Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1986, Síða 32
44
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Leslie Caron
er mörgum ógleymanleg í
hlutverki Gigi fyrir allmörg-
um árum. Hún er nú fimmtíu
og fimm ára gömul og að-
dáendum til huggunar skal
það upplýst að hún á tutt-
ugu og sjö ára gamla dóttur
sem er steypt í nákvæmlega
sama mótið. Þær mæðgur
eru að hefja leik saman í
sjónvarpsþáttaröð hjá ABC
og nefnist sú framleiðsla því
frumlega nafni Ástarskipið.
Þess verður eflaust ekki
langt að bíða að við sjáum
herlegheitin á skjánum hér
heima.
Gelsey
Kirkland
skekur nú ballettveldið með
endurminningaskrifum af
óvægnustu tegund. Hún
lýsir þar kókaínneyslu sjálfr-
ar sín og annarra dansara
hjá bandarískum ballett-
flokkum af betri klassanum.
Gelsey stóð meðal annars í
ástarsamböndum við Peter
Martins og Mikhail Barys-
hnikov en núverandi eigin-
maður - Gregory Lawrence
- aðstoðar við skrifin. Bókin
er væntanleg á markaðinn í
október undir nafninu Dans-
að á gröf minni og er gefin
út af Doubleday. Jú, reyndar
- það var sú gallharða Jackie
Kennedy Onassis sem fékk
Gelsey til að stinga niður
penna.
Joan Rivers
þykir sérsinna á köflum. Það
er viðurkennd hegðun að
draga með sér eiginmann
hvert á land sem er en Joan
fer ekki fetið án þess að taka
pettið sitt með sér. Fyrrnefnt
pett er smáhundur, Spike að
nafni. Hvutti situr venjulega
sæll og ánægður í stól móti
kerlu þegar hún fer út að
borða og meðfylgjandi
mynd er tekin af parinu þeg-
ar leiðin lá í stórveislu sem
haldin var í góðgerðarskyni
á Manhattan nýlega.
Valaskjálf 20 ára
Nýlega hélt Valaskjálf á Egils-
stöðum upp á 20 ára afmæli sitt.
Var í þvi tilefni slegið upp dansleik
sem um 600 manns sóttu. Sá dans-
leikur var heldur ekki af verri
endanum því hljómsveitimar Völ-
undur og Einsdæmi komu saman
eftir margra ára hlé og skemmtu
gestum. I dagskrá kvöldsins var
m.a. rakin saga hússins, sýndir
búningar Valaskjálfar frá upphafi
auk þess sem stúlkur frá Egilsstöð-
um sýndu gömlu og nýju tískuna.
Árið 1966 var húsnæði Valaskjál-
far fyrst tekið í notkun og var
meginmarkmið þess reksturs að
efla menningarlíf Héraðsins. Flutt
voru leikrit, sýndar kvikmyndir,
haldnir fundir og aðrir mannfagn-
aðir auk veitingasölu. Ásdís
Sveinsdóttir annaðist að mestu
leyti reksturinn fyrstu árin. Árið
1973, er Finnur V. Bjarnason, nú-
verandi framkvæmdastjóri Vala-
skjálfar, tók við rekstrinum, voru
í notkun um 20 smáhýsi á vegum
Valaskjálfar en þau voru m.a. nýtt
undir gistingu, mötuneyti og leik-
fimi grunnskólans. Ný álma í
húsinu var fyrst opnuð árið 1975
og var þá fyrst farið að reka heils-
árshótel. Þessi stækkun gerði kleift
að færa reksturinn að mestu eða
öllu leyti á einn stað. Fljótlega var
farið að byggja við húsið og 1978
var fyrsti hluti af nýrri viðbygg-
ingu vígður. Ári seinna fór
Menntaskólinn á Egilsstöðum með
heimavist sína í þennan hluta húss-
ins og var þar í alls fjóra vetur
enda lagðist vetrargisting niður á
þeim tíma. Eftir þessi ár urðu
þáttaskil er hótelreksturinn fékk
allt húsið til afnota og hefur það
ekkert breyst enda hefur eftirspum
eftir gistingu aukist og þá sérstak-
lega með tilkomu Norrænu sem
siglir frá Seyðisfirði. Umferð vegna
þessara siglinga liggur einmitt í
gegnum Egilsstaði. Fyrir u.þ.b. ári
voru gerðar miklar breytingar á
sam) omuálmu Valaskjálfar sem
aukið hafa nýtingarmöguleika þess
til muna auk þess sem húsið fékk
leyfi til vínveitinga. 1 dag vinna
um 40 manns hjá Valaskjálf á
sumrin en um 15 á veturna. Vala-
skjálf rekur heilsárshótel, svo og
sumarhótel í Menntaskólanum.
Reglulega eru sýndar kvikmyndir
og rekin er þar hvers konar félags-
starfssemi. Einnig er kjörin að-
staða fyrir fundahöld og ráðstefn-
ur.
AI
Staff-flokkur Valaskjálfar tók lagið.
Gamla tískan sýnd viö góðar undirtektir.
Hljómsveitin Völundur spilaði saman eftir 8 ára hlé.
Breyttur
Prince
Rokkstjaman Prince hefur breytt
snarlega um ímynd og er lítt þekkj-
anlegur í beinsniðnum jakkafotum
og með bindi. Ekkert glys, glingur
og glimmer þessa dagana og svona
klæddur mætti gaurinn á virðulega
verðlaunahátíð í Beverly Hills fyrir
skömmu.
Amerískt kóngabrúðkaup
Dætur forseta Bandaríkjanna hafa
vakið mikla athygli meðan feðumir
búa í Hvíta húsinu en Karólína
Kennedy er ennþá prinsessa ríkj-
anna í augum flestra þegnanna.
Brúðkaup hennar og Ed Schlossberg
Onassisfrúin mætti á staðinn og
vakti að venju mikla athygli.
á dögunum vakti því mikla athygli
vestra þótt fréttir af því féllu í skugg-
ann fýrir brúðkaupinu breska í
evrópsku pressunni.
Karólína er tuttugu og átta ára
gömul og brúðguminn fjörutíu og
eins. Aldursmunurinn vafðist eitt-
hvað fyrir móður hennar, Jackie, en
dóttirin sagði henni skýrt og skorin-
ort að ef hana langaði ekki að mæta
í brúðkaupið þegjandi og hljóðalaust
skyldi hún bara láta sig vanta. Og
fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna
skildi sneiðina, mætti hlýðin á stað-
inn og brosti blíðlega til hinna
rúmlega tvö hundmð blaðamanna
og ljósmyndara sem viðstaddir voru
vígsluna.
Ted Kennedy leiddi bróðurdóttur
sína upp að altarinu og áhorfendur,
sem safnast höfðu saman til að fylgj-
ast með atburðinum, grétu af við-
kvæmni. Kennedyklanið mætti -
allir sem einn - og mesta athygli
vöktu fyrmefndir familíumeðlimir,
Maria Shriver og vöðvabúntið henn-
ar og fleiri af yngri kynslóðinni. Þar
er nú stíft leitað að forsetaefni og
víst er að ekki mun gefist upp fyrr
en í fulla hnefana.
Karólína Kennedy giftist sinum heittelskaða Ed Schlossberg.
r