Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Blaðsíða 30
42 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986. SM4 SHí f\& Chris De Burgh - Lady in Red (A&M) Við og við koma fram á sjónarsviðið ballöður sem bera af öðrum ballöðum á allan hátt, yfir þeim ein- hver klassískur keimur sem heillar mann. Hér er ein slík, flutt af írska ball- öðusöngvaranum Chris De Brugh og ég bið menn bara vel að njóta. Aðrar ágætar Skriðjöklar - tengja (Jiðskröklar) Þessi akureyrska bítla- hljómsveit hefur heldur betur vakið á sér athygli að undanförnu og er eigin- lega synd og skömm að plata hennar skuli ekki vera til sölu, hún hefði vafalaust orðið metsölu- plata. Þar fyrir utan er þetta stórgott lag sem á gott eitt skilið. Rod Stewart - Every beat of my heart (WB) Meiri ballöður, gamli rámi hjartaknúsarinn og gleði- maðurinn Rod Stewart, sem sungið hefur fleiri hundruð og fimmtíu ball- öður, slær enn í gegn með hugljúfu lagi sem er svipað að uppbyggingu og Sailing, sællar minningar. Það er stíll yfir þessu. Southside Johnny & The dukes walk away renée (RCA) Alveg síðan Bjöggi söng þetta lag hér um árið undir nafninu Þó líði ár og öld hefur íslenska þjóðin elsk- að það og gerir enn. Stan Ridgeway - Camouflage (I.R.S.) Hvað er svona ekta amer- ískt lag að gera á breska vinsældalistanum? Spyr sá sem ekki veit en hitt veit ég að lagið er gott, textinn segir líka skemmtilega sögu úr Víetnamstríðinu, allt í svipuðum dúr og lagið Jón tröll sem Guðmundur Jónsson söng hér um árið. Peter Cetera - Glory of love (WB) Nýja topplagið vestra, gamla Chicago brýnið Pet- er Cetera syngur þónokkuð gott lag sem óneitanlega minnir á Chicago en það er ekkert skrítið og alls ekki til að skammast sín fyrir. Ein afmynduð Kenny Loggins - Dancer Zone (CBS) Ekki veit ég í hvers konar félagsskap hann Kenny kallinn Loggins hefur lent, þessi áður hugljúfi sveita- maður er nú greinilega kominn á hættusvæði í tónlistinni. Hér er verr af stað farið en heima setið. -SÞS- Hefði máttvanda betur Greífamir - Blátt bloð Ef hægt er að tala um að einhver ein hljómsveit hafi slegið í gegn hér- lendis í vor og sumar, eru það tvímælalaust Greifamir frá Húsavík. Þeir sigruðu í Músíktilraunum Tónabæjar og rásar 2 og hafa í kjölfar þess leikið á hljómleikum víða um land og nú á dögum sendu þeir frá sér sína fvrstu plötu; fjögurra laga, 45 snún- inga plötu í breiðskífuformi eins og nú tíðkast mjög. Lögin á plötunni Blátt blóð eru öll samin af liðsmönnum Greifanna og eru þar iðnastir þeir Kristján Viðar Haraldsson hljómborðsleikari og Sveinbjöm Grétarsson gítarleikari. Platan hefst á laginu Útihátíð sem þegar hefur náð nokkrum vinsældum enda fer þar saman léttmelt lag og texti sem er sem sniðinn fyrir sumarið og þá sérstaklega þá helgi sem fer í hönd. Lagið er sem fyrr sagði léttmelt en samt er að því nokkuð hráabragð sem á revndar við önnur lög plötunnar líka og einhvem veginn finnst mér að því hefði mátt kippa í liðinn með örlítið meiri vinnu. Þetta hefði verið skiljanlegt ef Grei- famir hefðu gefið plötuna út sjálfir en þar sem þeir eru svo heppnir að hafa útgefanda hefði að mínu mati mátt vanda meira til .verka. Ég vil fá hana strax er annað lag plötunnar. frekar veik tónsmíð og textinn ekki uppá marga fiska. Hlið tvö hefst á laginu Er þér sama?; þokkalegt lag en fullflatt og vantar í það afgerandi viðlag sem sker sig úr laglínunni. Þama hef ég á