Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1986, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1986, Blaðsíða 47
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1986. 47 Utvarp - Sjónvaip Veðrið Sjónvarp kl. 21.45: Skolabom í verkfalli Helgi Már Baröason, umsjónarmaður þáttarins Allt og sumt, þar sem hann mun leika tónlist sem hlustendur á Suðurnesjum og i Gullbringu- og Kjósarsýslu hafa beðið um. Útvarp, rás 2, kl. 16.00: Hvað velja Suður- nesja- menn? Þáttur Helga Más Barðasonar, Allt og sumt, verður á sínum stað á rás 2 í dag klukkan 16.00. Þáttur Helga Más er óskalagaþáttur með nokkuð sér- stöku sniði þar sem íbúum á hinum ýmsu stöðum á landinu gefst kostur á að velja tónlist sem þeir sakna úr út- varpi eða gömul uppáhaldslög. I dag fáum við að heyra tónlist sem Suðumesjamenn og íbúar Gullbringu- og Kjósarsýslu halda upp á eða hafa saknað úr útvarpinu. Það verður spennandi að heyra hvaða tónlist það verður en hlustendur geta hringt óskalög sín inn milli klukkan 12.00 og 13.00 þá daga sem Allt og sumt er á dagskrá rásar 2. Eileen Atkins og Bernard Hill í hlutverkum kennarahjónanna, Kitty og Tom Higgins, í bresku sjónvarpsmyndinni, Uppreisnin í skólanum. í sjónvarpinu í kvöld verður sýnd bresk sjónvarpsmynd um sannsögu- lega atburði í Burstonþoipi í Norfolk- héraði í Englandi. Myndin nefnist Uppreisnin í skólanum en atburðimir, sem fjallað er um í henni, áttu sér stað árið 1914 þegar kennarahjónum, sem kenndu við bamaskólann, var vikið frá störfum. Ástæða þess var sú að skólanefndinni þótti hjónin of róttæk í skoðunum en nemendur skólans vildu ekki sætta sig við brottrekstur- inn og fóm í verkfall í mótmo laskvni. Kennarahjónin, Tom og Kitty Higg- ins, héldu ótrauð áfram kennslu, lýrst undir berum himni en síðan var reist- ur sérstakur skóli íyrir þau þai sem þau kenndu til 1939. Uppreisnin í skólanum var sýnd í Bretlandi i febrúar í fyrra og hlaut þá mjög góða dóma. Með aðalhlutverk fara þau Eileen Atkins, Bemard Hill og John Shrapnel en leikstjóri er Nor- man Stone. Þýðandi er Kristmann Eiðsson. Bylgjan kl. 21.00: Spilað og spjallað Vilborg Halldórsdóttir sér um tveggja klukkustunda langan þátt á Bylgjunni í kvöld sem nefnist Vilborg Halldórsdóttir spilar og spjallar. Þátt- urinn hefst klukkan 21.00. Dagskrá þáttarins er sniðin við hæfi unglinga á öllum aldri og segir í kynn- ingu þáttarins að tónlistin verði í góðu lagi sem og gestir þáttarins. Vilborg verður með þennan þátt á þriðjudags- og miðvikudagskvöldum á sama tíma. Hún er líka með þátt á Bylgjunni á laugardögum sem heitir einfaldlega Laugsirdagssíðdegi. Þar leikur hún notalega helgartónlist og les kveðjur. Mánudagur 15. september Sjónvarp 19.00 Úr myndabókinni - 19. þáttur. Endursýndur þáttur frá 10. sept- ember. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Poppkorn. Tónlistarþáttur fyrir táninga. Gísli Snær Erlingsson og Ævar Öm Jósepsson kynna mús- íkmyndbönd. Samsetning: Jón Egill Bergþórsson. 21.10 íþróttir. Frá Evrópumeistara- mótinu í frjálsum íþróttum í Stuttgart. Umsjónarmaður Bjami Felixson. 21.45 Uppreisnin í skólanum. (The Burston Rebellion). Bresk sjón- varpsmynd um sannsögulega atburði. Leikstjóri Norman Stone. Aðalhlutverk: Eileen Atkins, Bernard Hill og John Shrapnel. Árið 1911 voru hjónin Kitty og Tom Higgins ráðin til að kenna við barnaskóla í Burstonþorpi í Norfolkhéraði. Þau reyndust rót- tækari í skoðunum en skólanefnd- inni líkaði svo að þeim var vikið frá störfum. Þá gripu skólabörnin til aðgerða sem urðu upphaf lengstu vinnudeilu í sögu Breta. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 23.15 Fréttir í dagskrárlok. Útvarp rás I 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Lesið úr forustugreinum lands- málablaða. Tónleikar. 13.301 dagsins önn Heima og heim- an. Umsjón: Hilda Torfadóttir. (Frá Akureyri). 14.00 Miðdegissagan: „Mahaatma Gandhi og lærisveinar hans“ eftir Ved Mehta. Haukur Sig- urðsson les þýðingu sína (13). 14.30 Sígild tónlist. Spænsk svíta eft- ir Isaac Albéniz. Nýja fílharmon- íusveitin í Lundúnum leikur; Rafael Friibeck de Burgos stjórn- ar. