Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Blaðsíða 28
40
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986.
Andlát
Sigríður Þóra Harðardóttir er lát-
in. Hún fæddist á Akureyri 10. apríl
1971, dóttir hjónanna Svanfríðar
Larsen og Harðar Þorleifssonar. Si-
gríður var þriðja í röð fjögurra
systkina. Hún átti við alvarlegan
sjúkdóm að stríða síðustu árin. Út-
förin fer fram í dag, 1. ágúst, kl. 13.30
frá Akureyrarkirkju.
Sólveig Dagmar Erlendsdóttir,
Laugavegi 162, lést í Borgarspítalan-
um þriðjudaginn 29.júlí.
Jóhanna Vilhelmína Jónatans-
dóttir.Trönuhólum 16, Reykjavík,
lést að heimili sínu aðfaranótt 30 júlí.
Ingibjörg J. Kaldal andaðist að
heimili sínu, Miðleiti 7, fimmtudag-
inn 31. júlí.
Ólöf M. Guðmundsdóttir lést í
Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað 30.júlí.
Regína Stefánsdóttir frá Tjamar-
lundi, Stokkseyri, er andaðist í
Hjúkrunarheimilinu Ljósheimum,
Selfossi, 24. júlí verður jarðsungin
frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn
2. ágúst kl. 14.00.
Garðar Jónsson skipstjóri, Flat-
eyri, lést þriðjudaginn 29. júlí í
sjúkrahúsi Isafjarðar.
Egill Þorsteinsson, Stangarholti
16, andaðist í Landspítalanum 18.
júlí síðastliðinn. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Ferðalög
Ferðir um verslunarmanna-
helgi 1.-4. ágúst.
Brottför kl. 20. föstudag
1) Fjöllin upp af Kálfafellsdal. Gist í tjöld-
um.
2) Skaftafell-Þjóðgarðurinn. Gist í tjöld-
um. Gönguferðir um þjóðgarðinn.
3) Þórsmörk-Fimmvörðuháls (dagsferð).
Gist í Skagfjörðsskála.
4) Þórsmörk og nágrenni. Gönguferðir við
allra hæfi um mörkina. Gist í Skagfjörðs-
skála.
5) Landmannalaugar-Langisjór-Sveins-
tindur-Eldgjá. Ekið í átt að Sveinstindi
og gengið á hann, komið við í Eldgjá. Gist
í sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum.
6) Álftavatn-Strútslaug-Hólmsárlón. Ek-
ið inn Mælifellssand og gengið frá
Rauðubotnum meðfram Hólmsárlóni í
Strútslaug. Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins
við Álftavatn.
7) Sprengisandur-Skagafjörður-Kjölur.
Gist í Nýjadal, Steinsstaðaskóla og Hvera-
völlum.
8) 2.-4. ágúst kl. 13 Þórsmörk - Gist í
Skagfjörðsskála. Upplýsingar og farmiðar
á skrifstofunni, Öldugötu 3. Tryggið ykkur
sæti tímanlega.
SMÁAUGLÝSINGAR DV
MARKADSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja
allt sem gengur kaupum og sölum.
Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV,
hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa, Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö.
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eiris.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum.
« Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera.
Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsíngar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Þú hringir...27022
Við birtum...
Það ber árangur!
Smáauglýsingadeildln er í Þverholti 11.
Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
o ER SMÁAUGLÝSINGABLAÐK.)
Utvarp - sjónvarp
Guðjón Brjánsson félagsráðgjafi:
„Svavar Gests ber af ‘
í gærkvöldi var ég aldrei þessu
vant svolítið laus í rásinni og skipti
oft á milli rásar eitt og tvö. Klukkan
átta var á dagskrá snotur leikgerð
Þórdísar Bachmann um Hannes
Baldursson, áhugamann um fiðlu-
leik. Þar sannaðist gömul saga og
ný að þolinmæðin þrautir virmur
allar. Ég náði að hlusta á efstu lögin
á vinsældalista rásar tvö og gladdist
mjög þegar mínir menn að norðan,
Jöklamir, skriðu enn ofar á listann,
í annað sætið. Það fer allt í sót og
ösku ef þeir verða ekki á toppnum
næst. Ég hlustaði síðan með öðru
eyranu á þáttinn Um náttmál sem
mér finnst svolítið misjafii. I gær var
hann þó ágætlega afslappaður og
notalegur. Ég greip einnig niður i
þáttinn Reykjavík í augum skálda
sem er enn einn afmælispakkinn til uð athyglisverðir þættir og hafði ég
Reykjavíkurborgar. Þetta eru nokk- gaman af.
