Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Síða 18
18
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986.
Iþróttir
Möguleikar
Eggerts minnka
Gunnlaugur A Jínsson. DV, Sviþjóö:
Möguleikar Eggerts Guðmundssonar á að
ná aftur sœti sínu í aðalliði Halmstad í
Allsvenskan eru allt annað en miklir og
minnkuðu reyndar enn verulega í gær. Þá
lék Halmstad við AIK í Stokkhólmi og náði
mjög óvænt jafritefli 1-1. Það kom á óvart
á útivelli í þessum fyrsta leik 14. umferðar-
innar. Bjöm Nordberg, hinn tvítugi
markvörður Halmstad sem hefur leikið síð-
ustu sjö leiki liðsins í Allsvenskan, átti
stórleik. Var besti maður Halmstad í leikn-
um og varði meðal annars vítaspymu. Hann
náði stöðunni af Eggert í vor.
Sænsku blöðin telja hann framtíðarmark-
vörð sænska landsliðsins og hann hefur
reyndar þegar verið valinn í landslið. Mun
leika í sænska ólympíuliðinu gegn Finnum
í næstu viku Halmstad er í fallhættu i All-
svenskan. Hefur 11 stig eftir 14 leiki og ér
í fjórða neðsta sæti. Tvö lið hafa 10 stig,
eitt níu. hsim
Leikir í ólympíu-
riðlinum í haust
Mikil þátttaka verður í knattspymu-
keppni ólympíuleikanna, sem haldin verður
í Seoul í Suður-Kóreu 1988. Keppt verður í
mörgum riðlum víða um heim í forkeppni
og flestir riðlamir í Evrópu Sem kunnugt
er tilkynnti ísland þátttöku í keppninni og
lenti í riðli með Austur-Þýskalandi, Belgíu,
ítah'u og Portúgal. Ekki hefur enn verið
samið um leikdaga í riðlinum milli ein-
stakra þjóða en líkur á að það verði gert
fljótlega, jafiivel í þessum mánuði. Komið
hefiir fram tillaga um að þjóðimar fiórar
semji um leikdaga á fundi í Lissabon í Port-
úgal annað hvort 28. ágúst eða 2. september.
Fyrirhugað er að keppnin í riðlinum hefj-
ist í haust og íslenska ólympíuliðið, sem
verður skipað leikmönnum sem leika hér
heima, leiki einn eða tvo leiki í keppninni
á þessu ári. hsím
Besti heimstíminn hjá Cram
„Vonbrigði að Sebastian Coe gat
ekki hlaupið,“ sagði enski stórhlaup-
arinn Steve Cram eftir að hann varð
samveldismeistari í 800 m hlaupinu í
Edinborg í gær. Náði besta heimstim-
anum í ár - hljóp á 1:43,22 mín.
Frábært hlaup hjá Cram. Tom McKæ
an, Skotlandi, varð annar á_ 1:44,80;
mín. og Peter Elliott, Englandi, þriðji
á 1:46,42 mín. Heimsmethafinn á vega-
lengdinni, Sebastian Coe, hætti við
þátttöku í úrslitahlaupinu að fyrir-
mælum lækna. Einn þeirra sagði. „Ég
hefði bundið hann og það fast ef hann
hefði ætlað að vera með,“ og greini-
legt að læknar hafa áhyggjur af heilsu
Coe.
Steve Ovett, Englandi, sigraði ör-
ugglega í 5000 m hlaupinu í gær án
þess að leggja hart að sér. Hljóp frá
keppinautum sínum í lokin. Tími hans
var 13:24,11 mín. Þrefaldur sigur hjá
enskum. Jack Buckner annar á 13:25,
87 mín. og Tim Hutchings þriðji á
13:26,84 mín.
í 200 m hlaupinu sigraði Atlee Ma-
hom, Kanada, á 20,31 sek. Todd
Bennett, Englandi, varð annar á 20,54
sek. Kanadamaðurinn frægi, Ben
Johnson, varð að láta sér nægja þriðja
sætið á 20,64 sek.
hsím
Tveir á heims-
leika fatlaðra
Tveir íslendingar verða meðal þátttak-
enda á heimsleikum fatlaðra íþróttamanna
sem haldnir verða í Gautaborg í Sviþjóð
dagana 3.-17. ágúst. Þeir em Haukur Gunn-
arsson, ÍFR, sem keppir í ftjálsum íþróttum,
og Jónas Óskarsson, IFR. Hann tekur þátt
í sundkeppni heimsleikanna. Þjálfarar og
fararstjórar verða Erlingur Jóhannsson og
Anna K. Vilhjálmsdóttir.
