Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Síða 5
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986. 5 Tölvumynd af fyrirhuguðum vegi í Ljósavafnsskarði i Suður-Þingeyjarsýslu. Nýi vegurinn verður á kafla lagður út í vatnið sem er hægra megin. Núverandi vegur er i hlíðinni til vinstri. Tölvumyndir bylting í hönnun nýrra vega „Tölvunotkun hefur valdið byltingu í veghönnun vegna aukinna afkasta. Fullvrða má að sami aðili anni nú tí- faldri vinnu miðað við það sem var áður en tölvunotkun hófst hjá Vega- gerðinni. Tölvuteiknarinn á hér drjúgan hlut að máli.“ Þetta segir Markús Karl Torfason, tæknifræðingur hjá Vegagerðinni, í grein i tímariti stofnunarinnar, Vega- málum. Tölvuteiknarinn, sem Markiís Karl nefnir, virðist leikmanni vera sann- kallað galdratæki. Meðfylgjandi teikning, sem er af óbyggðum kafla á Norðurlandsvegi í Ljósavatnsskarði, er verk tölvuteiknarans. Teikningin sýnir veginn og landslag í kring frá sjónarhorni bílstjóra á austurleið. Tölvan er mötuð á tölulegum upp- lýsingum um veginn, eins og hann hefur verið hannaður, og um hæðar- línui- í landslagi. Síðan er hægt að biðja tölvuna um að teikna veginn frá ólíkustu sjónarhomum, til dæmis eins og hann kemur til með að líta út séð- Magakveisa í Viðey „Þetta var ekkert til að tala um, en það voru sjö böm á aldrinum ellefu til tólf ára sem vom flutt á sjúkrahús vegna vægrar magakveisu. Svona magakveisur koma alltaf upp á mótum sem þessum og stafa einfaldlega af breyttu mataræði, nú og svo em alltaf einhverjir sem fá heimþrá þegar líða fer á kvöldin og langar heim til mömmu sinnar,“ sagði Ágúst Þor- steinsson skátaforingi um magakveisu sem hijáð hefúr þegna lýðveldisins í Viðey. „Við fáum sendan mat frá Mjólkurs- amsölunni en eldum sjálf á kvöldin. Þessi tiltekni flokkur var að sjóða sér sósu og þau hafa einfaldlega ekki hrært hana nógu vel út. Af 1000 manna fjölskyldu er þetta ekki stór hluti," sagði Ágúst. Sjúklingamir eyddu nótt- inni á sjúkrahúsi en snem aftur til Viðeyjar að morgni. Landsmótinu í Viðey lýkur næstkomandi sunnudag. -S.Konn. ur frá vatninu, úr fjallshlíðinni eða úr flugvél í 200 metra hæð. Og rétt eins og ljósmyndarar geta ljósmyndað veginn með mismunandi aðdráttarl- insum getur tölvan „séð“ veginn með mismunandi brennivíddum. Markús Karl Torfason nefndi sem dæmi imi gagnsemi tölvumynda að einfalt væri að sjá hönnunargalla. Tölvumynd af fyrirhuguðum vegi í Ljósavatnsskarði sýndi til dæmis að lægð í einni beygju væri of djúp. Þá væri auðvelt fyrir aðila eins og Nátt- úmvemdarráð að átta sig á hvemig nýr vegur færi í landslagi, eins og í Ljósavatnsskarði, þar sem ætlunin væri að leggja veginn að hluta til út í vatnið. ..Framtíðin er svo auðvitað sú að hægt verði að „keyra“ vegina á skján- um á meðan á hönnun stendur yfir,“ segir Markús. -KMU Alþýðuflokkurinn: Krefst endurskoðunar skattvísitölunnar Alþýðuflokkurinn krefst þess að skattvásitalan verði endurskoðuð þannig að skattbyrði aukist ekki milli ára. Þetta kemur fram í sam- þvkkt þingflokksins frá þvi í gær. í samþykktinni segir að tekju- skattur hafi orðið 800 milljónum króna hærri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Fjármálaráðherra hafið látið að því liggja að þetta hefði komið óvænt í ljós. Það sé ekki rétt því ríkisstjómin hafi vitað hvert stefndi í apríl og hafði þá ráðrúm til að breyta vísitölunni. Einnig telur þingflokkurinn að þessi hækkun brjóti í bága við sam- þykkt Alþingis um lækkun tekju- skatts í áfóngum. Þetta brjóti líka í bága við kjarasamningana frá þvi í vor þar sem samið var imi hóflegar launahækkanir gegn fyrirheitum um skattalækkanfr. „Þingflokkurinn lýsir furðu á við- brögðum fjánnálaráðherra, sem fyrst lætur sem þessi skattlagning hafi komið mjög á óvart, en segir þjóð- inni síðan að búið sé að verja henni til launahækkana nokkurra starfs- stétta og niðurgreiðslna á lamba- kjöti." segir orðrétt í samþykkt þingflokks Alþvðuflokksins. -APH Ferðablaðið LAND - Ómissandi ferðafélaqil lunið að taka eintakið ykkar af LANDI með í ferða- lagið, þessa mestu ferðahelgi ársins. Ferðablaðið Land geymir fróðleik um allar sveitir og byggðalög landsins, ítarlega úttekt á allri ferðamannaþjónustu utan höfuðborg- arsvæðisins og yfir 70 áhugaverðar greinar um ísland og íslendinga. Póstþjónustan og einkaaðilar dreifðu blaðinu inn á hvert heim- ili á liðnu vori. Fyrir þá sem ekki hafa ennþá fengið eintak, liggur blað- ið frammi hjá Markaðsútqáfunni, Ármúla 19, sími 687868 og á Umferðarmiðstöðinni, BSI. Þeir sem þess óska geta fengið blaðið sent. Aö gefnu tiiefni vill Markaðsútgáfan koma á framfæri leiðréttingum á tveimur símanúmerum sem misprentuðust í Landi. Símanúmer Sumarhótelsins á Flúðum í Hrunamannahreppi er 99-6630. Símanúmer Hótel Snæfells á Seyðisfirði er 97-2460. GÓÐA FERD! MARKAÐSUTGÁFAN HF- Ármúla 19 ■■■ Sími 687868 ■■■■■■■■■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.