Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1986, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1986.
39
íslenska þjóð-
kirkjan þarf
ekki að kvarta
Sigurbjöm Einarsson o.fl.
Vára Nordiska Syskonkyrkor
genom tusen ár.
Proprius förlag,
Stockholm, 1985.
Ritstj.: Gunnar Dahmén.
Dr. Sigurbjöm Einarsson biskup
er ánægður með stöðu íslensku þjóð-
kirkjunnar um þessar mundir.
A.m.k. verður ekki annað lesið út
úr kafla þeim sem hann skrifar um
íslensku kirkjuna í bókinni Vára
nordiska syskonkyrkor genom tusen
ár. Meðal gleðiefaa, sem biskupinn
nefnir, er að hlutfallslega hefur fjölg-
að í þjóðkirkjunni undanfarin ár, að
meira en sextíu kirkjur hafa verið
vígðar á 25 ára tímabili, að beins
fjandskapar í garð kristindóms og
andkirkjulegs áróðurs gætir ekki,
að spíritisminn höfðar ekki lengur
til menntafólks, að hinar gömlu guð-
fræðilegu víglínur, sem stöðugar
voru fram á miðja þessa öld, hafa
verið rofhar, að við höfum fengið
nýja messuhandbók og nýja sálma-
bók, að einhugur hafi ríkt um það i
kirkjunni að taka á móti kvenprest-
um til starfa og að Skálholt hafi risið
úr rústunum. Einnig segir dr. Sigur-
bjöm að kirkjan geti ekki kvartað
undan sambúðinni við ríkisvaldið
og að spumingin um aðskilnað ríkis
og kirkju sé ekki tímabær.
Ekki er vafi á því að hlutur Is-
lands í norrænu kirkjulegu samstarfi
hefur farið mjög vaxandi á síðustu
árum. Kemur þetta meðal annars
fram í útgáfu ýmissa rita er fjalla
um einiiveija hliðstæða kirkjulega
þætti á Norðurlöndunum eða vilja
bera saman kirkjulega þróun í þess-
um löndum. ísland er engan veginn
eins oft útundan og áður var. Sem
dæmi um þetta má nefna bókina
Religiös förándring í Norden 1930-
1980 (útg. 1985), sem ég hef áður
kynnt hér í DV (24. febr. sL), þar sem
kaflinn um ísland var mjög ítarleg-
ur, skrifaður af dr. Pétri Péturssyni.
Einnig má nefha bókina Kirken,
krisen og krigen (útg. 1982) þar sem
séra Jónas Gíslason dósent skrifaði
kaflann Kirke og samfund i Island
1930-1945. Fleiri dæmi um þetta
mætti nefna og eitt það nýjasta er
sú bók sem hér er til kynningar, þar
sem dr. Sigurbjöm Einarsson biskup
skrifar eins og hans var von og vísa
- mjög svo greinargóðan og læsilega
útdrátt úr þúsund ára íslenskri
kirkjusögu. Þess má þó geta til gam-
ans að þetta er ekki í fyrsta sinn sem
íslenskur biskup tekur þátt í útgáfu
sameiginlegrar norrænnar kirkju-
sögu. Árið 1920 var gefin út í
Uppsölum bók dr. Jóns Helgasonar
biskups í ritröðinni Kyrkans enhet
En sökum einangrunar íslands á
árum fyrri heimsstyijaldarinnar
kom bók dr. Jóns, Islands kyrka och
dess stállning í kristenheten, út síðar
en aðrir hlutar ritraðarinnar. Fróð-
legt er að bera saman þessi kirkju-
sögulegu yfirlit þeirra dr. Jóns
Helgasonar biskups og dr. Sigur-
bjöms Einarssonar biskups þó ekki
sé svigrúm hér að gera slíkan sam-
anburð.
Þeirri bók sem hér er til umfjöllun-
ar er, eins og nafiáð gefur til kynna,
ætlað að kynna sænskum lesendum
norrænu systurkirkjumar og er því
ekki neinn kafli um sænsku kirkj-
una í bókinni. Þó þetta verði að
teljast galli frá íslenskum sjónarhóli
á bókin engu að síður fullt erindi til
íslenskra áhugamanna um kirkju-
sögu, a.m.k. til þeirra sem hræðast
ekki sænskuna. Bókin er skrifuð fyr-
ir almenning og enginn þarf að
óttast að finna í henni fræðilegar
langlokur um léttvæga atburði
kirkjusögunnar. I bókinni, sem er
203 bls að lengd, er einungis stiklað
á stóm.
Bókmenntir
Gunnlaugur
A. Jónsson
Sigurbjöm leggur mat sitt á þetta
tímabil, sem hann hefur verið svo
mikilvægur hluti af, og velur efni-
við og hafnar á þann hátt sem allir
sagnfræðingar hljóta óhjákvæmi-
lega að gera þegar sagan er rituð,
hvort heldur er um að ræða samtíð-
arsögu eða sögu fyrri alda.