Heimsleikar fatlaðs íþróttafólk er mikill
viðburður. Að þessu sinni verða þátttak end-
ur um eitt þúsund frá 38 þjóðum. Auk
keppni í frjálsum íþróttum og sundi verður
keppt í bogfimi í Gautaborg.
• Keppendur íslands í Gautaborg,
Haukur og Jónas.
DV-mynd Óskar öm.
sætl á landsmótinu
- aðrir keppendur í hnapp. Steinunn Sæmundsdóttir fyrst í kvennaflokki
Magnús Gíslascn, DV, Suðumesium:
Heldur hafði veðrið batnað til golf-
iðkunar í gær frá því deginum áður.
Það hafði lægt og ekki var sami kuld-
inn sem herjaði á keppendur. Það sást
líka á því að heildarskor batnaði og
menn virtust eiga auðveldara með að
hemja hvitu kúluna. Hins vegar kvört>
uðu margir yfir því að „grínin“ væm
orðin of þurr og seint í gærkvöldi vom
starfsmenn á Hólmsvelli famir að
vökva þau.
Það em langar vaktimar hjá starfe-
mönnum við mótið en það líða um það
bil 17 klukkustundir frá því að ræst
er út á morgnana og þar til keppni er
lokið. í gær fengust ekki úrslit í 2.
flokki karla fyrr en leiknar höfðu ver-
ið þijár holur í bráðabana. Var þá
langt liðið á tólfta tímann.
en Jóhanna, sem leiddi eftir fyrsta
daginn, er dottin niður í annað til
þriðja sæti:
1. Steinunn Sæmundsd., GR.......8882 = 170
2. -3. Ásgerður Sverrisd., GR..91-81 = 170
2.-3. Jóhanna Ingólfsd., GR.....86-86=172
4. Ragnhildur Sigurðard., GR 92-83=175
5. Karen Sverrisdóttir, GS.....89-91 = 180
6. Kristín Þorvaldsdóttir, GK...94-88=182
7. Kristín Pálsdóttir, GK......96-90=186
8. Þórdís Geirsdóttir, GK.....102-89 = 191
l.flokkurkarla
Jóhann Rúnar heldur forystunni en
Þorsteinn Geirharðsson úr GS hefur
tekið mikinn kipp og hrifeað til sín
annað sætið. Annars er keppnin mjög
jöfii í þessum flokki:
1. Jóhann R. Kjærbo, GR..80-79=159
2. Þorsteinn Geirharðsson, GS ...86-75 = 161
3. Gunnlaugur Jóhanns., NK.81-81 = 162
4. Guðmundur Bragason, GG..8281 = 163
5. Stefan Sæmundsson, GR.86-88 = 164
l.flokkurkvenna
Þar hefur Alda Sigurðardóttir náð
afgerandi forystu og hefur hún leikið
mjög vel fram að þessu. Er hún reynd-
ar á betra skori en efeta kona í
meistaraflokki kvenna:
1. Alda Sigurðardóttir, GK..8533=168
2. Ágústa Guðmundsdóttir, GR ..94-95= 189
3. Aðalheiður Jörgensen, GR....100-92 = 192
4. Guðrún Eiríksdóttir, GR..100-97=197
5. Lóa Sigurbjömsdóttir, GK..107-100 = 207
6. Hildur Þorsteinsdóttir, GK ...111-99=210
1. Sigríður B. Ólafsd., GH........97-100-98-94 = 389
2. Björk Ingvarsd., GK.............104-9598-94 = 397
3. Kristíne Eide, NK.................107-97-99-97 = 400
4. Gerða Halldórsd., GS...........107-98-95101 = 401
Meistaraflokkur karla
í meistaraflokki karla heldur Ragn-
ar Ólafeson foiystunni og hefur áfram
þriggja högga forskot - reyndar hefur
röð efetu manna lítið sem ekkert
breyst. Úlfar Jónsson náði bestum ár-
angri í gær, lék á 74 höggum:
1. Ragnar Ólafsson, GR.......74-75 = 149
2. -3. Magnús Jónsson, GS....77-75=152
2.-3. Úlfar Jónsson, GK......7874 = 152
4. Sigurður Pétursson, GR....79-75=154
5. -6. Sveinn Sigurbergs., GK.80-76 = 156
5.-6. Jón H. Gunnlaugs., NK..81-75=156
7.-9. Sigurður Alberts., GS..80-77 = 157
7.-9. Ivar Hauksson, GR......79-78 = 157
7.-9. Gylfi Garðarsson, GV...81-76 = 157
10.-11. Hannes Eyvinds., GR. 82-77=159
10.-11. Jón H. Karlsson, GR..7930= 159
12.-14. Gunnar Sigurðsson, GR..7931 = 160
12.-14. Sigurjón Amars., GR..85-75 = 160
12.-14. Ingi Jóhanns., GLU...84-76=160
Hannes Þorsteinsson, GL, Gylfi Kristins-
son, GS, og Sigurjón R. Gíslason, GK,
höfðu allir leikið á 161 höggi. Björgvin
Þorsteinsson, GR, og Sigurður Sigurðar-
son, GS, höfðu leikið á 162 og Þorsteinn
Hallgrímsson, GV, og Hilmar Björgvins-
son, GS, höfðu leikið á 163 höggum.