tilfinning- unni að hefði mátt bæta úr með meiri vinnu. | Platan endar svo á lagi í reggae stíl, Sólskinssöngurinn heitir það, ágæti- slag sem lélegur texti fer illa með, eiginlega skólabókardæmi um hvemig afleitur texti getur gert það að verkum að maður fær fljótt leiða á annars ágætu lagi. Hljófæraleikur á plötunni er allur í höndum Greifanna og er hann hnökralaus en auðheyrt er að þessa pilta skortir enn nokkra reynslu til að vel megi vera. Sömu sögu er að segja um söng. En mjór er mikils vísir. -SÞS- Marvin Gaye - Motown Remembers Stórsóngvara minnst Þeir sem sáu tuttugu ára afinælis- þátt Motown plötufyrirtækisins síð- astliðið laugardagskvöld hafa vafalaust tekið eftir því að eitt aðal- númer þáttarins var soulsöngvarinn snjalli, Marvin Gaye. Um leið upp- götvuðu flestir að hér var um gamlan þátt að ræða því það em nærri tvö ár síðan Marvin Gaye lést við heldur leiðinlegar aðstæður á heimili föður síns. Motown hefur nú gefið út plötu i minningu Marvin Gaye, undir nafriinu Motown Remembers. Það sem er sér- stakt við þessa plötu er að hún inniheldur áður óútkomin lög með Marvin Gaye frá ámnum 1963-1972. Ekki er mér kunnugt um hvers vegna þessi lög hafa ekki áður komið út. Nokkur þeirra em hin sæmilegasta lagasmíð, þótt ekkert þeirra veki nokkra eftirtekt. Manni dettur einna hefst í hug að Marvin Gaye hafi ekki verið nógu ánægður með lögin og lagt þau til hliðar. Þá er minningu hans lítill greiði gerður með útgáfu þeirra. Lögin hafa öll fengið andlitslyftingu. Það er að upprunalegi hljóðfæraleik- urinn hefur verið máður út og spilað inn aftur til að gera þau boðleg tækni- lega. Þessi andlitslyfting hefur tekist furðanlega vel. Lögin minna á þann tíma sem Marvin Gaye söng þau inn. Það er til dæmis greinilegur tímamun- ur á The World Is Rated X sem er frá 1971 og Lonely Lover frá 1965, svo tekin séu fyrstu tvö lögin á plötunni. En því miður, það er ekkert lag á þess- ari minningarplötu sem kemst nálægt Whats’s Going On að gæðum, svo tek- ið sé eitt lag sem gert hefúr nafh Marvin Gaye ódauðlegt meðal soulá- hugamanna. Það em margir þekktir Motown lagahöfundar sem hafa samið þau tólf lög sem em á plötunni. Má þar nefna, fyrir utan Gaye sjálfan, „Smokey" Robinson, Holland, Dozier, Holland, Martha Reeves og svo sjálfan Berry Gordy, stofnanda og aðaleiganda Motown fyrirtækisins. í heild er þessi minningarplata um Marvin Gaye frekar litlaus og mæli ég með henni eingöngu fyrir þá sem hafa áhuga á tónlist frá þessum árum og svo að sjálfsögðu aðdáendur soul- söngvarans mikla, Marvin Gaye. HK Wax - Magnetic heaven Dugar í diskótek Tímamir breytast og mennimir með. Dúettinn Wax samanstendur af tveim reyndum jöxlum úr poppbransanum sem frægir em fyrir margt annað en harðsnúna danstónlist. Hér er um að ræða þá Andrew Gold og Graham Gouldman. Sá fyrmefhdi hefúr mikið starfað með Lindu Ron- stadt og Gouldman var lengi meðlimur í þeirri frægu sveit 10 CC. Það er fátt á Magnetic heaven sem segir til um hvað þessir kappar hafa áður fengist við í poppinu. Á plötunni er fyrst og fremst að finna danstónlist sem gæti sómt sér í hvaða diskóteki sem er. Pfatan hefst reyndar á prýðispopp- lagi sem heitir réttilega Rigth between the eyes. Það hittir beint í mark. Þetta lag er mjög í anda félaganna Hall and Otes og eitt af þeim skemmtilegri sem heyrst hafa þetta árið. Framhaldið er því miður ekki í samræmi við þessa ágætu byrjun. Lögin