:51,51
min. og stórbætti fslandsmetið.
Síðari keppnisdagurinn
Keppnin í gær hófst með 800 m
skriðsundi karla. Þar varð Ragnar
fjórði á 8:26,90 mín. og Tómas átt-
undi á 8:58,14 mín. Ragnheiður varð
fjórða í 100 m baksundi á 1:08,67
mín. og Hugrún áttunda á 1:12,15
mín.
Þeir Eðvarð Þór og Tryggvi unnu
sinn þriðja tvöfalda sigur í 200 m
bringusundi. Eðvarð sigraði á 2:21,96
mín. og Tryggvi annar á 2:28,48 mín.
f 200 m flugsundi varð Ingibjörg
þriðja á 2:28,39 mín., íslenskt telpna-
met, og Bryndís sjötta á 2:28,95 mín.
Magnús sigraði í 100 m skriðsundi á
52,07 sek. Ragnar áttundi á 56,40 sek.
í 400 m skriðsundi varð Bryndís í
þriðja sæti á 4:33,51 mín. Þórunn
sjötta á 4:36,64 mín.
Magnús setti fslandsmet í 100 m
flugsundi á 58,28 sek. Ingi Þór átti
eldra metið, 58,95 sek. Magnús varð
annar í sundinu, Tryggvi þriðji á
58,87 sek. eða einnig innan við gamla
íslandsmetið. Jtagnheiður varð önn-
ur í 100 m bringusundi á 1:14,84 mín.
og Þuríður sjöunda á 1:19,90 mín.
• Ragnheiður Runólfsdóttir, ís-
landsmet.
1 lokagreinunum tveimur, boð-
sundum, sigraði ísland og sett voru
íslandsmet. Karlasveitin synti 4x100
m fjórsund á 3:56,53 mín. Eldra metið
3:57,38 mín. Eðvarð setti íslandsmet
á fyrsta sprettinum, baksundinu,
synti á 56,26 sek. Aðrir í sveitinni
voru Tryggvi, Ragnar og Magnús.
Kvennasveitin synti 4x100 m skrið-
sund á 4:00,96 mín. Eldra metið
4:05,34 mín. f sveitinni syntu Bryn-
dis, Hugrún, Helga og Ragnheiður.
hsím
Enn tapar
United
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV á Englandi.
Man. Utd steinlá á heimavelli sín-
um i gær í 1. deildinni ensku þegar
Sheff. Wed. kom í heimsókn. Tapaði
0-2, annar tapleikur liðsins í röð á
Old Trafford. Þeir Carl Shutt og Mel
Sterland skoruðu mörk Sheff. Wed.
í síðari hálfleik. Sterland úr víti eftir
að Chris Tumer felldi hann. f fyrstu
12 leikjum sl. haust hlaut Man. Utd
34 stig, siðan 34 stig i 26 leikjum.
hsím
Fjölmennasta hlaup, sem háð hefur verið hér á landi, fór fram í gær, Iðnaðarbankahlaupið, en frjálsíþróttadeild ÍR
sá um framkvæmd þess. Keppendur vom á áttunda hundrað og lagt af stað frá fjórum bönkum Iðnaðarbankans. Á
nyndinni að ofan eru ungir þátttakendur að leggjaí hlaupið í Lækjargötu. Nánar á morgun. DV-mynd Brynjar Gauti.
Enn íslandsmet Eðvarðs
Eðvarð Þór setti enn eitt fslands-
metið í 200 m baksundi. Synti á
2:01,90 mín., sem er tími í góðum
heimsklassa. Eldra met hans var 2:
02,23 mín. og auðvitað óþarfi að taka
fram að Eðvarð sigraði í sundinu.
Ragnar varð áttundi á 2:16,83 mín. f
200 m fjórsundi varð Ragnheiður
þriðja á 2:26,96 mín. Þórunn sjötta á
2:23,94 mín.