Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Qupperneq 27
27
DV. MÁNUDAGUR 14.'APRÍL 1986.
Knattspyrna unglinga - Knattspyrna unglinga- Knattspyrna unglinga
Marka-
kóngur
Reykja-
víkur-
mótsins!
Á komandi Reykjavíkurmóti
er ætlunin að fylgjast náið
með því hverjir skora mörkin
og birta vikulega lista yfir 10
hæstu markaskorara félag-
anna - en ekki í hverjum
flokki fyrir sig. Til þess að
þetta geti orðið að veruleika
þarf góða samvinnu við félög-
in þegar þar að kemur.
funda
Félagsfundur í Knattspyrnudóm-
arafélagi Reykjavíkur verður hald-
inn í KR-heimilinu mánudaginn 21.
apríl nk. kl. 20.
Fundarefni:
Starfsemi komandi keppnistímabils.
Nýjar reglur frá landsdómararáð-
stefnu.
Önnur mál. Fyrirspurnir.
Nýir unglingadómarar fá afhenta
dómarabúninga. Mætum öll og búum
okkur vel undir sumarið.
Stjórn KDR.
- Hann þykist fær í flestan sjó
eftir að hann fékk knatt-
spyrnudómaraskírteinið!!!
„Markmaðurinn hjá okkur
heitir Steinn og er grjótharður,
enéghefaldreiséð
þessa mynd af honum!!!“
- Ég mundi skjóta á mitt markiö
ef ég værí í þínum sporum!!!
f Sindri sendir lið í alla flokka
! íslandsmótsins!
- Albert Eýmundsson þjátfar á Hófn í Homafirði
Laugardaginn 22. febr. sl. kom 3.
■ fl. Sindra frá Höfn í Hornafirði í
I heimsóknádrengjalandsliðsæfingu
I á gervigrasinu í Reykjavík. Strák-
■ arnir voru með hluta af æfingunni
I og ekki varð annað séð en að þeir
1 kynnu eitt og annað fyrir sér i
I knattspyrnu. Þjálfari strákanna er
gg Albert Eymundsson sem er marg-
■ reyndur og hefur náð góðum
I árangri sem þjálfari. Hann tjáði
I Unglingasíðunni að Sindri myndi
’ senda lið í öllum flokkum á íslands-
I mótið i sumar.
Myndin var tekin af strákunum
frá Höfn á drengjalandsliðsæfing-
unni. í fremri röð frá vinstri:
Erlingur Kristinsson, Börkur Þor-
geirsson, Rafnkell Guttormsson,
Heimir Karlsson, Sveinbjörn
Steinþórsson, Erlendur Eiríksson,
Ingólfur Einarsson og Jón Bjöms-
son. Aftari röð frá vinstri: Þorbjörn
Vignisson, Aðalsteinn Ingólfsson,
Jóhannes Guðmundsson, Jón G.
Bjarnason, Svanberg Guðleifsson,
Stefán Magnússon, Jón I. Ingi-
bergsson, Hermann Stefánsson,
Sævar Gylfason og Albert Ey-
mundsson þjálfari. (DV-mynd HH).
Erlingur Kristinsson er 14 ára
og er leikmaður með Sindra frá
Höfn í Homafirði. Hann segist
hafa byijað í 6. flokki. Drengur-
inn æfir og spilar einnig
handknattleik. Hann stóð sig
mjög vel á drengjalandsliðsæf-
ingunni og er greinilegt að þar
fer gott efni. - Jú, Albert er frá-
bær þjálfari, segir Erlingur.
Hann segir mikinn fótboltaá-
huga á Höfn og að þar sé hugurj
í mönnum að standa sig vel á
komandi leiktimabiU.
„Astandið verst
hjá Valsmönn-
um!“
- upplysirAsbjom Sveinbjömsson, fom. KDR
Unglingasíðan
hafði samband
við formann
Knattspyrnu-
dómarafélags
Reykjavíkur
(KDR), Ásbjörn
Sveinbjörnsson,
og spurði hvort
búast mætti við
betri mætingu
dómara á ungl-
ingaleiki kom-
andi keppnistimabils en á því siðasta.
Ásbjörn hafði þetta að segja:
„í upphafi knattspyrnuvertíðar er
ekki úr vegi að líta til baka til sl.
keppnistímabils þar sem dómaramál-
in voru þá í mjög slæmu ástandi.