sem á eftir fylgja em allt annars eðlis, taktföst danslög þar sem hljóðgervlar og rytmagítarar em allsráðandi. Útsetningar em íburðarmiklar og í flestum tilvika yfir- drifriar. Lög eins og Shadows of love og titíllagið Magnetic heaven skera sig helst úr þegar Rigth between the eyes er undanskilið. Hin lögin vinna lítið sem ekkert á, hugsanlega ágæt í hjómkerfum diskótekanna en ákaflega óþægileg til notkunar á einkaheimil- um. Magnetic heaven er í alla staði vön- duð plata. En Gold og Gouldman hafa samt ekki haft árangur sem erfiði. Tónlistin er, ef á heildina er litið, afar ópersónuleg og lítt til þess fallin að ná hylli hins almenna hlustanda. Slíkt gæti þó breyst á ljósagólfúm dans- húsanna. Þar er þessi tónlist á heimavelli. -ÞJV POPP SMÆLKI Sæl nú!. . . .Allar sögusagn- ir um að hljómsveitin Sigue Sigue Sputnik sé hætt eða um það bil að hætta hafa nú verið bornar til baka og það jafnframt tilkynnt að hljómsveitin muni taka upp hijómleikahald á ný þegar liða fer á haustið. Fyrsta breíðskifa Sigue Sigue Sputnik kom út síðastliðinn mánudag í Bretlandi og heit- ir platan Flaunt. Upptöku- stjóri er Georgio Moroder og sú nýbreytni er tekin upp á plötunni að stuttar auglýs- ingar eru leiknar á milli laga. Eitthvað fyrir islenska piötumarkaðinn? . . .Johnny Lydon, áður Rotten að eftir- nafni, hefur nú í hyggju að höfða mál á hendur framleið- endum kvikmyndarinnar Sid and Nancy en sú mynd fjall- ar um Sid Vicious heitinn, fyrrum liðsmann og félaga Lydons i hljómsveitinni Sex Pistols. Ástæðan fyrir hugs- anlegri málshöfðun Lydons hljóðar uppá ærumeiðingar og brot á friðhelgi einkalifs- ins, en herra Lydon er núorðið heiðvirður borgari sem er annt um æruna. . . Steve Strange, fyrrum söngvari hljómsveitarinar Visage, maður sem ber nafn með rentu, lenti i klóm bresku iögreglunnar á dög- unum og hefur nú verið ákærður fyrir þjófnað og svik og tilraun til enn meiri svika. Glæpurinn mcinti á að hafa átt sér stað i útibúi Bank of Scotiand i London. . . Þegar lag Ma- donnu, Papa don't preach, komst i fyrsta sinn inn á topp 40 i Bretlandi þurfti ungfrúin að sjálfsögðu að koma fram i þættinum Top of the pops, sem hún og gerði. Hins vegar fannst ýmsum sómakærum ábyrgð- armönnum þáttarins stúlkan vera full glennulega klædd ofantil og var því hluti af framiagi Madonnu til þáttar- ins ritskoðaður út. . .Bob kallinn Dylan var að senda frá sér enn eina breiðskif- una, Knocked out loaded heitir sú og þar er að finna, auk laga eftir Dylan sjálfan, lög eftir þá Tom Petty, Kris Kristofferson og leikarann Sám Shepard. . .Fleiri stór- veldi en Dylan eru í plötu- hugleiðingum, Paul Young er þessa dagana staddur í M ílanó á ítaliu þar sem hann vinnur að upptökum að nýrri plötu sem áætlað er að komi út i október næstkomandi. . .Um svipað leyti kemur út plata sem eflaust margir bíða eftir, Alison Moyet vinnur nú baki brotnu i Los Angeles ásamt upptökustjóranum Jirnrny lovine, við að hljóðrita efni á nýja plötu. . .Tina gamla Turner lætur ekki sitt eftir liggja, hún stefnir að þvi að gefa út nýja plötu i septem- ber og á platan að heita Brake every rule. . .Roger Daltrey, fyrrum söngvari Who, ætlar að taka sér frí frá tónlistinni fram aö jólum á meðan hann starfar sem leikari hjá BBC en hann hef- ur fengið hlutverk í þátturn sem heita The little match girl. . .bless i bili. - SÞS-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.