Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Síða 21
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986.
33 '
Boðið til
búðar Eiríks
rauða við
Eiríks-
vog í Öxney
Vélbáturinn Margrét frá Stykkishólmi tekur fólk í ógleymanlega siglingu.
Þegar ekið er um norðanvert Snæfells-
nes, innanvert, sjást margar misjafh-
lega stórar eyjar úti fyrir ströndinni.
Það grípur marga sú löngun að kom-
ast út í einhveija af þessum eyjum en
helsti vandinn fyrir utan tímaskort,
þegar ekið er með hraði eftir þjóðveg-
unum, er hvemig á að komast.
í Stykkishólmi hefur slík þjónusta
verið á annað ár.
Fréttaritari DV í Stykkishólmi fór á
dögunum i afar eftirminnilega og
skemmtilega eyjaferð með mb Margr-
éti en hraðbáturinn er eign Bátaleig-
unnar Margrétar í Stykkishólmi.
Siglt var að fjölda eyja og gafst okk-
ur tækifæri til að skoða til dæmis
fuglabjarg svo nálægt að næstum var
hægt að ná til bjargfuglanna. Einnig
sá maður jarðsöguleg náttúrufyrir-
bæri sem maður hefði aldrei látið sér
detta í hug að væru til. í einni eyj-
unni sáum við stuðlaberg sem hafði
svignað um 90 gráður þannig að við
sjávarflötinn var það lóðrétt en var
orðið lárétt þegar það endaði. Það er
alveg óbrotið. Þá sáum við ýmis nátt-
úrufyrirbæri sem em algeng við
sjávarsíðuna, t.d. sundurskomar eyjar
eftir strauma, skessukatlá og fleira
sem landkrabbar eiga erfitt með að
ímynda sér.
Alltaf er gaman að komast í land í
einhverri eyju og upp á það var boðið.
Farið var í land i Öxney við Eiríks-
vog. Eiríksvogur er kjörið skipalægi
frá náttúmnnar hendi. Þama er skjól
vegna nærliggjahdi eyja þannig að
ekki nær að myndast hafalda. Ferða-
mannahópurinn, sem fréttaritari fór
með, fór upp að tóftum í eynni og
hlýddi þar á skemmtilegan fyrirlestur
um Eirík rauða, fjölskyldu hans og í
stuttu máli ástæðumar fyrir siglingu
Eiríks sem leiddi til þess að Grænland
fannst. Það var eins og maður upplifði
söguna aftur. Með í þessari ferð var
sómakonan Guðrún Jónasdóttir, sem
kennir sig við Galtarey. Hún bauð
okkur öllum í land í Galtarey og þar
sáum við það skrautlegasta sumarhús
sem við höfum séð fram að þessu.
Veggir hússins vom þaktir skeljum
lífvera sem og gróðri, bæði úr sjó og
úr eyjunni. Þama þáðum við hinar
höfðinglegustu veitingar.
Ekki er hægt að skilja við þessa frá-
sögn án þess að reyna að lýsa öllum
þeim miklu straumum sem myndast
milli eyjanna og hafa nálgast það að
verða persónur í hugum þeirra sem
um þá hafa farið. Þama skynjar mað-
ur hve náttúran hefur verið og er
sterkur þáttur í lífi þess fólks sem
þama starfar og raunar allra sem
starfa við slíkar aðstæður. Mér em
sérstaklega minnisstæðir sraumar eins
og sá sem farið er um þegar írska leið-
in er farin. Þama var um 12 mílna
ferð á sjónum, en það vildi til að bátur-
inn gengur 30 mílur. Þessa leið fóm
menn í kaupstað og létu strauminn
bera sig og þá sættu menn að sjálf-
sögðu sjávarföllum. Fleiri straumar
vom á vegi okkar. Þar má nefna
strauma eins og Hjalseying, Geiteying
og Kolkisting. Allir vom rólegir í þess-
um straumum því það var auðfúndið
að skipstjórinn, Einar Bjamason, var
búinn að fara þessar leiðir oft áður
og gjörþekkti kringumstæður.
Leiðsögumaður í ferðinni var Bára
Jónsdóttir. Hún færði líf í eyjamar
með frásögnum sínum og gaf ferðinni
enn meira gildi með leiðsögn sinni.
Róbert Jörgensen,
Stykkishólmi.
Sumarhúsið í Galtarey er glæsilegra en orð fá lýst.
DV-mynd Róbert Jörgensen
Séð yfir nokkrar Breiðafjarðareyjar.
í Shellstöðinni á Egilsstöðum er boðið upp á fjölbreytta þjónustu.
Shellstöðin á Egilsstöðum:
Huggulegur áningarstaður
Anna Ingólfedóttir, DV, Egilsstöðum.
Nýlega vom stækkuð húsakynni
Shellstöðvarinnar á Egilsstöðum. Er
það viðbótarálma, gerð úr gleri og
plexigleri. Rúmar þessi nýja viðbót
30 manns í sæti en innri salur rúmar
20 manns. Auk þess er hægt að
snæða undir berum himni ef veður
leyfir. 1 Shellstöðinni er á boðstólum
fullkominn matseðill með hinum
ýmsu fisk- og kjötréttum ásamt hin-
um vinsælu Chick King kjúklinga-
bitum, Tommahamborgurum og
pítum. Mikil umferð hefur verið um
Egilsstaði það sem af er sumri og
margir hafa litið inn á Shellstöðinni
enda fást þar allar helstu ferðavör-
ur. Það er óhætt að segja að Shell-
stöðin á Egilsstöðum sé einn betri
áningarstaða á Austurlandi.