Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1986, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1986.
3
Fréttir
„Viðskiptaþvinganir hefjast nú þegar“
- segir talsmaður hvaKriðunarmanna
Óskar Magnúsaan, DV, Washingtan:
„Viðskiptaþvinganir gegn íslending-
um eru nú þegar hafaar, það er óhætt
að segja það,“ sagði Craig Van Note,
framkvæmdastjóri náttúruvemdunar-
samtakanna Monitor, í samtali við
DV um hvalamálið. Monitor em heild-
arsamtök 14 bandarískra náttúru-
vemdarfélaga.
„Við erum vitaskuld fokvondir yfir
þesstui framkomu íslendinga. Og ekki
bætir úr skák að íslendingar ætla að
nota hvalkjötið til að fæða minka og
refi. Nokkur náttúruvemdarfélög hér
hafa þegar byrjað að hvetja meðlimi
sína til að kaupa ekki vörur af þeim
sem versla við Islendinga. Á næstu
vikum munum við síðan beita auglýs-
ingum um land allt til slíkrar hvatn-
ingar,“ sagði Craig Van Note.
Van Note sagði einnig að nú yrði
farið fram á það við viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna að hann refsaði Jap-
önum fyrir að kaupa hvalkjöt af
íslendingum.
Hvaða heimild er til að óska eftir
slíkri refsingu ?
„Viðskiptaráðherrann hefúr sagt
okkur að það hafi verið munnlega frá
því gengið við Japani að þeir flyttu
ekki inn hvalkjöt. Japanir hafa heldur
ekkert hvalkjöt flutt inn frá áramót-
„Við eram
ævareiðir“
- segir talsmaður Greenpeace
Óskar Magnússan, DV, Washington:
„Við erum ævareiðir yfir þessari nið-
urstöðu. Samkvæmt þvi sem íslend-
ingar hafa sagt Bandaríkjamönnum
þá á meira að segja að nota hvalkjöt
til að fæða refi og minka til að drepa
síðan,“ sagði Dean Wilkinson, tals-
maður Greenpeace, í samtali við
blaðamann DV.
„Alþjóðadeild Greenpeace hefur
ekki enn tekið ákvörðun um við-
skiptaþvinganir á íslendinga en mér
er kunnugt um önnur náttúruvemdar-
samtök hér sem hafa nú í dag ákveðið
að hvetja meðlimi sina til að versla
ekki við þá sem eiga viðskipti við ís-
land. Við hjá Greenpeace erum vissu-
lega nær því en áður að gera slíkt hið
sama,“ sagði Dean Wilkinson.
Hann sagði einnig að samkvæmt
upplýsingum Greenpeace litu banda-
rísk stjómvöld ekki svo á að um neitt
samkomulag væri að ræða. Viðskipta-
ráðherra hefði hins vegar ekki talið
sér fært að tilkynna íslendinga sem
brotlega ef neysla á íslandi yrði eins
og nú hefði verið ákveðið.
Hvatfóður getur ekki
keppt við
fiskúrganginn
- segir Ámi Magnússon
„Ég held að hvalfóður geti ekki tek-
ið sæti fiskúrgangs sem fóður fyrir
refi og minka,“ sagði Ámi Magnússon
hjá Sambandi íslenskra loðdýrarækt-
enda í samtali við DV, aðspurður
hvernig honum litist á þá hugmynd
að nöta hvalafúrðir i fóður fyrir loð-
dýr.
„Ég tel harla ólíklegt að hvalfóður
geti keppt við fiskúrganginn. Hann
verður áfram meginuppistaðan í fóðri
loðdýra. Hvalfóðrið myndi frekar
lenda í samkeppni við selkjöt og slát-
urúrgang," sagði Ámi. „Annars er
ómögulegt að slá nokkm fcstu um
þetta á þessu stigi. Það er ekkert farið
að skoða þetta. Við höfum bara heyrt
af þessu úr fjölmiðlum.
Mín skoðun er þó sú að hvalkjöt sé
allt of gott kjöt til að nota sem fóður
fyrir þessi dýr, enda er hvalkjöt ætlað
til manneldis. Svo held ég líka að hval-
fóður gæti aldrei keppt við fiskúrgang-
inn hvað verð snertir," sagði Ámi
Magnússon. -KÞ
um. Ef Japanir fara að kaupa af
Islendingum þá hafa þeir brotið þetta
samkomulag, þótt munnlegt sé,“ sagði
Van Note.
Hann sagði einnig að áhugi væri nú
í bandaríska þinginu á að loka þeim
götum sem opin eru til undankomu-
leiða eins og þeirrar sem nú hefði verið
reynd. Enn fremur yrði nú hugað að
frekari málssókn. „Þrátt fyrir dóm
Hæstaréttar í máli okkar gegn Japön-
um em ekki öll málaferli útilokuð
vegna þess að Japanir hafa gagn-
kvæma samninga við Bandaríkin.
Slíka samninga hafa íslendingar
ekki,“ sagði Craig Van Note.
Fiat Uno 60 Super 5 dyra
Höfum fengið aukasendingu
af Fiat Uno 60 Super, 5 dyra,
á frábæru verði, kr. 298.600,-.
annn umboðið
____ 'T.vAS1
SKEIFUNNI 8 - SÍMI 688850