Meistaraflokkur kvenna
I meistaraflokki kvenna hefur Stein-
unn Sæmundsdóttir tekið forystuna
2. flokkur karla
Keppni í þessum flokki lauk í gær
og er ekki hægt að segja annað en að
keppnin hafi verið æsispennandi.
Bráðabana þurfti til að fá fram úrslit
og stóð keppnin fram á tólfta tímann
í gærkvöldi. Þeir Lúðvík Gunnarsson
og Ögmundur Máni Ögmundsson
komu inn jafnir með 334 högg. Því
varð að láta bráðabana skera úr um
hvor hlyti íslandsmeistaratitilinn í
þessum flokki. Úrslit fengust ekki fyrr
en á þriðju holu og voru menn þá fam-
ir að ráðgera að fresta keppni til
morguns. Þá mistókst hins vegar pútt
hjá Lúðvík og Ögmundur náði að
hrifea til sín sigurinn.
„Jú, þetta tók talsvert á taugamar
en þegar ég sá hvar kúlumar lentu
við þriðju holu var ég viss um sigur.
Það er vissulega þægileg tilfinning að
sigra,“ sagði Ogmundur eftir leikinn
en það eru aðeins þrjú ár síðan hann
hóf að leika golf. Úrslitin hljóta að
hafa verið vonbrigði fyrir Jón Pálma
sem leiddi fram á síðasta dag. Úrslit
urðu annars þessi:
3. flokkur karla
íslandsmeistari í 3. flokki karla varð
Högni Gunnlaugsson, GS. Hann vakti
athygli fyrir rósemd sína og var hann
í fullkomnu jafnvægi allan tímann
enda gamall keppnismaður frá því á
árum áður - keppti bæði i knattspymu
og frjálsum íþróttum. Úrslitin urðu
eftirfarandi en Högni leiddi tvo síðustu
keppnisdagana:
1. Högni Gunnlaugsson, GS......90-84-82-86 = 342
2. Rúnar Valgeirsson, GS.......89-89-84-88 = 350
3. Jóhannes Jónsson, GR........88-90-85-89 = 352
4. Guðm. Guðmunds., GR.........9836-8089 = 353
5. Hjörtur Kristjáns., GS......87-87-92-88 = 354
-SMJ
1. ögmundur M. Ögmunds., GS......85-80-85-84 = 334
2. Lúðvík Gunnarsson, GS.........88-78-85-83 = 334
3. -4. Bemharð Bogason, GE......84-90-81-81 = 336
3.-4. Tómas Baldvinsson, GG......87-83-82-84 = 336
5. Jón P. Skarphéðins., GS.......8081-8088 = 337
•Úlfar Jónsson lék á fæstum högg-
um í gær.
2. flokkur kvenna
í 2. flokki kvenna sigraði Sigríður
B. Ólafedóttir frá Húsavík annað árið
í röð. Sigur hennar var ömggur og
var hún með forystu alla keppnina.
Hún endaði átta höggum á undan
næsta keppanda:
• Steinunn Sæmundsdóttir hefur
nú forystu í kvennaflokki.
• Golfskálinn við Hólmsvöll við Leiru er glæsilegt mannvirki. Byggingu hans var iokið rétt fyrir mótið. Þar geta keppendur og áhorfendur fengið sér í svanginn.
Um leið má skoða málverkasýningu sem nú fer þar fram. DV-mynd Hilmar Bárðarson
Ragnar í fýrsta