Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986.
7
Viðskipti
Loks gátu sjómenn
sætt sig við loðnuverð
Reykjavík
Loksins kom að því að verðlagning
á loðnu var með þeim hætti að sjó-
menn gátu sætt sig við hana. Á
undanförnum árum hefur það verið á
allra vitorði, sem nálægt verðlagningu
hafa komið, að einstaka verksmiðjur
hafa getað greitt hærra verð en það
sem Verðlagsráð sjávarútvegsins hef-
ur ákveðið. Svo langt hefur þetta
gengið að kaupandi einn lýsti því yfir
á fundi í ráðinu að það væri alveg
sama hvaða verð yrði ákveðið, hann
greiddi þeim sem vildu landa hjá sér
að minnsta kosti 10% meira en ákveð-
ið yrði. Aðferð sú sem oddamaður
heför samþykkt hefur leitt til þess að
einstaklingar, sem umráð höfðu yfir
mörgum stærstu skipunum, misstu
þau í gin verksmiðjanna, sem keyptu
hvert skipið af öðru þrátt fyrir barlóm.
Virtist þeirri stefhu haldið að endur-
hæta sem minnst verksmiðjumar og
þannig er það í dag að þær eiga nú
meginhluta af stærstu skipunum.
Venjulega hefur verðið verið um það
bil helmingur þess verðs sem staðið
heför til boða erlendis. Nú er rekið
upp ramakvein sökum þess að þeir sem
bestu verksmiðjurnar hafa geta borg-
að sæmilegt verð fyrir loðnuna, og
allt í vandræðum, en ekki er hægt að
breyta verðlagningu sem samkomu-
lagi einstaklinga, því setja þarf
bráðabirgðalög ef því á að breyta,
annars er hætt við að mörg verðlagsr-
áð yrðu fljótlega til. Þeir sem keyptu
brotajámið frá Noregi fyrir nokkrum
ámm og em við það að reka íbúa
þorpanna burt þegar þessar fínu verk-
smiðiur eru starfandi og stoppa nú
veiðimöguleika þeirra skipa sem vel
gætu selt aflann erlendis með góðum
hagnaði. Fyrir löngu átti ég tal við
dr. Þórð heitinn Þorbjamarson um
hvaða ráð ættu við til þess að frysti-
húsin framleiddu betri vöm. Hann
sagði sem svo að á meðan þau græddu
þá væri ekki að vænta breytinga.
London
Billinggate.
Síðustu viku júlímánaðar var dauft
yfir fiskmarkaðnum á Billinggate og
var svo komið síðustu dagana að
margar fiskbúðir vom lokaðar og
sumar í nokkrar vikur. Verð á laxi
var frá 205 krónum smæsti laxinn en
stærsti laxinn var á kr. 284 kílóið.
Nokkuð var selt af makríl og síld,
verðið á þessum tegundum hefur verið
nokkuð viðunandi síðustu viku. Verð
á rækju heför farið hækkandi að und-
anfömu og er gert ráð fyrir að það
eigi enn eftir að hækka þar sem ekki
er mikið framboð af henni. Þrátt fyrir
að margir hafi lokað smásöluverslun-
um sínum hefur verðið á ýmsum fiski
verið vel í meðallagi, svo sem rauð-
sprettu en verðið á henni var síðustu
viku 79 til 104 kr. kílóið. Enskur þorsk-
ur, hausaður, var á kr. 140 til 190
kílóið, ufsaflök 62 til 82 kílóið. Síld fór
á 52 kr. kílóið. Ýsuflök vom seld á
Fiskrnarkaðirnir
Ingóifur Stefánsson
kr. 168 kílóið og skötubörð á kr. 52
þau smæstu, meðalstór á 78 kr. kílóið
og stór skötubörð á 140 kr. kílóið.
