Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Blaðsíða 26
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
4 herbergja íbúð, miðsvæðis í Reykja-
vík, til leigu frá 1. september nk. til
1. júní 1987. Tilboð sendist DV, merkt
„9 mánuðir", fyrir 7.ágúst.
Leiguskipti. fbúð á ísafirði er til leigu
í skiptum fyrir íbúð á Reykjavíkur-
svæðinu. Uppl. í síma 94-3660.
Barnlaust par óskar eftir l-2ja herb.
íbúð sem fyrst. 14 árs fyrirfram-
greiðsla möguleg. Reglusemi og góð
umgengni. Sími 994341 e. kl.18. Ama.
Litil, snotur, 2 herbergja íbúð með eld-
húskrók i miðbæ Reykjavíkur til leigu
frá l.ágúst nk. Svör berist DV strax
merkt „Reglusemi 456“.
Rétt við Borgarspítalann er til leigu 2ja
herb. íbúð, eldhús og baðherbergi á
jarðhæð. Tilboð sendist DV, merkt
„Austurbær 578“.
Herbergi með séreldhúsi og baði til
leigu í vesturbæ á'8000 þús. á mán-
uði. Tilboð sendist DV merkt „V 8“.
Litil 3ja herb. ibúð til leigu, frá og með
september. Tilboð ásamt uppl. um fjöl-
skyldustærð sendist DV, merkt „Vest-
urbær 607“.
3ja herb. íbúð til leigu frá 1. nóv., er
í neðra Breiðholti. Tilboð sendist DV,
merkt „Breiðholt 596“.
■ Húsnæði óskast
Reglusaman nema vantar íbúð frá 1.
sept. nk, sem næst miðbænum. Rúm-
gott herbergi með aðgangi að eldhúsi
og baði kæmi til greina. Skilvísum
greiðslum og góðri umgengni heitið.
Uppl. í síma 77779 og 53663.
3 þroskaþjálfanemar óska eftir að taka
á leigu 4-5 herb. íbúð frá 1. sept.
Reglusemi og góð umgengni. Með-
mæli ef óskað er. Sími 96-21209 eftir
kl. 19.
Hafnarfjörður - Garöabær. Ung hjón
utan af landi, með eins árs bam, hann
í námi, óska eftir lítilli íbúð eða 1-2
herbergjum fram að áramótum, heim-
ilishjálp kemur til greina. Uppl. í síma
97-2977 eða 2975 eftir kl. 18, Dagmar.
Húseigendur, athugið. Vantar herbergi
og íbúðir á skrá. Opið 9-14, s. 621080.
Húsnæðismiðlun stúdentaráðs H.f.,
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut.
Kona um sextugt óskar eftir að hjálpa
gamalli konu eða karlmanni gegn lít-
illi íbúð eða góðu herbergi. Uppl. í
síma 20184 eftir hádegi á þriðjudag.
Leiguskipti eða eignaskipti. Óskum eft-
ir 3-4 herb. íbúð til leigu eða skiptum
á 4 herb. íbúð á Sauðárkróki. Erum 4
í heimili. Uppl. í síma 35936 og 618031.
Námsmaður frá Akureyri óskar eftir að
taka á leigu l-3ja herb. íbúð í Reykja-
vík. Skipti á 3ja herb. íbúð á Akureyri
möguleg. Uppl. í síma 39900 og 42789.
Reglusamur karlmaður óskar eftir ein-
staklingsíbúð á stór Reykjavíkur-
svæðinu frá 15. ágúst, rúmgott herb.
með hreinlætis og þvottaaðstöðu
kæmi til greina. Tilboð sendist DV,
merkt „Húsnæði 586“.
Frá fundinum á milli íbúanna og
DV-mynd GVA
Hafa nýir ibúar
forgang í Kópavogi?
„Þessi fundur olli mér vonbrigðum.
Mér fundust forkólfar bæjarins sýna
lítinn skilning á okkar sjónarmiði og
þvi vandamáli sem við teljum þetta
rvera. Þeir fengu frest til að athuga
kröfúr okkar og leita leiða til úrbóta.
Meira vil ég ekki segja að svo stöddu,"
sagði Jón Skaftason yfirborgarfógeti
sem er einn af forvígismönnum íbú-
anna við Sunnubraut í Kópavogi. Eins
og sagt var frá í DV á föstudaginn eru
deilur uppi milli íbúanna og Kópa-
vogsbæjar vegna frágangs á nýlagðri
skolpleiðslu. Höfðu íbúamir sent bæj-
arfélaginu undirskriftalista og bæjar-
stjómin óskaði eftir fundi um þessi
mál.