Eg reyni yfirleitt að fylgjast með
Svavari Gests í hljóðvarpi. Það er
sama hvað hver segir, mér finnst
hann bera af í dagskrárgerð þegar
um létt efni er að ræða. Öllum nei-
kvæðum bylgjum í hans garð vil ég
vísa til föðurhúsanna. Þama er vel
talandi maður á ferð og er það meira
en hægt er að segja um marga aðra
útvarpsmenn, sérstaklega á rás tvö.
Þar finnst mér voðalega oft pottur
brotinn á þessu sviði.
Ég treysti mér ekki að greina frá
síðustu dagskrárliðunum í gær-
kvöldi. Ég hlustaði þó aðeins á
Gunnlaug Sigfusson í þættinum
Strákamir frá Muswellhæð sem var
nokkuð athyglisverður og finnst mér
virðingarvert þegar menn taka sig
til og rekja sögu popptónlistar-
manna.
Útivistarferðir
Ferðir um verslunarmannahelgina:
1.-4. ágúst: Brottför föstud. kl. 20.00.
1. Þórsmörk-Goðaland. Gist í skálum
Útivistar, Básum, og tjöldum. Gönguferðir
við allra hæfi. Kvöldvökur. Friðsælt um-
hverfi.
2. Núpsstaðarskógar. Stórkostlegt svæði
inn af Lómagnúpi. Gönguferðir, m.a. að
Tvilitahyl með Núpsárfossi og á Súlut-
inda. Veiðimöguleikar. Tjaldað.
3.
Eldgjá-Landmannalaugar-Fjallabaks-
leiðir. Gist í góðu húsi við Eldgjá og farið
í dagsferðir þaðan, m.a. að Langasjó og
Sveinstindi, Strútslaug og í Laugar.
4. Snæfellsnes-Breiðafj arðareyj ar-Flat-
ey. Skoðunarferðir og léttar göngur.
2.-4. ágúst: Brottför laugard. kl. 8.00.
5. Þórsmörk-Goðaland. Athugið að ferðir
eru til baka úr Básum bæði sunnud. og
mánudag. Dagsferðir úr Reykjavík kl. 8
í Þórsmörk. Stansað 3-4 klst.
6. Fimmvörðuháls. Gengið frá Skógum í
Bása, ca 8 klst. Gist í Básum.
7. Hornstrandir-Hornvík31. júlí-5. ágúst.
Góð fararstjóm í ferðunum. Gönguferðir
fyrir alla og hressandi útivist.
Sumarleyfisferðir Útivistar:
a. Lónsöræfi 2.-9. ágúst. Tjaldað við Illa-
kamb. Kynnist óbyggðum austan Vatna-
jökuls. Hægt að ljúka ferðinni með
dagsgöngu yfir í Hoffelsdal. Fararstjóri:
Egill Benediktsson.
b. Hálendishringurinn 8.-17. ágúst. Fjöl-
breytt hálendisferð: Spengisandur-Gæsa-
vatnaleið-Askj a-Kverkfjöll-Snæfell-
Mývatn. Tjöid og hús. Fararstjóri: Björn
Hróarsson.
c. Austfjarðaferðin 17.-24. ágúst. Fyrst
farið í Mjóafjörð og síðan í Viðfjörð en
þar verður tjaldbækistöð með dagsgöngu-
ferðum, m.a. á Barðsnes, Gerpi, í Vaðlavík
og víðar. Gist í húsum. Tilvalin fjölskyldu-
ferð. Veiði, berjatínsla, Hestar. Fararstjóri:
Jón J. Elíasson.
e. Hornstrandir-Hornvík um verslunar-
mannahelgina, 31. júlí-5. ágúst. Tjaldað
við Höfn.
f. Hornstrandir-Lónafjörður o.fl. 7.-14.
