Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Side 3
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986.
Fréttir
Hvað segja
skattakóngamir?
Það hefur ekki farið fram hjá nein-
um að skattamir hafa verið opin-
beraðir. DV sló á þráðinn til þeirra sem
oft eru nefndir skattakóngar. Það get-
ur verið vafasamur heiður að fá
þennan titil. Þessir kóngar bera sig
þó vel og skatturinn virðist ekki hafa
komið neinum þeirra á óvart.
Kristmann Karísson, Vestmannaeyjum:
„Engin vandkvæði
að greiða þettau
„Það verða engin vandkvæði að
greiða þetta. Þetta er í samræmi við
það sem ég bjóst við,“ sagði Kristmann
Karlsson, heildsali í Vestmannaeyjum.
Hann er í öðru sæti einstaklinga sem
bera hæstu gjöldin og á að greiða 1,4
milljónir króna.
Hann flytur inn sælgæti og er einnig
umboðsmaður fyrir íslensku sælgætis-
fyrirtækin í Eyjum.
„Það er yfirdrifið að gera héma hjá
mér. Þessi skattur kemur mér ekki á
óvart því ég hef verið ofarlega undan-
farin ár,“ sagði Kristmann, sem
greinilega var kominn í þjóðhátíðar-
skap. -APH
ísleifur Halldórsson, Suðuriandi:
„Þetta er alveg
rétt útreiknað‘T
„Það er ekkert óeðlilegt við þetta
og alveg rétt útreiknað," sagði Isleifur
Halldórsson, héraðslæknir á Hvol-
svelli. Hann erhæsti skattgreiðandinn
á Suðurlandi og á að greiða 1,6 millj-
ónir króna í opinber gjöld.
• „Skýringin á þessu er sú að ég hef
haft með höndum lyfsöluna hér síð-
ustu 20 árin. Frá síðustu áramótum
var gerð breyting á þessari tilhögun
og lyfsalan er ekki lengur í höndum
héraðslæknis," sagði ísleifúr. -APH
Oddur C. Hiorarensen, Norðuriandi eystra:
„Kemur mér ekki á óvart“
„Það var búið að reikna þetta allt
fyrir mig fyrirfram svo þetta kemur
mér ekki á óvart,“ sagði Oddur C.
Thorarensen, lyfsali á Ákureyri, sem
er gert að greiða rúmar tvær milljónir
króna í gjöld.
Oddur sagði að inni í þessum gjöld-
um væri starfeemi apóteksins og
einnig tekjur af leigu á húsnæði undir
heilsugæslustöðina.
„Ég hef oft áður verið í efetu sætum
á þessum lista og mun greiða þetta
með glöðu geði,“ sagði Oddur.
-APH
Guðleifur Svanbevgsson, Norðurlandi vestra:
„Bregður við stórar tölur“
bakarí sitt í fyrra. Hann var spurður
hvort hann gæti greitt þessar tæpu 1,2
milljónir króna sem honum er gert að
greiða í gjöld.
„Ég reikna nú með því að það gangi.
Þeir hjá KEA gera nokkuð gott við
mig hér og ég get ekki kvartað yfir
því,“ sagði Guðleifur.
-APH
„Þessi skattur kemur til vegna þess
að ég seldi fyrirtæki mitt á síðasta ári
og er að greiða skatt vegna söluhagn-
aðar. Þetta kemur mér ekki svo mikið
á óvart en því er ekki að leyna að
manni bregður við stórar tölur,“ sagði
Guðleifur Svanbergsson, kaupfélags-
stjóri KEA á Siglufirði.
Guðleifru- er bakarameistari og seldi
Soffanías Cecilsson, Vesturiandi:
„Borga með glöðu geði“
„Ég er búinn að vera hæsti skatt-
greiðandinn frá því að ég man eftir
mér í þessari sveit," sagði Soffanías
Cecilsson, fiskframleiðandi á Grund-
arfirði, sem á að greiða tæpar 2,4
milljónir króna í gjöld.
Hann sagði að þessi upphæð kæmi
aðallega af eignaskatti og aðstöðu-
gjaldinu. Hins vegar hefði skattskýrsl-
an hans borist skattyfirvöldum of seint
þannig að tekjuskatturinn væri áætl-
aður of lágur.
„Þetta á því eftir að hækka nokkuð.
Reyndar sækist ég ekki sérstaklega
eftir leiðréttingu en ég veit að þetta
verður leiðrétt.
Ég er ekki ósáttur við þetta og mun
borga þessi gjöld með glöðu geði,“
sagði Soffanías.
-APH
Jón Friðgeir Einarsson, Vestfjörðum:
„Hef lengi verið hæstur“
„Þetta kemur mér nú ekki mikið á
óvart. Ég hef lengi verið meðal þeirra
hæstu hér um slóðir," sagði Jón Frið-
geir Einarsson, byggingarmeistari í
Bolungarvík, sem er hæsti skattgreið-
andi á Vestfjörðum og á að greiða í
gjöld rúmlega 1,4 milljónir. Hann rek-
ur m.a. byggingarfyrirtæki og bygg-
ingarvöruverslun og er einnig sonur
Einars Guðfinnssonar, sem oft var
nefndur faðir Bolungarvíkur.
Jón sagði að reyndar hefði verið
samdráttur í byggingarframkvæmdum
undanfarin ár. Nú væru horfúmar
hins vegar mjög góðar.
„Það þýðir ekkert að vera að barma
sér yfir þessu. Það er nóg að gera og
mig vantar menn í vinnu,“ sagði Jón
Friðgeir.
-APH
Svartur
stór
og sterkur
ÞJÓÐÞRIFARÁÐ FRÁ PLASTPRENT
SVÖRTU - STÓRU sorpsekkirnir frá Plastprent nýtast þér á marga vegu,
á heimilinu, í garöinum, sumarbústaðnum, ferðalaginu.
Svörtu plastpokarnir frá Plastprent eru sannkallað þjóðþrifaráð þegar taka
þarf til hendinni og sópa út úr hornunum.
Fást í öllum matvöruverslunum, byggingavöru-
verslunum og á bensínstöðvum um allt land.
Einfalt og þægilegt statíf fyrir þá
sem nota mikið af þeim STÓRA frá
Plastprent.
Brautryöjandi á sviöi pökkunar
Plastprent hf.
Höföabakka 9, sími 685600