Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986.
í 31
Iþróttir
Fréttir
„Kominn tími til
að breyta til“
Gunnar Þorvarðarson þjátfar Keflavík
„Nei, ég óttast ekki að verða stimpl-
aður svikari þó ég hafi gengið til liðs
við ÍBK. Þetta er allt gert í fullri vin-
semd og það vissu allir af þessu. Þó
játa ég að ég veit af nokkrum dyggum
stuðningsmönnum í Njarðvík sem eiga
erfitt með að fyrirgefa mér þetta,“
sagði Gunnar Þorvarðarson, fyrrver-
andi þjálfari Njarðvíkinga og nú
Keflvíkinga. Körfuknattleiksmenn
eru nú að fara að huga sér til hreyf-
ings og að sögn Gunnars ætla þeir
Keflvíkingar að heíja æfingar eftir
verslunarmannahelgina.
„Ég hef verið viðloðandi Njarðvík-
urliðið undanfarin 20 ár sem leikmað-
ur og þjálfari svo að það var kominn
tími til þess að breyta til. Ég hef þjálf-
að þá síðustu þrjú árin og það tel ég
hámarkstíma fyrir körfuknattleiks-
þjálfara hjá sama liði. Ég held að
bæði strákamir og ég þaríhist til-
breytingar," sagði Gunnar og bætti
því við að það væri þægilegt að þurfa
ekki að flytja sig lengra en til Kefla-
víkur til að þjáifa. Þar að auki litist
honum vel á Keflavíkurliðið.
Gylfi til Keflavíkur
„Ég hef mikla trú á Keflavíkurlið-
inu, þar er mikið af ungum og efhileg-
um leikmönnum. Við erum að vísu að
missa einn efnilegan strák til Banda-
ríkjanna, Magnús Guðfinnsson, sem
er 197 cm á hæð. í staðinn eru miklar
líkur á því að Gylfi Þorkelsson komi
yfir en hann lék og þjálfaði í Sand-
gerði í fyrra,“ sagði Gunnar. Bróðir
Gylfa, Hreinn, sem þjálfaði Keflvík-
inga í fyrra, mun spila með hðinu
næsta vetur en þeir bræður léku með
ÍR fyrir tveimur árum.
Valur og Njarðvík berjast um
titilinn
„Ég tel að það verði litlar breytingar
i toppbaráttunni frá því í fyrra. Valur
• Gunnar Þorvarðarson.
og Njarðvík munu berjast áfi"am um
titilinn. Þessi lið hafa lítið breyst frá
því í fyrra. Ég hef nú reyndar meiri
trú á því að Njarðvíkingar vinni. Ann-
ars væri óneitanlega gaman ef okkur
Keflvíkingum tækist að blanda okkur
í baráttuna," sagði Gunnar.
Þegar blaðamaður DV spurði hann
hvort hann ætlaði að byrja að æfa
aftur hló hann við. „Ég gæti það ekki
þó ég feginn vildi - árin og kílóin eru
orðin það mörg.“ -SMJ
Verðum orugglega
í toppbarátbmni
Þjátfar Valur Njarðvíkinga?
„Þetta er nú ekki alveg frágengið
ennþá en það má telja næstum því
öruggt að ég þjálfi Njarðvíkinga næsta
vetur. Iæikmenn eru búnir að sam-
þykkja þetta fyrir sitt leyti en stjómin
á eftir að koma saman og leggja bless-
un sína yfir þetta,“ sagði Valur
Ingimundarson í viðtali við DV í gær.
Valur, sem hefur verið helsti máttar-
stólpi íslandsmeistara Njarðvíkinga
undanfarin ár, mun að öllum líkindum
þjálfa Njarðvíkinga næsta vetur.
Hann mun svo að sjálfsögðu leika með
liðinu áfram.
„Mér líst bara vel á þetta, ég held
að það verði ekkert sérstaklega erfitt
að fara að þjálfa þessa stráka þó að
ég hafi leikið með þeim í mörg ár. Við
byijum líklega æfingar fljótlega í
ágúst,“ sagði Valur. Hann hefur ekki
komið nálægt þjálfun meistaraflokks
áður en hefur þjálfað ungri flokka hjá
Njarðvík auk þess að sjá um þjálfun
kvennaliðs þeirra. Hins vegar hefur
Valur auðvitað gífitrlega reynslu sem
leikmaður með landsliðinu og Njarð-
víkingum.
Deildin verður jafnari en áður
„Við verðum örugglega í toppbarátt-
unni og ég hef trú á því að Valsmenn
verði þar líka. Annars held ég að deild-
in verði jafnari en áður og það má
búast við því að Keflvíkingar óg KR-
ingar verði sterkir," sagði Valur.
Njarðvíkingar verða með því sem
næst sama lið og í fyrra nema hvað
Ellert Magnússon verður ekki með.
Hann fer út til náms. Þá hefur heyrst
að möguleiki sé á því að Ingimar Jóns-
son leiki með liði Tindastóls á
Sauðárkróki næsta vetur. -SMJ
•Valur Ingimundarson.
Blikasigur í 2.
| Úrshtaleikur íslandsmótsins í 2 fl.
! kvenna fór fram á Kópavogsvelli sl.
þriðjudag. Til úrslita léku Breiðablik
og Stjaman. Breiðabliksstúlkumar
! sigmðu með 2 mörkum gegn 1. Leikur.
flokki kvenna
liðanna var tvísýnn og skemmtilegur.
Nánar verður sagt frá leiknum á ungl-
ingasíðunni annan laugardag.
HH
Stórfelldar framkvæmdir eru við Miklubraut vegna jarðganga sem verið er að gera undir götuna.
Milljónaframkvæmdir
í höfuðborginni
„Stærstu framkvæmdir á vegum
borgarinnar í ár em tvimælalaust
holræsaframkvæmdimar við Skúla-
götu og Sætún. í ár verður líka lokið
við verkáfanga við Borgarleikhúsið
og unnið við undirgöng undir Mi-
klubraut. Jafiiframt stendur nú fyrir
dyrum breikkun Reykjanesbrautar
og byijað er á undirgöngum undir
götuna. Að auki em ýmsar minni
framkvæmdir í gangi, meðal annars
í tengslum við 200 ára afmælið,"
sagði Þórður Þ. Þorbjamarson borg-
arverkfræðingur í samtali við DV
um framkvæmdir við gatnakerfi
Reykjavíkurborgar í ár.
Hvað kostnaðarhliðina varðaði
sagði Þórður að framkvæmdir þessar
kæmu til með að kosta fleiri hundmð
milljónir. Áætlaður kostnaður við
Borgarleikhúsið væri til dæmis um
100 milljónir og holræsafram-
kvæmdimar við Skúlagötuna kæmu
til með að kosta um 60 milljónir.
Gert væri ráð fyrir að öllum þessum
framkvæmdum yrði lokið með
haustinu.
„Þetta em heldur meiri fram-
kvæmdir en verið hafa undanfarin
ár,“ sagði Þórður. „Það stafar fyrst
og fremst af því að fjárhagur Borgar-
innar er sem stendur frekar blómleg-
ur. Unnið hefur verið skipulega við
að lækka verðbólgu og peningamir
nýtast nú betur en áður.“
-ÞJV
Holræsaframkvæmdir borgarinnar við Skúlagötu og Sætún koma líklega
til með að kosta um 60 milljónir.
Mikill umferðarþungi er nú á Borgartúni þar sem Sætún er lokað vegna
holræsaframkvæmda DV-myndir Óskar
mií
Við Hverfisgötu hafa verið teknar upp gangstéttir vegna viðgerða á raflögnum.