Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1986, Side 36
FRETTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafirþú ábendingu eða
vitneskju umfrétt-
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjalst,ohao dagblaö
FOSTUDAGUR 1
AGUST 1986.
Tjaldbúar tíman
lega á ferðinni
Búist er við geysilegum fjölda fólks til Eyja um helgina. Strax í gærkvöldi voru risnar veglegar tjaldbúðir og búist
er við að þúsundir manna leggi leið sína þangað í dag.
„Það er búið að vera bijálað að gera
hjá okkur þó fjöldinn verði meiri í
dag. Fólk var komið hér í biðröð í
morgun og í gærkvöldi stóð fólk í
biðröð eftir miða til miðnættis. Það
eru flestir á leið til Vestmannaeyja
og það er fólk á öllum aldri, margir
ætla líka á Gaukinn og um 500
manns hafa bókað sig í Þórsmerkur-
ferð,“ sagði Anna Margrét Bjama-
dóttir hjá BSÍ.
Mikill fjöldi var kominn til Vest-
mannaeyja strax í gærkvöldi og
veglegar tjaldbúðir risnar í morgun.
Flugleiðir flugu tíu ferðir til Eyja í
gærkvöldi og áætlað er að fara fjór-
tán ferðir í dag með um 700 manns.
Að sögn vegalögreglunnar var
ekki hægt að merkja óvenjumikla
umferð í gærkvöldi en strax í morg-
un jókst straumurinn út úr bænum.
Vegalögreglan hefur mikinn við-
búnað um helgina. Sjö lögreglubílar
verða víðsvegar um landið og auk-
inn verður fjöldi þeirra sem verða á
svæðinu frá Reykjavík til Hvolsvall-
ar, auk þess sem þyrla aðstoðar við
gæsluna.
Jöfri umferð er á mótsstaði í Þjórs-
árdal, Skeljavík og á bindindismótið
í Galtalæk. Alls staðar voru tjald-
búar komnir strax í gærkvöldi.
-S.Konn.
Tónabíó selt
Tónabíó var selt í gær. Haukur
3röndal, fulltrúi stjómar Tónlistarfé-
agsins, vildi í morgun ekki upplýsa
íver væri kaupandi, sagði aðeins að
)að væm nokkrir aðilar. Bjóst Hauk-
ir við að þeir héldu áfram bíórekstri.
Tónlistarfélagið heldur eftir efstu
• <æð bíóhússins en selur sýningarsal-
mn og byggingarrétt á fleiri sölum.
Ástæður sölunnar sagði Haukur erfið-
leika við myndakaup eftir að United
Ártist dró verulega úr kvikmyndagerð
3VO og þá staðreynd að vart væri hægt
að reka bíó með aðeins einum sal.
-KMU
DV kemur ekki út á morgun, laug-
irdag. Næsta blað kemur út þriðju-
iaginn eftir verslunarmannahelgi.
Smáauglýsingadeild DV verður opin
i dag, föstudag, til kl. 22. Deildin
v'erður lokuð laugardag, sunnudag
3g mánudag. Á þriðjudag verður
smáauglýsingadeild DV opin frá kl.
3 til 22. Góða helgi.
Ávallt feti framar
SÍMI 68-50-60.
ÞRÖSTUR
SÍÐUMÚLA10
LOKI
Er ekki rétt að fara eins og
hinir á þetta bindindismót
í Eyjum?
Veðrið á morgun:
Hæg norðan-
átt um
land allt
Á morgun verður hæg norðanátt
á landinu. Vestanlands, í innsveitum
og fyrir norðan verður léttskýjað,
skúrir síðdegis sunnanlands og hætt
við súld við norðausturströndina.
Hiti verður á bilinu 6-12 stig og
vindstig 2-4.
Veðrið á sunnudag:
Súld við
norðaustur-
ströndina
Á sunnudag verður hæg norðanátt
eða 2-4 vindstig um land allt. Vest-
anlands og í innsveitum og fyrir
norðan verður léttskýjað. Síðdegis
verða skúrir sunnanlands og súld
við norðausturströndina. Hiti verður
á bilinu 6-12 stig.
Veðrið á mánudag:
Rigning
nær til
Austurlands
Á mánudag nær regnsvæði senni-
lega inn á Austurland með öllu
ákveðnari norðanátt á landinu eða
um það bil fimm vindstig. í öðrum
landshlutum verður svipað veður
áfram. Hiti verður á bilinu 6-12 stig.
Mikill
markaður
í Noregi
- segir Krislján Loftsson
„Það getur verið að við seljum hval-
kjöt til Noregs. Við höfúm gert það.
Þar er mikill markaður fyrir það,“
sagði Kristján Loftsson, forstjóri
Hvals hf, í samtali við DV.
DV ræddi í gær við Asbjöm Raske,
aðstoðarsjávarútvegsráðherra Nor-
egs. Kom fram í máh hans að
Norðmenn væru að íhuga að kaupa
hvalkjöt af íslendingum. Taldi Raske
allar líkur á að úr því yrði en ákvörð-
unar um það væri að vænta mjög
fljótlega.
Sagði Raske að hvalakvóti Norð-
manna væru 340 dýr. Þegar væru
komnir á land um 300 en þar sem veið-
in hefði gengið illa undanfarið hefði
vérið ákveðið að hætta veiðunum þótt
kvótinn væri ekki fylltur. Hann bætti
því við að mikill markaður væri í
Noregi fyrir hvalkjöt.
Hvalur hf. liggur nú með tæp 2.000
tonn af hvalafúrðum í frystigeymslum
Eftir helgina má vænta þess að dragi
til einhverra tíðinda í hvalamálinu því
á mánudag heldur Halldór Ásgrímsson
ásamt fylgdarliði utan til viðræðna við
Malcolm Baldridge, viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna. Sagðist Halldór í
morgun vona að fundahöldin fram-
undan gengju vel en fyrsti fundurinn
er á þriðjudag.
- sjá nánar um hvalamálið á blað-
síðu 4.
-KÞ
Stofnun hlutafélagsbanka: A
Eriendur banki eigi P
fjórðung hlutafjár
Hugmyndir eru uppi um það, í sam-
bandi við stofnun hlutafélagsbanka
vegna slæmrar stöðu Útvegsbankans,
að erlendur banki hafí með höndum
fjórðung hlutafjárins. Þá hafa Iðnað-
arbanki, Verslunarbanki og Lands-
samband sparisjóða lýst sig reiðubúið
að ræða stofnun hlutafélagsbanka.
Þetta kom m.a. fram á þingflokks-
fundi sjálfstæðismanna þar sem
viðraðir voru valkostir í bankamálun-
um. Einn heimildarmaður DV sagði
að nú væri orðið nokkuð ljóst að sam-
eining Útvegsbanka og Búnaðar-
banka væri dauðadæmd vegna þess
að sterk öfl innan þingflokkanna og
þessara banka vilji ekki heyra það
nefnt. -APH
i
i
i
i
Í