Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1986, Blaðsíða 36
36
DV. FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1986.
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Vandræðabarnið í Mónakó
Bill Cosby
fyrirmyndarfaðirinn, er varla í
miklum fjárhagsörðugleikum
um þessar mundir. Þættir
hans hafa slegið allrækilega í
gegn og vinsældir hans í
Ameríku eru ótrúlegar. Nú fyr-
ir stuttu fitnaði bankareikn-
ingur hans enn meir því hann
fékk þá greiðslu fyrir þætti
sína sem seldir hafa verið til
annarra landa. Upphæðin
sem Cosby fékk voru litlir 4
milljarðar ísl. króna. Það er
engin furða að hann sé alltaf
í góðu skapi.
Priscilla
Presley
er víst alvarlega að hugsa um
að láta pússa sig saman við
brasilíska kvikmyndatöku-
manninn, Marco Garibaldi. Er
þessi möguleiki ræddur fram
og aftur í Hollywood og sýn-
ist sitt hverjum. Þau hafa
þekkst núna í meir en eitt ár
og verið mikið saman. Er víst
haft fyrir satt að hjónaleysin
hafi kynnst við upptöku á
Dallasþáttunum.
Simon
le Bon
söngvari hljómsveitarinnar
Duran Duran og siglingaá-
hugamaður, þykir hárprúður
mjög og er til búinn að borga
dýru verði skerðingar á hári
sínu. Þegar hann lét klippa sig
nú að aflokinni sinni síðustu
sjóferð kostaði það um 22.
000 kr. og sagði söngvarinn
það ódýrt sloppið!
er orðið fullorðið!
Stefanía Mónakóprinsessa hefur
alltaf verið vinsælt umræðuefni
blaða og tímarita um allan heim.
Prinsessan hefur sjálf verið mjög
hjálpleg við að koma sér í heims-
fréttirnar með alls kyns uppátækjum
og hneysklismálum. En nú finnst
henni sjálfri nóg komið. Hún vill
gifta sig, eignást börn og segist vera
að leita að manni sem elskar hana
vegna þess hvernig hún er en ekki
hver hún er. Stefanía segir það erfitt
að vera dóttir furstans af Mónakó.
Hún er nýorðin 21 árs og segir um
fortíð sína: „Ég hef lifað lífinu og
reynt allt, ég sé ekki eftir neinu og
þó ég fengi tækifæri til að endurlifa
einhverja atburði myndi ég ekki
breyta neinu. Ég hef gert ýmis mistök
en af þeim hef ég lært. Að vera í
sviðsljósinu er erfitt, þú getur ekki
komið nálægt karlmanni án þess að
það standi í blöðunum daginn eftir.
Undir slíku álagi er manni hætt við
að láta hlutina fara úr böndunum."
Stefanía bendir á að Karólína systir
hennar hafi þótt heldur óróleg hér
áður fyrr en hafi svo róast og það
sama eigi við um hana sjálfa.
Ætlar að flytja að heiman
Stelpan hefur í hyggju að flytja að
heiman og standa á eigin fótum. Hún
hefur góðar tekjur sem fyrirsæta og
hefur nú þegar þénað 5 milljónir fyr-
ir fatahönnun. Einnig á hún von á
peningum fyrir plötu sína, Hvirfil-
bylur, sem er mikið keypt í Frakk-
landi. Mónakóprinsessan segist vera
mikill Dynasty-aðdáandi og henni
finnst Sylvester Stallone myndarleg-
ur sem Rocky og Rambo. Eina
raunverulega ástin hingað til segir
hún að hafi verið Paul Belmondo en
því miður lágu leiðir þeirra ekki sam-
an. Hann vildi verða kappaksturs-
hetja og Stefanía sagði ltonum að
velja á milli sín og íþróttarinnar.
Hann valdi kappaksturinn og hafn-
aði prinsessunni.
Gleymir ekki móður sinni
Stefanía er orðin stór stúlka sem
vill sýna hvers hún er megnug sjálf
en ekki sem prinsessa. Hún hefur
ákveðið að breyta um lífsstíl og seg-
ist vera sátt við fortíð sína. Hún mun
þó aldrei gleyma móður sinni, Grace
furstaynju, sem fórst á sviplegan
hátt í bílslysi en Stefanía slapp við
illan leik. Tvisvar í viku heimsækir
prinsessan leiði móður sinnar og
leggur blóm á það. Hún segist enn
sakna móður sinnar og muni sjálf-
sagt alltaf gera það.
Stefanía hefur getið sér gott orð sem
fatahönnuður; þennan kjól hannaði
prinsessan.
Allra myndarlegasta stúlka - synd
ef hún skyldi ekki ganga út.
Eina ástin hingað til hefur verið Paul Belmondo.
Mitt næsta bragð...
Nautaat hefur verið vinsæl íþrótt um langan aldur á Spáni og er smábær-
inn Castellon de la Plana engin undantekning þar á. Nautin verða sífellt
erfiðari viðuieignar, eru orðin bæði illari og útsmognari en áður. Nautið hér
á myndinni má segja að hafi algerlega flippað er það sýndi nýjasta bragð
sitt. Það stóð glæsilega á haus og fór síðan laglegan kollhnís. Var því klapp-
að lof í lófa af áhorfendum en nautabaninn veit varla hvaðan á sig stendur
veðrið enda ekki vani reiðra nauta að ,sýna fjöllistir. Þrátt fyrir þessa kunn-
áttu fór nautið sömu leið og fávísari meðbræður þess og innan skamms voru
kollhnísar þess taldir.
Nokkrir stúdentar við Nihon-háskólann í Tókýó voru ekkert að hika við það
þegar sjónvarpsfyrirtæki eitt bað um aðstoð við að byggja dómínókubba-
braut. Það fór yfir 1 milljón dómínókubba í brautina og talið er að hún
hafi vegið um 6 tonn. Stúdentarnir höfðu brautina alls ekki einfalda heldur
röðuðu henni í 50 ólik og glæsileg munstur. Það tók kubbana um 45 mínút-
ur að falla og segja fróðir menn að það þýði að dóminókubbar falli með
80 metra hraða á sekúndu. Stúdentarnir voru að vonum ánægðir eftir á
en sögðu að verkið hefði tekið á taugarnar því engu mátti skeika í útreikn-
ingum þeirra.
WmWfiHllWUMiHw mi —