Þessi deila kemur ekki öðrum íbúum
vesturbæjarins á óvart en þeir tóku í
sama streng og íbúi við Sunnubraut
sem sagði: „Við sem höfum búið héma
lengi erum orðin mjög pirruð yfir því
hvemig sífellt er verið að reyna að
laða nýja íbúa að á kostnað eldri
hverfa, þeir hafa alltaf forgang. Þetta
hefúr verið áberandi við gatnagerð og
þetta sjónarmið virðist eiga að ráða
ferðinni í þessu líka. Þeir tengja nýja
íbúa við klóak en hugsa ekkert um
hvar þetta lendir."
íbúunum leist ekki vel á frestinn sem
bæjarfélagið bað um. Þeir bentu á að
forsvarsmenn bæjarfélagsins höfðu
ekki viljað setja nein tímatakmörk. í
Kópavogi er fjárhagsáætlun endur-
skoðuð um miðjan ágúst og ætla
íbúamir að tekin verði afstaða í máli
þeirra. Ef ekki óttast þeir að málinu
verði þvælt fram og aftur og að lokum
drepið á dreif.
JFJ
„Málinu verður ekki
kastað út í hom“
Kristján Guðmundsson, bæjarstjóri
í Kópavogi, sagðist telja fundinn hafa
verið gagnlegan og að báðir aðilar
hafi staðið upp með það að markmiði
að leysa málið með friðsemd. „Til-
gangur fundarins var tvíþættur. I
fyrsta lagi kynntum við alla holræsaá-
ætlunina og áframhald hennar fyrir
íbúunum en holræsið mun fara vestur
fyrir þessa byggð eftir 2 ár. í öðm lagi
hlýddum við á viðhorf íbúanna i þessu
máli,“ sagði Kristján. Hann segir að
þeir hafi alveg getað tekið undir sumt
af því sem íbúamir segðu en staðan
væri erfið. „Við getum lítið gert án
þess að það bitni á öðrum framkvæmd-
um eða neyðumst til að taka lán.
Fjárhagsáætlun bæjarins er ákveðin í
janúar og því er ekki mikið olboga-
rými til breytinga á þessum tíma árs
eins og gefúr að skilja," sagði Kristj-
án. Kristján sagði að erfitt væri að
gefa upp ákveðinn tíma, til þess væri
svigrúmið of þröngt og ekki hægt að
ræða hugsanlegar leiðir fyrr en fjár-
hagsáætlun bæjarins hefði verið
endurskoðuð. „Við viljum skoða þetta
með jákvæðum huga og þetta verður
rætt strax á fundi hjá okkur á mið-
vikudaginn. Við munum gera það sem
við getum og málinu verður ekki kast-
að út í hom,“ sagði Kristján Guð-
mundsson.
JFJ
Blönduóssbarnið á
leið til Noregs
„Við erum mjög ánægð með að þetta
mál leystist þó ýmislegt hefði mátt
fara örðuvísi. Ýmislegt í meðferð fé-
lagsmálastofnunar á málinu mátti
telja undarleg vinnubrögð en ég held
að við getum meðal annars þakkað
umfjöllun DV það að okkur tókst að
ia úr málinu skorið í tæka tíð,“ sagði
fósturmóðir „Blönduóssbamsins" svo-
ne&ida, er hún stóð á skipsfjöl
Norrönu, í þann mund að leggja upp
í ársferð til Noregs. Fósturforeldrun-
um var dæmdur forráðaréttur yfir
baminu og búast þau nú til að dvelja
ár í Noregi.
-S.Konn.
Datt í sjóinn þar
sem klóakið vall út
„Klóakmál hér í Garðabæ em í
hreinasta ólestri og sérstaklega er
þetta slæmt þegar æska bæjarins er
látin svamla í þessu,“ sagði Garð-
bæingur nokkur sem hafði samband
við DV. Hann sagði frá því að þar
sem siglingaklúbburinn Vogur hefði
aðstöðu sína væri ástandið ekki
geðslegt. „Ég get sagt ykkur frá
dreng sem kom heim til sín dag eftir
dag úr siglingaklúbbnum dmllugur
uppfyrir haus. Þegar móðir hans fór
að grennslast fyrir um hverju þetta
sætti komst hún að því að stráksi
æfði sig í að hvolfa bátnum beint
fyrir framan útrennsli á klóakröri
því þar var sjórinn heitastur," sagði
Garðbæingurinn.
