Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Qupperneq 39
DV. MÁNUDAGUR 'W ÁÞRÍL ÍX986. Sandkorn Sandkorn Flugstöðin á Húsavík var vígð með pompi og prakt. Flugstöðin á Húsavík... ...var opnuð með pompi og prakt i siðasta mánuði. Hið hefðbundna opinbera veislulið mætti að sjálf- sögðu í vigsluna. Eftir að flugvél hafði rennt í hlaðið með liðið var vélin afgreidd á venjulegan hátt og fór hún suður á ný, fullskipuð farþegum. Þungt var í þeim mörgum, því til þess að trufla ekki veisluhöld fína fólksins voru þeir látnir fara um vöruafgreiðsluna. Opinberi lúxusinn lætur ekki að sér hæða. Jóhann með? Pétur Antonsson, for- stjóri Síldarverksmiðjunn- ar i Krossanesi, hefur hætt störfum hjá Krossanesi, eins og fram hefur komið í fréttum. Pétur er kominn i einkabisness suður í Grindavík og á örugglega eftir að láta til sín taka þar eins og fyrir norðan. Mað- urinn þykir nefnilega mjög snjall í viðskiptum. En nú hefur heyrst að fjármálastjóri Krossaness- verksmiðjunnar, Jóhann nokkur Andersen, sé á leið suður og ætli að vinna með Pétri í Grindavík. Allt um fermingar Fermingar hafa staðið yfir að undanförnu með til- heyrandi auglýsinga- skrumi og öðru brambolti. í Degi var nýlega viðtal við fermingabarn: „Hvernig liður þér eftir ferminguna?" „Bara vel.“ ,, Var nokkuð öðruvísi en þú bjóst við?“ „Nei.“ „Hvers vegna lést þú ferma þig?“ „Nú, ég játa kristna trú.“ „Hafa allir efni á þessu öllu saman?“ „Já, ég held nú að flestir hafi það. Allavega hef ég ekki orðið vör við neinn sem ekki hefur haft efni á fermingu.“ - Er nú ekki kominn tími til að fara að ræða við for- eldra barna um fermingar en ekki fermingabörnin sjálf? Rakahugsun Danskri stúlku, sem búið hefur á íslandi í 12 ár og talar lýtalausa íslensku, varð svolítið á i messunni um daginn. Á vinnustað hennar var verið að tala um rökhugsun. Sú danska hváði og spurði síðan: „Hvernig er þessi raka hugsun eiginlega?" Óhreint í pokahominu Sagt var frá því nýlega að holdanauta- og tilrauna- búið í Gunnarsholti hefði nýlega selt mykjuhaug á hálfa milljón. Menn spyija sig nú að þvi hver hafi eig- inlega keypt þennan haug, eða hvort þarna hafi ekki verið eitthvað óhreint í pokahorninu. 304 nætur- vinnutímar Kaupfélag Svalbarðs- eyrar hefur verið mikið í fréttum í vetur. Þar er allt á hausnum og gjaldþrotið blasir við. Verið er að vinna að uppgjöri. Heyrst hefur að einn starfsmaður kaupfélagsins, vörubílstjóri og meira til, hafi haft 304 næturvinnu- tima í janúarmánuði. Það fylgir ekki sögunni hvað hann svaf marga tíma í fe- brúar. Sukksess Oft hefur verið agnúast út af lélegu málfari blaða- manna. I leiðara Víkur- blaðsins var nýlega rætt um velgengni handknatt- leiksmannanna okkar í heimsmeistarakeppninni og almennt um velgengni. I fyrirsögn leiðarans stóð: „Sukksess" er allt sem þarf. Pálmi skoraði Völsungar á Húsavík kepptu fyrir margt löngu við Fylkismenn. Leikurinn rann út og Völsungar áttu fríkast. Pálmi Pálmason, gamla kempan úr Fram, henti og skoraði beint. „Eitthvað bogið við þetta,“ sagði dómarinn og lét endurtaka kastið. Völsungar trylltust en Pálmi sagði sallarólegur: „Strákar mínir, látið þið ekki svona, ég skora bara aftur.