París
Á markaði Rungis var gott verð á
fiski þrátt fyrir nokkum hita og að
margir væm í sumarleyfum en ferða-
menn koma í staðinn fyrir þá sem
burt fara svo að nokkuð þarf af fiski
þrátt fyrir allt. Framboð er nokkuð
jafnt og verðið nokkuð gott. Þorskur
af frönskum skipum hefur verið frá 112
og allt í 190 kr. en innfluttur þorskur
hefur selst á kr. 168 til kr. 206 kílóið.
Ufsi hefur verið í sæmilegu verði og
heför selst á kr. 63 til kr. 100 en inn-
fluttur á aðeins hærra verði.
Verð á karfa hefur verið 75 til 98
kr. kílóið. Verð á skötubörðum er frá
kr. 100 til 198. Skötubörð em oft í
mjög háu verði, en ekki veit ég hvem-
ig þeir matreiða skötuna. Verð á
smáum laxi hefur verið 174 kr. kílóið.
Verð á stórum laxi kr. 384 kílóið. Yfir-
leitt var laxinn í góðu ástandi en þó
var nokkuð af laxinum gamalt í
geymslunum áður en hann var settur
í útflutningsumbúðir og var þess
vegna ekki eins seljanlegur.
England
Seldur var fiskur úr gámum frá 21.7.
til 25.7, samtals 270 tonn fyrir kr. 15,2
millj. Meðalverð á þorski var 55 kr., á
ýsu 59 kr., ufsa 26,70, karfa 22,70 og
kola kr. 55,16. Mikið framboð verður
á fiski á enska markaðnum næstu
daga og allt í óvissu um hvað markað-
urinn þolir.
New York
Aðalfréttimar frá markaði Filtoan
em þær að rækja hefur hækkað um 5
til 10 cent pundið, en annað er ekki
markvert þar að frétta af fiskmarkað-
inum. Talið er að ekki hafi verð á fiski
og fiskaförðum verið hærra áður, en
fiskverð hefur verið nokkuð gott og
stöðugt þar í vor og sumar.
Bolongne
Nokkrum sinnum hefur verið sagt
fi-á markaði í Bolongne í þessum pistl-
um en. venjulega hefur markaður þar
verið nokkm lægri en í París. Verðið
er þó oftast viðunandi fyrir þær teg-
undir sem við eigum erfiðast með að
selja. svo sem ufsa, karfa og aðrar teg-
undir sem em í litlu verði, t.d. í
Englandi. Þar heför verið nokkuð um
landanir fiystitogara og virðast þeir
hafa fengið þar viðunandi verð fyrir
frosinn fisk.
Þýskaland
Nokkuð hefur verið selt af fiski úr
gámum á þýska markaðnum að und-
anfömu. Verðið hefur verið koli, stór,
kr. 40.55. smár kr. 31,80, ufsi kr. 44,00
til 50.21. þorskur kr. 40,55 til kr. 55,00,
blálanga kr. 53.
Hull
Ms. Sólborg landaði 89 tonnum fyrir
kr. 2.5 millj. Meðalverð á þorski var
kr. 57.55. fiskurinn var allur 1. flokks.
Bv. Kambaröst landaði 29. júlí alls
174 tonnum f\TÍr kr. 7.9 millj. Meðal-
verð á þorski var 48 kr. kílóið.
Grimsby
Ms. Haukur landaði 24. júlí. alls 126
tonnum fyrir kr. 3,7 millj. Meðalverð
Vá þorski var kr. 59,13 kg.
Ms. Börkur landaði 24.-25. júlí, alls
153 tonnum fyrir kr. 9.4 millj. Bv.
Snorri Sturluson landaði 24.7.. alls 150
tonnum f\TÍr 7 milij. kr.
Hraustleg rýmingarsala
í tilefni flutninga höfum við tekið rækilega til á bygginga-
vörulagernum. í nýju húsakynnunum á Stórhöfða bjóðum
við um þessar mundir alls konar afganga og efnisbúta,
flísar, hreinlætistæki, teppi, teppamottur am.fl. með
30—50% afslætti. Þú gerir ósvikin reyfarakaup á þessari
rýmingarsölu!
BYGGINGAVÖRUR
Stórhöföa, Sími 671100