Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Blaðsíða 23
D¥. MÁNUPAGUR.114, APjRÍL J986.
23
Iþróttir Iþróttir Iþróttir* Iþróttir
Ásgeir bestur í
Kaiserslautem
- að mati Bild. Skoraði í jafntefli Stuttgart.
„Þykir leitt að ég skyldi skora/‘ sagði Bremenbaninn
Sex kvennalands-
leikir hér á landi
í sumar. Sigurbergur áfram þjálfari
íslenska kvennalandsliðið i knatt-
spyrnu mun leika sex landsleiki hér
á landi i sumar.
Fyrstu leikir liðsins verða gegn
Færeyingum í lok júní. 1 lok júlí mun
liðið leika tvo leiki við V-Þjóðverja
og síðustu leikir sumarsins hjá kven-
fólkinu verða 21. og 23. ágúst gegn
Svisslendingum.
Sigurbergur Sigsteinsson mun
áfram sjá um þjálfun liðsins.
- fros
Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara
DV í V-Þýskalandi:
Ásgeir Sigurvinsson átti mjög góð-
an leik og var kjörinn besti maður
vallarins hjá Bild er Stuttgart og
Kaiserslautern gerðu jafntefli á
heimavelli Kaiserslautern á föstu-
dagskvöldið, 2-2. Bild hrósaði Ásgeiri
sérstaklega fyrir léik hans í fyrri hálf-
leiknum.
Ásgeir kom Stuttgart á sporið á 20.
mín. eftir að hafa fengið góða send-
ingu frá Júrgen Klinsman. Stuttgart
var mun betri aðilinn en heimamenn
náðu undirtökunum í síðari hálf-
leiknum. Andreas Brehme náði að
jafna á 60. mínútu með þrumuskoti.
Klinsman kom Stuttgart aftur yfir
13 mínútum síðar með skallamarki
eftir homspyrnu Pasic. Dúsek skor-
aði skömmu síðar fyrir Kaiserslaut-
em og úrslitin 2-2. Sanngjamt
jafntefli.
„Þykir leitt að ég skyldi skora“
„Eg vona að Bremen verði meistari
og mér þykir það leitt Bremen vegna
að ég skyldi skora þetta eina mark.
Ég leik fyrir peninga og ég verð því
alltaf að spila fyrir lið mitt,“ sagði
Franz Raschid sem skoraði eina
mark Bayer Uerdingen í sigri liðsins
á toppliði Bremen á föstudagskvöld-
ið. Raschid skoraði mark sitt á tólftu
mínútu síðari hálfleiksins og Bremen
varð að þola sitt fyrsta tap síðan 24.
nóvember.
Sigur Uerdingen var sanngjarn.
Liðið barðist betur allan leikinn en
marga fastamenn vantaði í lið Brem-
en. Atli Eðvaldsson lék allan leikinn
sem vamartengiliður í liði Uerding-
en og fékk fjóra í einkunn hjá Bild.
Annars urðu úrslit þessi í bundeslig-
unni um helgina:
Mannheim-Saarbrúcken...........1-0
Fort. Diisseldorf-Hamburger....3-1
Bor. Dortmund-Bayern Múnchen ....0-3
Númberg-Köln...................3-0
Eintr. Frankfurt-Schalke.......3-0
B. Leverkusen-Mönchengladbach ....3-1
Kaiserslautem-Stuttgart........2-2
Bochum-Hannover................3-2
B. Uerdingen-Werder Bremen.....1-0
„Þessi sigur gefur leikmönnum
mínum aukið sjálfstraust. Nú getum
við í fyrsta sinn unnið titilinn án
þess að fá hjálp frá öðrum,“ sagði
Udo Lattek, þjálfari Bayern
Múnchen, eftir að liðið hafði lagt
Dortmund að velli á útivelli, 1-3.
Bayem hafði ekki sigrað Dortmund
á útivelli síðan 1971 fyrir leikinn og
lengst. af fyrri hálfleiks leit ekki út
fyrir neina breytingu þar á. Dort-
mund var betri aðilinn í fyrri hálfleik
en Hans Pfluger náði forystunni
óverðskuldað fyrir Bayern tíu mínút-
um fyrir leikhlé. Heimamenn voru
ekki jafnsterkir i síðari hálfleiknum
og Roland Wolfhart náði tívegis að
skora fyrir Bayern í bæði skiptin
eftir frábæran undirbúning Sören
Ijerby. Jean-Marie Pfaff var besti
maður vallarins. Hann átti snilldar-
leik í markinu fyrir Múnchénbúa og
bjargaði nokkrum sinnum mjög vel
í fyrri hálfleiknum.
Mönchengladbach tapaði illa fyrir
Leverkusen á útivelli og það var fyrst
og fremst hörmungardagur norska
landsliðsmarkvarðarins Eric
Thorstvedt sem réð úrslitum.