Hér er ekki rúm til að rekja efni
bókarinnar nánar né koma inn á
kaflana sem um hin Norðurlöndin
fjalla en allir eru þeir fróðlegir og
mjög læsilegir. í ljósi aukinnar
þátttöku íslensku kirkjunnar í
norrænu samstarfi ætti bók þessi
að vera íslenskum kirkjunnar
mönnum kærkomið tækifæri til að
verða sér úti um haldgóða undir-
stöðuþekkingu í viðræðum við
starfsbræður á hinum Norðurlönd-
unum. Nokkur galli er það þó að
ekki skuli vísað til annarra og ítar-
legri rita, fyrir þá sem meira vildu
lesa. Sömuleiðis er það ókostur á
bókinni að hún skuli ekki hafa að
geyma nafnaskrá sem tvímælalaust
hefði aukið notagildi hennar. Hins
vegar prýðir bókina fjöldi góðra
mynda.
Við lestur þess kafla bókarinnar
sem dr. Sigurbjöm Einarsson bisk-
up skrifaði gat ég ekki varist þeirri
hugsun hve klókur sá bókaútgef-
andi væri sem fengi dr. Sigurbjöm
til að skrifa endurminningar sínar
eða flalla um þær í formi samtals-
bókar. Slík bók yrði ómetanleg
heimild um sögu íslenskrar kirkju
á 20. öld. Víst er að ég er ekki einn
um að vilja gefa mikið fyrir slíka
bók.
Gunnlaugur A. Jónsson.
Sigurbjöm biskup.
íslenski kaflinn er vissulega sá
stysti í bókinni en gefur hinum að
öðru leyti ekkert eftir. Dr. Sigur-
björn Einarsson skrifar um þúsund
ára tímabil íslenskrar kirkjusögu á
aðeins 21 blaðsíðu. Það segir sig
sjálft að það verður að fara fljótt
yfir sögu og mörgu að sleppa þegar
ekki er meira rúm til ráðstöfunar.
Mér sýnist engu að síður sem dr.
Sigurbimi hafi tekist aðdáunar-
lega vel að skrifa samfellda og
lifandi frásögn þar sem flest það
mikilvægasta kemur með.
Frásögn hans er skipt í átta kafla:
Trúboðstíminn, Alþingi velur
kristna trú, ísland í samfélagi norr-
ænna kirkna, Siðbótartíminn,
Hallgrímur Pétursson, Reykjavík
sem nýtt biskupssetur, kirkjulífið í
dag og loks er kafli um Skálholt
sem nýja kirkjulega miðstöð.
Tveir síðustu kaflarnir em að
sjálfsögðu þeir athyglisverðustu
enda hefur dr. Sigurbjörn Einars-
son sjálfur farið með stærra hlut-
verk en nokkur annar í íslenskri
kirkjusögu síðustu áratuga. Það
hlýtur að vekja athygli þegar dr.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á MB Geir KE 67 ásamt tilheyrandi fylgifé, tal. eign Níelsar
A. Arsælssonar, fer fram eftir kröfu Gísla Baldurs Garðarssonar hrl. á eign-
inni sjálfri í Tálknafjarðarhöfn fimmtudaginn 14. ágúst 1986 kl. 11.30.
__________________Sýslumaðurinn í Barðastrandarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á sláturhúsi í Örlygshöfn, Rauðasandshreppi, þingl. eign
Kaupfélags Vestur-Barðastrandarsýslu, fer fram eftir kröfu Gunnars Sæ-
mundssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 14. ágúst 1986 kl. 17.00
______________________Sýslumaður Barðastrandarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fiskverkunarhúsi í landi Þinghóls á Tálknafirði, þingl. eign
Ishafs sf. og íslensku umboðssölunnar hf., fer fram eftir kröfu Jóns G. Briem
hdl. og Gísla Baldurs Garðarssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 14.
ágúst 1986 kl. 11.00.
______________________Sýslumaðurinn í Barðastrandarsýslu.
í Þjóðskjalasafni er laus til umsóknar staða
aðstoðarmanns á lestrarsal safnsins.
Góð almenn menntun áskilin.
Umsóknir, sem greina frá menntun og fyrri störfum,
berist Þjóðskjalasafni íslands fyrir 20. ágúst.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Reykjavík, 7. ágúst 1986.
Þjóðskjalavörður.
PANTANIR
SÍMI13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
Laus staða við Bænda-
skólann á Hvanneyri
Laus er nú þegar til umsóknar staða kennara í almenn-
um búfræðum við Bændaskólann á Hvanneyri.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist landbúnaðarráðuneytinu, Arnarhvoli, 101
Reykjavík, og skulu hafa borist fyrir 20. ágúst nk.
6. ágúst 1986
Landbúnaðarráðuneytið.
Akurgerði **********.*.*.***** skipholt 1-34
Grundargerði Þykkvabæ Brautarholt
Búðargerði Fagrabæ Stórholt
******************** ******************** ********************
Hlíðargerði Melbraut Hraunbæ 50-100
Mosgerðí Skólabraut ********************
Melgerði ********************
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022