Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Side 11
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986.
11
Mertning
Krislján Kristjánsson:
Dagskrá
kvöldsins
Eigin útgáfa 1986,34 Ijóð, 46 bls.
Bók þessi skiptist í þrjá bálka og
er hver prýddur einni mynd eftir
Aðalstein Svan, en kápan þeirri
fjórðu.
Höfundur hefur þá skáldlegu að-
ferð að sýna aðeins skynjanleg
atriði, lesandinn verður að lesa í
málið, svo sem sjálfsmorðið í ljóðinu
„Skammlíf', þar sem engin tilfinning
birtist nema tómleikinn:
..bijóstið hefst og hnígur
gárar vatnið sem kólnar hægt og
hægt
og einhverstaðar þama undir
slær hjartað og flýtir fyrir
þeirri stundu þegar líkaminn
tæmist
eflaust hefur hann fundið
daufa hráa lyktina meðan vatnið
litaðist bleikt.
Þetta finnst mér takast einkar vel
í ljóðinu „Orð kvöldsins". Þar er
píslarsaga Jesú notuð til að höfða
til lesenda, svo sem oft áður, hún er
táknmynd af einsemdarkvöl sem er
almenn. En betur að gætt, var það
ekki Jesú einn sem kvaldist, heldur
einnig nafhlaus ræningi, sem ekki
þótti neinnar verulegrar frásögu
verður, og hlaut loks miklu hrak-
legri útreið en Jesú, og það fyrir
fáránlega litlar sakir. Slíkur maður
er verðug ímynd lesenda almennt,
það var skáldlega séð. Lesandi er
settur í hlutverk ræningjans með
Bókmermtir
Örn Ólafsson
ávarpinu Þú, og því hve hversdags-
lega ljóðið fer af stað, bæði aðstæður
og orðalag.,
ORÐ KVÖLDSINS
Ef þú finnur til í útréttum
höndunum
skaltu athuga hvort annar maður
er ekki við hlið þér svo nálægt
þú gætir næstum því snert hann
og ef þú heyrir hann hvísla
(elí elí og svo framvegis)
áður en myrkrið skellur á
skalt þú minnast þess að ógætileg
orð og hranaleg geta haft
helvítisvist
í för með sér...
Þetta er önnur bók Kristjáns, og
þykja mér verulegar framfarir hafa
orðið frá hinni fyrri, Svartlist, þann-
ig, að nú er stokkið hærra frá
’nversdagslegu yfirborði hlutanna,
með samhæfðu átaki -
Mest er þó um nokkuð beina frá-
sögn, samstillta, án óvæntra mynda
eða líkinga sem stingi í stúf við
heildina. Það er helst í „þrjú“ í bálk-
inum „Úr leikhúsi sársaukans", að
mótsagnakenndar tímaákvarðanir
koma hver ofaní aðra. Þar lýsir kona
því hvemig maður hennar nálgast
hana á ýmsan hátt, og með tímarugl-
inginum verður kannski enn átak-
anlegra en ella myndi, að jafnvel
breytileikinn er órofa þjakandi til-
breytingarleysi.
Þegar líkingar em, þá em þær
helst af því tagi að ein ríki í heilu
ljóði, og er fyrsta ljóð bókarinnar
gott dæmi. Titill þess tekur upp slit-
ið orðalag, og tekur mark á því.
Þetta er aðferð sem ýmis skáld hafa
iðkað nú undanfarin ár, þaxmig gera
þau lesendum nærtækt það sem þau
em að miðla þeim. Hér lýtur allt að
tafli í þvi orðalagi sem ber uppi ljóð-
ið, en það orðalag sem er jafiiframt
algengt í daglegu máli, um að vera
í klípu. Ég ætla að feitletra þetta
orðalag, og sjá hvort það skilar sér
gegnum prentun:
UM LÍFIÐ AÐ TEFLA
morgun hvem sest ég við
borðið skoða á köflóttum
dúknum hendur mínar og daginn
í gær sem fór
í
bið og morgun
hvem stígur hann grár
inn um gluggann
tyllir sér handan borðsins
setur klukkuna af stað
ég horfi á nývaknaðar
hendur mínar og hika
uns ljóst er - þær em
óvaldaðar
í uppnámi á svörtu
og hvítu reitunum og fyrr
en varir er ég fallinn
á
tíma..
Þetta er vandlega gert, eins og
bókin öll. Hún sýnir á ýmsan hátt
ugg og einsemd þess sem einn glímir
við taflið fyrir tilvem sinni. Og þetta
ljóð er líka dæmigert fyrir bókina
alla í því hvaða mynd hún dregur
upp af andstæðinginum í þessu tafli.
Við skulum eftirláta lesendum að
finna hann.
Kristján Kristjánsson
Dagskrá
kvöldsins
VEGAGERÐIN
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð Norðausturvegar
um Hof í Vopnafirði.
(Lengd 6,9 km, fylling og burðarlag 98.000 m3). Verki skal lokið
1. september 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og
í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 5. ágúst nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 18. ágúst
1986.
V egamálastj óri
Timmaaga
hálendisferð
Brottför alla miðvikudaga
1. DAGUR: Ekið Sprengisand og gist í Nýjadal. 2. DAGUR: Ekið
áfram norður, Bárðardal, Goðafoss til Mývatns og gist þar. 3.
DAGUR: Mývatns- og Kröflusvæði skoðuð, ekið síðdegis til Ak-
ureyrar og gist þar. 4. DAGUR: Ekið til Hveravalla og gist þar.
5. DAGUR: Frá Hveravöllum til Kerlingarfjalla, Gullfoss, Geysis,
Laugavatns, Þingvalla og til Reykjavíkur.
INNIFALIÐ: Fullt fæði, leiðsögn og gisting í tjaldi. Einnig er
hægt að gista í skálum og á hótelum.
Snæland Grímsson hf.
Ferðaskrifstofa,
Símar 14480 og 75300
Uppl. hjá BSÍ í Umferðamiðstöðinni s. 22300
Kvöld- og helgarsími: 75300 og 83351
S§
1
IHll 99*4414
í Hveradölum
Farið ekki svöng yfir heiðina.
•
Við bjóðum upp á ódýran
og góðan mat alla helgina.
•
Heitt og kalt hlaðborð.
Gufubað - heitir pottar.