Ungur Garðbæingur, sem mikið
hefur starfað í siglingaklúbbnum,
sagði að vegna þessa hefði siglinga-
klúbburinn færst utar með sína
starfeemi og hefði nú sett upp flot-
bryggju til að ástandið yrði skaplegt.
Hann sagði að vegna byggingar
hafnar út frá Stálvík hefðu straumar
breyst og straumurinn sem hefði tek-
ið það versta kæmi nú ekki inn að
ströndinni í jafhríkum mæli. Annar
sagði: „Við sem siglum á sundunum
getum hæglega séð matseðla heilu
hverfanna.
Kristján Óli Hjaltason, formaður
siglingaklúbbsins, vildi lítið segja
um málið en sagði þó að mengun
væri öllum til ama. „Við hins vegar
ræðum við okkar bæjarfélag og höf-
um skilning á því hver eru forgangs-
verkefni," sagði Kristján Óli.
„Sýklar lifa stutt í íslenskum
sjó“
Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri í
Garðabæ, tók fúslega undir að
ástandið væri slæmt í skolphreins-
unarmálum en sagði átak framund-
an í þeim málum. „Straumamir
virðast hafa breyst þegar við lengd-
um garðinn fyrir framan höfnina.
Það ber meira á mengun en áður.
Ég hef þó tvisvar farið að skoða
vegna þessara ógurlegu sagna sem
berast og þetta var alveg tært eins
og drykkjarvatn á kantinum þannig
að þetta er greinilega eitthvað mis-
Stráksi velti sér i klóaki því þar var sjórinn heitastur.
munandi. Hins vegar vitum við ekki
til þess að nokkrum manni hafi orð-
ið meint af enda lifa sýklar stutt í
íslenskum sjó. En ástandið er slæmt
og það vita allir. Við erum þátttak-
endur í átaki í holræsamálum sem
var skipulagt af skipulagsstofu höf-
uðborgarsvæðisins," sagði Jón
Gauti. Hann sagði að þegar væri
hafinn undirbúningur 1. áfanga
þessa verkefnis sem felst í að tengja
saman útrásir, setja grófhreinsun á
þær og koma þeim utar. Jón Gauti
sagði að þessu ætti að ljúka fyrir lok
kjörtímabilsjns.
JFJ
Ferðahugur
í ísfirðingum
Bjami Guðmaisscn, DV, fsafixði:
Það er kominn ferðahugur í ís-
firðinga eins og aðra landsmenn
enda mesta ferðahelgi ársins fram-
undan. Að sögn Kristínar Karls-
dóttur, hjá ferðaskrifetofú Vest-
fjarða, hafa verið töluverðar bókanir
vegna helgarinnar. Mest hefúr verið
pantað á útihátíðina í Skeljavík við
Hólmavík en ferðaskrifetofa Vest
flarða og flugfélagið Emir ætla að
halda opinni loftbrú á milli tsafjarö-
ar og Hólmavíkur alla helgina. Þá
sagði Kristín allmarga ísfirðinga
ætla að hætta sér út fyrir fjórðung-
inn, til dæmis á þjóðhátíð í Eyjum.
Töluverður straumur ferðamanna
hefúr legið til ísafjarðar í sumar og
virðist hann aukast ár frá ári. Frá
bænum bregða menn sér svo í rútu-
ferðir um nágrennið eða skoða
Vestfirði úr lofti. Enn aðrir fara með
MS Fagranesi um djúp eða norður
á Strandir.
BSRB styrkir
hópuppsagnir
Stjórn Bandalags starfemanna ríkis
og bæja samþykkti á fundi i gærkvöldi
að beita verkfallssjóði bandalagsins til
styrktar þeim aðildarfélögum sem vilja
beita hópuppsögnum í kjarabaráttu
sinni. Má segja að með því hafi stjóm-
in viðurkennt hópuppsagnir sem
kjarabaráttutæki.
f ályktun, sem stjóm BSRB sam-
þykkti á fundinum, segir meðal
annars: „Sú afetaða fjármálíiráðuneyt
isins til samningsréttar opinberra
starfsmanna sem ljóst kemur fram í
sérsamningi við Landssamband lög-
reglumanna kallar á skjót viðbrögð
aðildarfélaga BSRB og heildarsam-
takanna og nýja starfshætti."