ágúst. Góð Homstrandaferð með nýju
sniði. Fararstjóri: Gísli Hjartarson. Sum-
arleyfisferðir Útivistar em ódýr og góð
leið til að kynnast landinu. Uppl. og farm.
á skrifst., Grófinni 1, símar 14606 og 23732.
Sjáumst. Útivist, ferðafélag.
Austurleið - Þórsmerkurvök-
ur
Að gefhu tilefni skal það tekið fram að
Húsadalur í Þórsmörk er öllum opinn.
Næg tjaldstæði og skálapláss fyrir hendi.
Ýmislegt
Samtökin Lífsvon opna skrif-
stofu
Lífsvon er samtök fólks sem telja sér skylt
að standa vörð um líf ófseddra bama. Sam-
tökin voru stofnuð fyrir rúmu ári og
formaður þeirra er Hulda Jensdóttir, for-
stöðumaður Fæðingarheimilis Reykjavík-
ur. Síðastliðið ár hafa kraftar samtakanna
að mestu farið í upplýsingastarfsemi og
félagasöfnim auk nokkurrarráðgjafarsem
að mestu hefur verið á persónulegum
grunni. Nú hafa samtökin opnað skrifstofu
að Auðbrekku 2 í Kópavogi og er hún
opin kl. 15-17 alla virka daga og er síminn
þar 44500. Þar em veittar upplýsingar um
samtökin auk þess sem þar er aðstaða til
að sjá myndbandasafn sem samtökin eiga.
Síðar mun stefiit að því að koma á ráðgjaf-
arþjónustu á sama stað í þeirri von að
fleiri böm fái að lifa en líf þeirra verði
ejcki fljótfæmi og vanhugsun að bráð.
íslensk málfreyja í alþjóða-
stjórn
Þriðjudaginn 22. júlí var Erla Guðmunds-
dóttir kjörin í stjórn alþjóðasamtaka
málfreyja á ársþingi þeirra í Kansas City,
Missouri, í Bandaríkjunum. Ársþingið
sátu fulltrúar deilda víðs vegar úr heimin-
um.
Erla er aðili að málfreyjudeildinni Vörð-
unni í Keflavík, fyrstu íslensku málfreyju-
deildinni, sem bauð hana fram til embættis
varaforseta alþjóðasamtakanna á fimmta
svæði.
Hnettinum er skipt niður í sex svæði og
eru fjögur þeirra í Bandaríkjunum þar sem
flestir aðilar hafa verið starfandi fram til
þessa en síðan nær fimmta svæði frá aust-
urströnd Bandaríkjanna og allt til ísrael
og markast rr.illi pólanna í norðri og suðri.
Fimmta svæði nær því yfir Evrópu og Afr-
íku ásamt ísrael. Sjötta svæði nær síðan
yfir Asíu og Kyrrahaf.
Innan fimmta svæðis starfa málfreyjur
í níu löndum: á Islandi, í Bretlandi, Holl-
andi, Lúxemborg, Austurríki, Grikklandi,
ísrael, Zimbabve og Suður-Afríku og fiölg-
ar ört.
ísland er eina landið á Norðurlöndum
þar sem málfreyjusamtökin hafa náð að
skjóta rótum en viðgangur hér hefir orðið
mjög hraður á þeim 11 árum sem liðin eru
síðan fyrsta íslenska deildin var stofnuð í
Keflavík. Islenskar málfreyjur hafa líka
þýtt allt sitt þjálfunarefni og hafa þýðing-
amefndir í öllum ráðum sínum og mörgum
deildunum.
Erla tók við verðlaunum fyrir útbreiðslu
á ársþinginu en ísland og austurhluti
Ástralíu eru þar efst á blaði með 5 nýjar
deildir á árinu. Að auki hefir málfreyjum
fjölgað um 90 á fslandi umfram þær sem
hætt hafa á árinu og á ísland þar metið
yfir veröldina þetta árið.
Erla tekur við embætti 1. ágúst og held-
ur því til 31. júlí 1987. Hún mun þurfa að
sækja stjórnarfundi til höfuðstöðva al-
þjóðasamtakanna í Ahaheim í Kaliforníu
í Bandaríkjunum tvívegis á þessu tímabili
fyrir utan heimsóknir um fimmta svæði
og þarf einnig að gefa út fréttablað svæðis-
ins.
