Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986.
9
Systir bandaríska prestsins Lawrence Jenco fagnar honum við komuna til
Vestur-Þýskalands um siðustu helgi ettir 18 mánaða vist hans hjá libön-
skum mannræningjum.
Óvæntir
endurfundir
fómarlamba
mannræningja
Bandaríski presturinn Lawrence
Jenco, er öfgamenn í Líbanon slepptu
úr haldi um síðustu helgi eftir 18 mán-
aða gíslingu í Beirút, átti í gær
skyndifund með öðrum enskum starfs-
bróður sínum, Benjamín Weir, á
skrifstofu Runcie, erkibiskups í Kant-
araborg.
Jenco skrapp til London frá Vestur-
Þýskalandi, þar sem hann hefur verið
undir umsjá lækna að undanfömu, til
að þakka erkibiskupnum persónulega
fyrir milligöngu hans í samningavið-
ræðunum við mannræningjana.
Benjamin Weir og Jenco voru báðir
í gíslingu hjá sömu samtökum öfga-
manna í Líbanon um hríð og vom
vistaðir í sama klefa í prísundinní.
Weir var sleppt skömmu á undan
Jenco, eftir viðkvæmar samningavið-
ræður við öfgamenn múslima.
Talsmaður ensku biskupakirkjunn-
ar sagði í gær að kirkjuyfirvöld í
Bretlandi myndu enn halda áfram
milligöngu sinni í samningaviðræðum
við mannræningja múslima er • enn
halda þrem Bandaríkjamönnum í gísl-
ingu í Líbanon.
Sænski íhaldsflokkurinn:
Harðnandi
formannsbaratta
Gunnlaugur A. Jónssom, DV, Lundi
Stríðið um formannssætið í sænska
íhaldsflokknum harðnar. Könnun á
vegum sænska sjónvarpsins í vikunni
leiddi í ljós að Carl Bildt, hinn 37 ára
gamli þingmaður flokksins, er engan
veginn eins öruggur um sigur og talið
hefur verið og fyrri kannanir hafa
gefið til kynna.
Könnun sjónvarpsins leiddi í ljós að
Inge Gerd Troedsson hefði svipað fylgi
og Bildt.
Troedsson er 57 ára gömul, vara-
þingforseti og fyrrverandi ráðherra.
Ef hún yrði fyrir valinu yrði hún
önnur konan til að gegna formanns-
embætti í sænskum stjómmálaflokki
en Karin Söder var sem kunnugt er
valin formaður Miðflokksins í sumar.
Formaður íhaldsflokksins verður
valinn síðar í þessum mánuði.
Heiladáin móðir
ól stúlkubam
HaMór Valdimaisson, DV, DaDas;
Á miðvikudaginn fæddist í Kali-
fomíu stúlkubam rúmum mánuði
eftir að móðir hennar lét lífið.
Móðirin var flutt á sjúkrahús í
júnímánuði og var úrskurðuð látin
skömmu síðar, það er hún var dáin
heiladauða.
Læknar sjúkrahússins komust
hins vegar að þeirri niðurstöðu að
fóstur það er konan gekk með væri
á lífi en enn ekki nógu þroskað til
að geta lifað utan móðurlífs. Ákváðu
þeir því að halda líkama móðurinnar
gangandi á lífkerfum þar til fóstrið
væri nógu langt á veg komið.
Á miðvikudag fæddist stúlkubamið
svo.
Móðirin verður nú væntanlega
tekin af lífkerfum sjúkrahússins og
opinberlega úrskurðuð látin og
greftmð.
Útlönd
Takmarkanir á
innflutningi
og aukning á
gullframboði
Bandaríkjaþing ræðir efhahagsþvinganir gegn Suður-Afriku
Þingmenn demókrata i öldunga-
deild bandaríska þingsins reyna nú
að koma fram breytingum á nýjum
tillögum repúblíkana er kveða á um
auknar refsiaðgerðir gegn ríkis-
stjórn Suður-Afríku.
Telja þingmenn demókrata viss
ákvæði tillagnanna um refsiaðgerðir
of væg og vilja að öldungadeildin
samþykki harðari refsiaðgerðir.
Utanríkismálanefnd öldungadeild-
arinnar felldi í gærkvöldi tillögu
fulltrúadeildarinnar þar sem gert var
ráð fyrir að slíta öll viðskipta- og
fjárfestingartengsl Bandaríkjanna
við Suður-Afríku.
Alan Cranston, fyrrum forseta-
frambjóðandi og demókrati frá
Kalifomíu, var aðalhöfundur tillög-
unnar um slit á öllum viðskipta-
tengslum en Cranston hefur löngum
verið á meðal þeirra bandarísku
þingmanna er lengst hafa gengið á
Bandaríkjaþingi í baráttunni gegn
Suður-Afríkustjóm
Eins og búist hafði verið við fyrir-
fram var tillaga Cranstons felld í
öldungadeildinni þar sem repúblík-
anar em í meirihluta. Önnur breyt-
ingartillaga Cranstons, er þótti mun
vægari, var einnig felld.
Búist hafði verið við því að öld-
ungadeildin gengi til atkvæða um
tillögur repúblíkana um refeiaðgerð-
ir gegn Suður-Afríku er formaður
nefndarinnar Richard Lugar kynnti
þingheimi í gærdag.
En ekki gat orðið af atkvæða-
greiðslunni í tíma þar sem of mikill
tími fór i umræður um ótal breyting-
artillögur er fram komu í umræðun-
um.
Að sögn Lugars er ekki búist við
lokaatkvæðagreiðslu öldungadeild-
arinnar um refsiaðgerðir fyrr en á
mánudag.
I tillögum repúblíkana er meðal
annars gert ráð fyrir að banna inn-
flutning vissra jarðefna frá Suður-
Afríku, afturkalla lendingarréttindi
suður-afríska ríkisflugfélagsins í
Bandaríkjunum og að skora á Reag-
an forseta að selja hluta af gull-
birgðum Bandaríkjamanna en slík
sala myndi leiða til verðfalls á gulli
og skaða efriahagslíf í Suður-Afríku.
Nú fara árlega yfir 20 miMjón farþegar um Frankfurtflugvöll og um 800 þúsund
tonn af frakL
Frankfurt-
flug-
vollur
fimm-
tugur
Nýverið héldu borgaryfirvöld í
Frankfurt upp á hálfrar aldar afinæli
alþjóðaflugvallarins í borginni með
viðhöfh.
Alþjóðaflugvöllurinn hefur síðustu
áratugi verið einn sá fjölfamasti í
heimi og af mörgum talinn mikilvæg-
asti flugvöllurinn í samgöngukerfi
meginlands Evrópu.
Þegar flugvöllurinn i Frankfurt var
opnaður árið 1936 fóru um hann 58
þúsund farþegar og 80 tonn af frakt.
Nú, hálfri öld síðar, fara árlega um
hann yfir 20 milljón flugfarþegar og
800 þúsund tonn af frakt.
SUMARTILBOÐ Á P0TTAPLÖNTUM
Eigum til takmarkað magn af stórum
plöntum fyrir skrifstofur og stofnanir.
Grænmeti og ávextir í úrvali