Thorstvedt hefur leikið mjög vel fyr-
ir Gladbach á tímabilinu en hann var
óraleið frá sínu besta á laugardag-
inn. Hann var mjög óöruggur og átti
sök á öllum mörkunum á laugardag-
inn. Sjálfsmark Winkhold, Zechel og
Herbert Waas urðu til þess að koma
stöðunni í 3-0 áður en Uwe Rahn
skoraði eina mark Gladbach. Staða
efstu liða er nú þessi:
Werder Bremen.....31 20 7 4 81-38 47
Bayem Múnchen.....31 20 5 6 76-31 45
Mönchengladbach ...31 15 11 5 63-42 41
Stuttgart.........31 15 7 9 62-42 37
B. Uerdingen......29 15 6 8 48-54 36
B. Leverkusen.....31 14 8 9 59-48 36
-fros
• Ásgeir Sigurvinsson skoraði mark og lék mjög vel í jafntefli Stuttgart
og Kaiserslautern.
Víkingur mætir
Augnabliki í
Mjólkurbikamum
- KSI samdi við mjólkurdagsnefnd
Leikið um sæti
í úrslitum
- HSÍ-bikarsins í kvöld
Fyrir helgi tókust samningar með
mjólkurdagsnefnd og KSÍ en nefndin
hefur ákveðið að styðja rausnarlega
við bakið á sambandinu. í staðinn
mun nafn bikarkeppninnar nú verða
Mjólkurbikarkeppnin, bikarkeppni
KSÍ. Samningar aðilanna eru út
keppnistímabilið.
Þegar hefur verið dregið í Mjólkur-
bikarnum. Víkingur mun hefja leik
sinn gegn hinu dæmalausa liði,
Augnabliki, og mun leikurinn fara
fram á heimavelli Víkings. Fyrstu
deildarliðin sitja hjá í fyrstu umferð
en Þróttur, sem féll niður í 2. deild
með Víkingi, mun leika gegn Reykja-
víkurliðinu Leikni í 1. umferð. Þá
verður stórleikur á Húsavík er
heimamenn mæta nágrönnunum
KA. Fyrsta umferðin fer fram dagana
27.-28. mai og 2. umferð fer fram 11.
júní en drátturinn varð þannig:
Þróttur R.-Leiknir R.
Stjarnan-Léttir
Fylkir-Hafnir
Víkingur R.-Augnablik
UMFN-Árvakur
Afturelding-Grindavík
Grundarfj örður-H V
Hveragerði-Selfoss
Leiftur-Vaskur
Völsungur-KA
Tindastóll-Magni
Höfðstrendingur-KS
Leiknir F.-Einherji
Höttur-Austri E.
Þróttur N.-Huginn
Valur Rf.-Hrafnkell
2. umferð
Reynir S.-Ármann
Haukar-ÍK
ÍR-Þróttur/Leiknir R.
Afturelding/Grindavík-Víkingur Ó.
Víkverji/Skallagrímur-Skotfélag R.
UMFN/Árvakur-Selfoss/Hveragerði
V íkingur/Augnablik-Stj arnan/Létt-
ir
Fylkir/Hafnir-Grundarfjörður/HV
Völsungur/KA-Leiftur/Vaskur
Höfðstrend./KS-Tindastóll/Magni
V alur/Hrafnkell-Leiknir/Einheiji
Höttur/Austri-Þróttur N./Huginn
Þriðja umferðin, þar sem leikið er
um sæti í 16-liða úrslitum keppninn-
ar, fer síðan fram 1.-2. júlí. -fros
Úr því fæst skorið í kvöld hvaða lið
munu leika saman í bikarúrslitum
HSI en dregið var í þeim á fimmtu-
daginn. FH mætir Víkingi og fer
leikur liðanna fram i íþróttahúsinu í
Hafnarfirði klukkan 20. Á sama tima
hefst síðan leikur Ármanns og
Stjörnunnar í Laugardalshöll.
Þá hefur verið ákveðið að bikarúrslitin
í handbolta kvenna, á milli Fram og
Stjörnunnar, muni fara fram á miðviku-
dagskvöldið klukkan 20. Strax að þeim
leik loknum hefst síðan úrslitaleikurinn
í fyrsta flokki á Islandsmótinu á milli
Leiftra og KR.
- fros
VORUM AÐ FA
svefnpoka og bakpoka í miklu úrvali
Verð kr. 2.995
Verð kr. 2.090
Verð kr. 2.533
Verð kr. 1.619
Svefnpokar frá
kr. 1.480 til
kr. 3.985
-15° til +1
Verð kr.
2.400
Tjöld í miklu úrvali
Verð frá kr. 4,200
Svefnpoki kr. 3.985
15° til +15