“ Og hann skoraði! Ráðherravín Og fyrst við erum að ræða um „sukksess" á Húsavík og vöruflutningafarþega í nýrri flugstöð má geta þess að sú saga gengur fjöllun- um hærra á Húsavík að ráðherravin hafi flotið í nokkrum húsum þar að kveldi vígsludags flug- stöðvarinnar. Einhverjir fyrirmenn þekktu nefnilega mann sem átti... Ráðherravin er örugglega ekki verra en annað vín. Umsjón: Jón G. Hauksson Kvikmyndir__________Kvikmyndir HÁSKÓLABÍÓ - MUSTERI ÓTTANS___________★★ Spielberg hittir Sherlock Holmes Það þurfti vist töluverða leit að finna réttan mann til að leika Sherlock Holmes á yngri árum. Áður óþekktur leikari, Nicholas Rowe, skilar því hlutverki áfallalaust. Musteri óttans (Pyramid of Fear) Bandarísk - árgerð 1985. Framieiðandi: Steven Spielberg. Leikstjóri: Barry Levinson. Handrit: Chris Columbus. Tónlist: Bruce Broughton. Kvikmyndun: Stephen Goldblatt. Aðalhlutverk: Nicholas Rowe, Alan Cox og Sopie Waed. Það eru meiri ósköpin sem Steven Spielberg kemur í verk. Dagurinn hjá honum hlýtur að vera helmingi lengri en hjá öðru fólki. Það líður varla sá mánuður að ekki sé tekin til sýningar mynd sem hann hefur komið nálægt. Þó það sé ekki hægt annað en að dást að dugnaði hans þá er sitthvað magn og gæði. Það er ekki alltaf merkileg framleiðsla sem Spielberg leggur nafn sitt við. Að vísu er allt- af hægt að ganga að ákveðinni vöruvöndun hvað varðar tæknileg atriði. Spielberg er sannkallaður brellumeistari þó auðvitað þurfi hann að ganga allt of langt við notkun þeirra. Það er nokkuð snjöll hugmynd að gera mynd um yngri ár Holmes þó það geti varla talist frumlegt lengur að gera mynd um þennan spæjara allra tíma. Það er greinilegt að aðstandendur myndarinnar reyna að vera trúir þeirri persónu sem Arthur Conan Doyle skapaði. Sérkenni Holmes og kunningsskap- ar hans við Watson koma nokkuð vel fram svo að gamlir Holmes að- dáendur ættu að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Reynt er að fylla inn í ýmsar þær eyður sem má finna um fortíð Holmes þó auðvitað megi deila um ágæti þess eða tilgang. Myndin fjallar um fyrsta ævintýri Holmes og Watsons og það er svo sannarlega ekkert smáævintýri fyrr en varir eru þeir félagar farnir að berjast við ofstækisfulla djöfla- dýrkendur sem stunda mannafórnir í miðborg Lundúna! Það liggur við að þau ævintýri þeirra félaga sem síðar koma falli í skuggann af þeim hasar sem hér er dreginn upp. Þetta verður allt hálfyfirdrifið þegar líður á myndina. Brellumeistararnir eru á fullu við að sýna þær martraðir sem persónur myndarinnar lenda í og að lokum er einfaldlega ekkert skilið eftir fyrir imyndunarafl áhorfandans. Það er reyndar amer- ískur siður að ganga út frá því að áhorfendur séu meðvitundarlausir - það þurfi að mata þá á öllu hvort sem það eru ímyndanir eða skiln- ingur. Ekkert er gert til að byggja upp myndræna spennu og gefa þannig ímyndunarafli áhorfandans tækifæri. Spielberg hefur fengið leikstjór- ann Barry Levinson til að sjá um þessa mynd. Hann á að baki ekki ómerkari myndir en Dinner og The Natural sem sýndu að hann er vel fær um að gera vandaðar myndir. Hann ætti þvi að hugsa sig tvisvar um næst þegar Spielberg býður honum að gerast léttadrengur hjá sér. Sigurður Már Jónsson irkirk Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit SLYSAVARNA FÉIAG ÍSIANDS í B Ú Ð A H A P P DRÆ TT I ÍBÚÐAVINNINGAR KOMU Á EFTIRTALIN NÚMER: 11231 117336 132917 146387 187263 190464 199381 SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS BLAÐBERA VAIMTAR í Helgalandshverfi í Mosfellssveit Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 66481. VEGLEGUR Afmælisnefnd Reykjavíkur hefur látið gera þennan fallega veggdisk í tilefni 200 ára afmælis borgarinnar. Veggdiskurinn er unninn hjá hinum heimsþekktu postulínsverksmiðjum Bing & Gröndal íKaupmannahöfn. Diskinn má hafa á borði eða festa á vegg. Þvermál hans er um 18 cm. Upplag er takmarkað, 3000 stk. verð kr. 1.490.- Hönnuður: TryggviT. Tryggvason. 1 Afmælisnefnd Reykjavíkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.