Forföll voru tið. I sumum tilfellum
gleymdu umsjónarmenn dómara í
félögum hreinlega að boða þá til
leikjanna.
Það er mikill hugur í stjórnar-
mönnum KDR að bæta þetta á
komandi keppnistímabili. Ég vil hér
greina frá því helsta sem er á döfinni
í því sambandi.
Sl. haust var skipuð nefnd fulltrúa
Reykjavíkurfélaganna, KRR og
KDR. Nefndin gerði það að tillögu
sinni að notast við það boðunarkerfi
dómara sem hefur verið við lýði und-
anfarin ár en virkja það betur en
hingað til - og með þeirri breytingu
að fenginn verði ákveðinn aðili til
að vera nokkurs konar milligöngu-
maður. Raði hann leikjum á dómara
félaganna og sendi út tilkynningar
þess efnis einu sinni í mánuði. Vert
er að taka fram að mikil ábyrgð hvíl-
ir á herðum umsjónarmanns félag-
anna.
Dómaranámskeið
Haldið var dómaranámskeið sl.
haust þar sem 14 nýir dómarar voru
útskrifaðir frá Reykjavík. Það vakti
furðu að enginn þeirra er frá Val en
hjá því félagi var vandinn hvað mest-
ur í fyrra.
Stjórn KDR hefur fengið tvo
reynda dómara til að leiðbeina ungl-
inga- og héraðsdómurum. Slikt ætti
að vera þeim til hagsbóta. Yngri
dómarar ættu svo sannarlega að nýta
vel þennan möguleika til að bæta
sig. Við vonumst því til að dómarar
taki þessu vel - því ég er sannfærður
um að þetta mun bæta dómgæsluna
til muna og skila okkur betri dóm-
urum á komandi árum.
Ég við nota tækifærið og minna
alla héraðs- og unglingadómara í
Reykjavik á fund sem haldinn verður
í KR-heimilinu mánudaginn 21. apríl
nk. og hefst kl. 20.“ •
-HH
DÓMARA-
HORNIÐ
- Guðmundur Haraldsson spurður álHs
Unglingasíðan mun af og til vera
með „dómarahorn" og munu vafa-
atriði í dómgæslu og kannski
sitthvað fleira verða á dagskrá.
Fyrstur fyrir svörum er einn af
okkar snjöllustu dómurum, Guð-
mundur Harladsson milliríkjadóm-
ari, og mun hann leysa úr þessum
2 spurningum:
1. spurning: I fyrri hálfleik í mjög
áríðandi leik „dribblar" Jón í gegn-
um vörn andstæðinganna á ca
miðjum vallarhelmingi þeirra. Fé-
lagi hans, Kjartan, fylgir fast eftir
því hann er mjög fljótur. Eru þeir
því báðir komnir inn fyrir vöm
mótherjanna. En hvað um það -
Jón sendir boltann aftur á Kjartan
sem brunar í átt að markinu og
skorar. Spurt er: Var Kjartan rang-
stæður?
2. spurning: í síðari hálfleik er
Kjartan aftur á ferðinni og skorar
glæsimark með hörkuskoti af um
18 m færi. Jón stóð aftur á móti
fyrir innan vörnina í skotlínu
Kjartans. Spurt er: Var Jón rang-
stæður?
Magnús Haraldsson gaf eftirfar-
andi svör: í fyrri spurningunni er
Kjartan réttstæður vegna þess að
Jón sem fremsti maður gaf boltann
til baka á Kjartan. Ef aftur á móti
Jón gefur boltann fram á Kjartan
sem fremsta mann þá er að sjálf-
sögðu rangstaða, samanber.
Framherji leikur upp að enda-
mörkum og gefur boltann fyrir
markið og til baka.
- Hann er auðvitað ekki rang-
stæður.
I spurningu nr. 2 er mark Kjart-
ans að öllum líkindum ólöglegt
vegna þess að Jón hefur áhrif á
leikinn. hann er í skotlínu og gæti
skvggt á eða truflað markvörðinn
á annan hátt og er því rangstæður.
Sé Jón aftur á móti utan skotlinu,
þannig að hann truflar ekki mark-
vörðinn, dæmist mark. Annars er
þetta matsatriði hverju sinni.
Menn hefur oft greint mjög á ein-
mitt í þannig tilvikum, sagði
Guðmundur. -HH
Guðmundur Haraldsson milli-
rikjadómari. (DV-mynd HH.)