Á morgun, laugardaginn 2. ágúst,
eiga bræðumir Olafur Jónsson raf-
virkjameistari, Lynghaga 24,
Reykjavík, og Ágúst Jónsson skip-
stjóri, Nesbala 27, Seltjamamesi,
Tóiílist
Greifarnir - Blátt blóð
Hljómsveitin Greifarnir frá Húsavík sló
hressilega í gegn er hún tók þátt í Músík-
tilraunum ’86 á vegum Tónabæjar og rásar
2. Greifamir unnu þessa keppni sjálfum
sér til mestu furðu. Nú hafa þeir hljóðritað
fjögur lög sem hafa verið þrykkt í svart
plast. Frumsmíð sína á sviði hljómplötuút-
gáfu kalla Greifarnir Blátt blóð og eru þar
með trúir hinu sanna aðalsmannaeðli
sínu. Lögin sem þessi fyrsta plata félag-
anna inniheldur eru: Útihátíð, Ég vil fá
hana strax (Kortér í þrjú), Er þér sama
og Sólskinssöngurinn, allt lífleg lög við
spaugsama texta eins og vera ber. Greif-
arnir taka sig svona rétt mátulega alvar-
lega og eru staðráðnir í að láta aðra um
að frelsa heiminn. Þeir eru engir kross-
farar nema ef vera skyldi þegar útihátíðir
og sólskin eru annars vegar. Þeir sem
skipa hljómsveitina eru: Kristján Viðar
Haraldsson (hljómborð), Felix Bergsson
(söngur), Sveinbjörn Grétarsson (gítar),
Gunnar H. Gunnarsson (trommur) og Jón
Ingi Valdimarsson (bassi).
Auk þeirra komu Þorsteinn Jónsson,
Ólöf Sigurðardóttir og Edda Borg Ólafs-
dóttir nokkuð við sögu við gerð plötunnar.
Upptökumenn voru Sigurður Bjóla, Ól-
afur Halldórsson og Tryggvi Herbertsson
sem jafnframt annaðist upptökustjórn.
Hljóðritun fór fram í Mjöt og Hljóðrita,
Alfa sá um pressun og Prisma annaðist
fílmuvinnu og prentunina. Sveinbjöm
Gunnarsson hannaði umslagið og Bjarni
Jónsson sá um ljósmyndun. Útgefandi er
Steinar hf.
Pétur og Bjartmar:
Þá sjaldan maður lyftir sér
upp.
Pétur Knstjánsson og Bjartmar Guð-
laugsson hafa nú gefið út plötuna Þá
sjaldan maður lyftir sér upp. Platan geym-
ir 4 lög, tvö eftir Bjartmar og tvö erlend
lög. Allir textarnir eru eftir Bjartmar.
Þeim til aðstoðar eru valinkunnir menn.
Eiríkur Hauksson syngur bakraddir, Jó-
hann Ásmundsson annast bassaleikinn,
Gunnlaugur Briem sér um trommu- og
ásláttarleik, Kristján Edelstein leikur á
gítar og hljómborð og raddar að auki og
loks er það Eyþór Gunnarsson sem leikur
á hljómborð í einu lagi. Lögin sem þeir
félagar flytja eru: Fimmtán ára á föstu,
Ástaróður, Draumadísin og Ég mæti. Upp-
tökur fóru fram í Hljóðrita og önnuðust
þeir Sigurður Bjóla og Sveinn Kjartansson
hljóðritunina. Sveinbjöm Gunnarsson sá
um útlitið en Bjarni Jónsson tók myndim-
ar. Alfa pressaði og Prisma sá um prent-
verkið. Þeir Pétur og Bjartmar munu
fylgja plötunni eftir með hljómleikahaldi
og annarri spilamennsku á næstunni. Auk
plötunnar kemur út kassetta með lögum
Péturs og Bjartmars á annarri hliðinni en
fjórum lögum eftir Greifana á hinni.
afmæli. Ölafur verður 70 ára og
Ágúst 60 ára. Þeir ætla að taka á
móti gestum á afmælisdaginn í Od-
fellow-húsinu við Vonarstræti kl.
16-19 á morgun.