Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Síða 35
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986.
47 .
________________________Útvaip - Sjónvarp
Föstudagsmyndin:
Staðgengill Picones
Föstudagsmyndin er ítölsk að þessu
sinni og gerist í borginni Napólí. Hún
segir frá manni að nafni Picone sem
sviptir sig lífi á hroðalegan hátt þegar
honum er sagt upp í verksmiðjunni
þar sem hann vinnur. Þegar ekkjan
fær fréttir af atburðinum fer hún á
stúfana að leita að líki manns síns.
Hún þræðir líkhús borgarinnar en
árangurslaust. Líkið erhorfið. Ekkjan
felur þá manntetri nokkru að hafa
uppi á líkinu en sá kemst á snoðir um
ýmislegt dularfullt á slóð Picones.
Hann fær sér meðal annars vinnu í
verksmiðjunni þar sem Picone vann
og kemst að því að Picone lifði tvö-
fóldu lífi.
Myndin er á léttari nótunum, full
af ítalskri fyndni. Aðalhlutverk eru í
höndum Giancarlo Giannini og Linu
Sastri en leikstjóri er Nanni Loy.
Giancarlo Giannini leikur aðalhlutverkið í föstudagsmyndinni sem gerist í Napólí á Italíu.
Útvarp, rás 1, kl. 19.50:
John Nettles leikur aöalhlutverkið í þáttunum um lögreglumanninn Bergerac.
Spjall
um nátt-
úrufræði
Á fóstudagskvöldum verður á næst-
unni tíu mínútna spjall um náttúru-
fræði ýmisleg en það er hópur
áhugamanna um byggingu náttúru-
fræðihúss sem sér urn þáttinn. Þeir
hugsa sér að bjóða þjónustu sína og
leiðbeina fólki sem áhuga hefur á að
skoða náttúruna og langar til að
mynda að una sér í faðmi hennar nú
"m bplfnnn.
Margt er að skoða og gagnlegt getur
verið að fá góðar ábendingar um það
sem fyrir skilningarvitin ber. Næsta
föstudag mun Þorvaldur Öm Ámason
sjá um spjallið við hlustendur og veit-
ir þá ýmsar ábendingar og fróðleik.
Vissuð þið til dæmis að mosinn dregur
ekki næringu sína úr jarðvegi heldur
lofti?
Sjónvarp kl.20.55:
Ævintýri
Bergeracs
Nú hafa sennilega margir gert upp
hug sinn um það hvort þéir ætli að
fylgjast með nýja sakamálaþættinum
Bergerac. Margir em hriftiir af þessum
þáttum enda em þeir ágætlega spenn-
andi. Eina vandamálið er að bera rétt
fram nafn þáttanna en það er nær
ógemingur venjulegu fólki.
Hvað gerist á Ermarsundseyjum í
kvöld er ekki gott að segja en hver
þáttur er sjálfstæð saga og þarf því
ekki að sitja við tækið á hverju föstu-
dagskvöldi til að vera með á nótunum.
Bergerac rannsóknarlögga er harður
í hom að taka enda mætir hann
ósvífnum bófum í hveijum þætti.
verftur fluttur í útvarpi á næstu föstudaqskvöldi
Veðrið
í dag verður hægviðri eða norðan-
gola á landinu. Skúrir verða síðdegis
á Suður- og Suðausturlandi en þurrt
í öðrum landshlutum. Við norður- og
austurströndina verður skýjað en létt-
skýjað vestanlands og í innsveitum
fyrir norðan og austan. Hiti verður
allt að 14 stigum á Suðurlandi en 7-11
stig annars staðar.
Akureyri skýjað 6
Egilsstaðir skýjað 4
Galtarviti skýjað 6
Hjarðames skýjað 3
Keflavíkurflugvöllur skýjað 7
Kirkjubæjarklaustur úrk. í gr. 7
Raufarhöfn alskýjað 5
Reykjavík skýjað 8
Sauðárkrókur alskýjað 5
Vestmannaeyjar úrk. í gr. 10
Útlönd kl. 6 í morgun:
Bergen skúrir 12
Helsinki léttskýjað 18
Kaupmannahöfn skýjað 17
Osló skýjað 15
Stokkhólmur skýjað 17
Þórshöfn alskýjað 9
Útlönd kl. 18 í gær:
Algarve heiðskírt 19
Amsterdam léttskýjað 15
Barcelona þokumóða 20
(CostaBrava)
Berlín rigning á 19
síðustu klst.
Chicago heiðskýrt 19
Frankfurt skýjað 16
Glasgow skýjað 11
London léttskýjað 11
Los Angeles þoka 15
Lúxemborg skýjað 13
Madrid hálfskýjað 16
Malaga heiðskírt 28
(Costa Del Sol)
Mallorca þokumóða 23
(Ibiza)
Montreal alskýjað 15
New York þokumóða 20
Nuuk skýjað 6
París skýjað 15
Vín skýjað 20
Winnipeg heiðskírt 14
Valencia mistur 24
(Benidorm)
Gengið
Gengisskráning nr. 143 -
1986 kl. 09.15
1. ógúst
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 40,710 40,830 41,220
Pund 60,678 60,857 60,676
Kan. dollar 29,499 29,586 29,719
Dönsk kr. 5,1654 5,1807 5,1347
Norsk kr. 5,5017 5,5179 5,4978
Sænsk kr. 5,8428 5,8601 5,8356
Fi. mark 8,1608 8,1848 8,1254
Fra. franki 5,9929 6,0106 5,9709
Belg. franki 0,9407 0,9434 0,9351
Sviss. franki 24,2929 24,3645 23,9373
Holl. gyllini 17,2866 17,3376 17,1265
Vþ. mark 19,4831 19,5406 19,3023
ít. líra 0,02836 0,02844 0,02812
Austurr. sch. 2,7699 2,7780 2,7434
Port. escudo 0,2779 0,2787 0,2776
Spá. peseti 0,3004 0,3013 0,3008
Japansktyen 0,26427 0,26504 0,26280
írskt pund 57,605 57,774 57,337
SDR 49,0750 49,2194 48,9973
ECU 41,1721 41,2934 40,9005
Símsvari vegna gengisskráningar 22190
MINNISBLAÐ
Muna eftir að fá mer eintak af r JUrval
-tf