Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986. Fréttir Lagt á stað með náðhúsin í Þjórsárdal. Nokkrir hressir á leið til Eyja í gær. Hátíðarsvæðið er tilbúiö og bíður komu þúsunda þjóðhátiðargesta. DV-mynd Grímur Gíslason Straumurínn liggur til Eyja Eftir öllum sólarmerkjum að dæma virðist straumurinn liggja til Vest- mannaeyja á þjóðhátíð. Þegar í gær höíðu rúmlega 5000 manns pantað sér ferð með einhverjum þeirra ferðaaðila sem bjóða upp á ferðir á þjóðhátíðina. Farin verður aukaferð hjá Smyrli, en sú feija tekur þó ekki bíla. Stefnir í að aðsóknarmet verði sett að sögn heimamanna og fólk í ferðaþjónustu segist vart muna eftir annarri eins aðsókn. Annars ætlar helgin að verða sannkölluð ferðahelgi og má búast við að hátt í 40.000 manns verði á faralds- fæti. Auk Vestmannaeyja er boðið upp á skipulagðar hátíðir á 6 stöðum. Gauk- urinn ’86 virðist ætla að draga til sín næstmest og einnig Bindindismótið í Galtarlæk, en þar talaði fólk um rúm- lega 5000 manns. Á Laugum í Reykjad- al, Skeljavik við Hólmavík og Vík í Mýrdal verða hátíðir og í Bjarkar- lundi verður íjölskylduhátíð. Menn treystu sér lítið til að spá í aðsókn á þessum stöðum og heyrðust tölur frá 500 og upp í 2500. En það verður ekki einungis á skipu- lögðum útihátiðum sem ferðalangar munu halda til. Rúmlega 400 manns munu fara í ferðir með Ferðafélagi Islands og Útivist og opin tjaldstæði verða víða. Á ýmsum stöðum verða svo sveitaböll alla helgina og verður sjálfsagt slegið upp tjaldbúðum þar í nánd og á Vindheimamelum verður hestamannamót. Svo eru það allir hin- ir sem vilja njóta náttúrunnar í ró og næði, heimsækja vini eða fara í sumar- bústaðinn. Lögreglan hefur mikinn viðbúnað vegna helgarinnar og mun auk alhliða eftirlits leggja sérstaka áherslu á að koma í veg fyrir hraðakstur svo og ölvun við akstur. JFJ Heimsmeistaraeinvígið: Karpov héltjöfríu Kasparov, heimsmeistarinn ungi, náði ekki vinningi í annarri skák heimsmeistaraeinvígisins. Þegar skákin fór í bið var heimsmeistarinn talinn með unna stöðu en Karpov var ekki á sama máli. Myndin var tekin er Kasparov kom á keppnisstað I fyrstu skákinni. Myndin er einstök fyrir þær sakir að Ijósmyndarinn, Jón L. Árnason, nýbakaður stórmeistari í skák, skaut allri heimspressunni ref fyrir rass. Hann þekkir inn á þenking- ar skákmeistara og beið því Karpovs og Kasparovs bakdyramegin á hótelinu þar sem einvígið fer fram. Tugir Ijósmyndara og sjónvarpsmanna biðu hins vegar við aðaldyr hótelsins og misstu af fengnum. DV-mynd Jón L. Árnason Jón L. Ámasan, DV, Lcmdan; Skákskýrendur í London töldu Kasparov hafa góða vinningsmögu- leika er 2. einvígisskák hans við Karpov fór í bið á miðvikudag en við nánari aðgæslu kom í ljós að vamarmáttur stöðu Karpovs var töluverður. Svo fór að hann hélt jöfhu eftir 52 leiki og nokkrar svipt- ingar. Að loknum tveim skákum er staðan í einvíginu því jöfh, báðir hafa hlotið einn vinning. „Karpov tefldi þessa skák ekki vel og átti tapað tafl um tíma,“ sagði hollenski stórmeistarinn Sosonko. „Jafotefli er sálfræðilegur sigur fyrir hann. Kasparov verður áreiðanlega ekki upp á sitt besta á morgun og hugsanlega tekur hann sér frí. Rétt áður en fyrri tímamörkunum var náð missti hann af auðsóttum vinningi en nú getur hann nagað sig í handar- bökin.“ Annars var skákin þrungin bar- áttu og spennandi þótt hún væri ekki sérlega vel tefld. Báðir munu leggja allt í sölumar í þessu einvígi og með sama áframhaldi ættu ská- kunnendur ekki að þurfa að kvíða neinu. Þannig tefldist skákin áfram í gær. Karpov, sem hafði svart, lék biðleik í þessari stöðu: 41. - Hf2+ 42. Kd3 Rd6 43. Ha7 + Fyrst var talið að 43. a4 Hxh2 44. b5 gæfi hvítum góða möguleika en með 44. - h4 nær svartur að „grugga" taflið og halda jafavæginu. 43. - Ke6 44. Hh7 Nú gæti virst sem svartur nái að þvinga fram jafatefli með 44. - Hxh2 45. Rxg4 Hh3 46. Hh6+ Ke7 47. Rxe5 Hxg3+ og síðan 48. - Hxa3. En hvítur leikur mun sterkar 45. Rd5+ Kd7 46. Hxh5 Hxh5 47. Rf6+ og vinnur hrókinn aftur með vinn- ingsstöðu. Næsti leikur Karpovs setur undir lekann en hann virtist koma Kasparov á óvart því hann hugsaði lengi um svarleik sinn. 44. - e4+! 45. Kc3 Rb5+ 46. Kc4 Eftir 46. Kb3 Hf3 47. Hh6+ Kd7 48. Kc4 Hxe3 49. Kxb5 Hxa3 er svarta e-peðið afar sterkt og hann heldur jöfau. 46. - Rxa3+ 47. Kd4 Hxh2 48. Hh6+ Kd7 Þótt Karpov standi við jafateflis- dymar er margt að varast. Lakara var t.d. 48. - Kf7 vegna 49. Ke5! ásamt 50. Rf5 með máthótunum. 49. Rd5 Besta vinningstilraunin. Ef 49. Kxe4 þá er 49. - Hb2 50. Rd5 Hb3 viðunandi lausn og 49. Ke5 má einn- ig svara með 49. - Hb2 og svartur sleppur lifandi. Karpov hugsaði nú þar til hann átti aðeins fjórar mínút- ur eftir af umhugsunartímanum á sjö leiki - og fann réttu leiðina. Skák Jón L Árnason 49. - h4! 50. Hxh4 Hxh4 51. gxh4 g3 52. Rf4 Eða 52. Re3 Rc2 + 53. Kxe4 Rxb4 og heldur létt jöfau, eða 52. Ke3 Rc2+ og b-peðið fellur aftur. 52. - Rc2+ Og þeir sættust á jafatefli. Eftir 53. Kxe4 Rxb4 blasir jafateflið við og lítið er að hafa eftir 53. Kc3 (53. Kc5 Rel) Re3 54. Re2 (hótunin var 54. - Rd5+) g2 55. h5 Rf5 ásamt 56. - Ke6 og svartur getur ekki tapað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.