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleik- ar. 15.20 Landpósturinn. Meðal efnis brot úr svæðisútvarpi Akureyrar og nágrennis. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 íslensk tónlist. a. Forleikur og fúga um nafnið Bach eftir Þórarin Jónsson. Björn Ólafsson leikur á fiðlu. b. Trompetsónata eftir Karl O. Runólfeson. Björn Guðjónsson og Gísli Magnússon leika. c. Nok- túrna fyrir flautu, klarinettu og strengjasveit eftir Hallgrím Helgason. Manuela Wiesler og Sigurður Snorrason leika með Sin- fóníuhljómsveit Islands; Páll P. Pálsson stjórnar. 17.00 Fréttir. 17.03 Barnaútvarpið. Umsjón: Krist- ín Helgadóttir og Sigurlaug M. Jónasdóttir. 17.45 Torgið. Þáttur um samfélags- breytingar, atvinnuumhverfi og neytendamál. - Bjarni Sigtryggs- son og Adolf H.E. Petersen. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds- ins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. Tónleikar. 19.40 Um daginn og veginn. Úlfar Þorsteinsson verkstjóri talar. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Þættir úr sögu Evrópu 1945-1970. Jón Þ. Þór flytur þriðja erindi sitt. 21.05 Gömlu danslögin. 21.30 Útvarpssagan: „Frásögur af Þögla“ eftir Cecil Bödker. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Fjölskyldulíf Kynlíf og klám. Umsjón: Anna G. Magnúsdóttir Utvarp rás n 12.00 Hlé. 14.00 Flugur. Þorgeir Ástvaldsson kynnir ný og gömul dægurlög. 16.00 Allt og sumt. Helgi Már Barða- son stjórnar þætti með tónlist úr ýmsum áttum, þ.ám. nokkrum óskalögum hlustenda í Gull- bringu- og Kjósarsýslu og kaup- stöðunum Keflavík, Grindavík og Njarðvík. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 15.00, 16.00 og 17.00. SV ÆÐISÚTV ARP VIRKA DAGA VIKUNNAR FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS 17.03 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni. Stjómandi: Sverrir Gauti Diego. Umsjón ásamt hon- um annast: Sigurður Helgason, Steinunn H. Lárusdóttir og Þor- geir Ólafeson. Útsending stendur til kl. 18.00 og er útvarpað með tíðninni 90,1 MHz á FM-bylgju. 17.03 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni. Umsjónarmenn: Finnur Magnús Gunnlaugsson og Örn Ingi. Útsending stendur til kl. 18.30 og er útvarpað með tíðninni 96,5 MHz á FM-bylgju um dreifi- kerfi rásar tvö. Bylgjan 12.00 Á hádegismarkaði með Jó- hönnu Harðardóttur. Jóhanna leikur létta tónlist, spjallar um neytendamál og stýrir flóamark- aði kl. 13.20. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00 Pétur Steinn á réttri bylgju- lengd. Pétur spilar og spjallar við hlustendur og tónlistarmenn. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykjavík síðdegis. Hallgrímur leikur tónlist, lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólk sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00 og 19.00. 19.00 Þorsteinn Vilhjálmsson í kvöld. Þorsteinn leikur létta tón- list og kannar hvað er á boðstólum í kvikmyndahúsum, leikhúsum, veitingahúsum og víðar í næturlíf- inu. 21.00 Vilborg Halldórsdóttir spilar og spjallar. Vilborg sníður dag- skrána við hæfi unglinga á öllum aldri, tónlistin er í góðu lagi og gestimir líka. Bylgjan W Ú W 23.00 Vökulok. Fréttamenn Bylgj- unnar ljúka dagskránni með fréttatengdu efni og ljúfri tónlist. Þriðjudagur 16. september Útvazp zás I 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Morgunvaktin. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veðurfregnir. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Hús 60 feðra“ eftir Meindert Dejong. Guðrún Jónsdóttir les þýðingu sína (14). 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Lesið úr forustugreinum dag- blaðanna. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragn- ar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórar- inn Stefánsson. Utvazp zás H 9.00 Morgunþáttur í umsjá Ásgeirs Tómassonar, Gunnlaugs Helga- sonar og Sigurðar Þórs Salvars- sonar. Elísabet Brekkan sér um bamaefiii kl. 10.05. Veðrið I dag verður hæg vestlæg átt á landinu og skýjað víðast hvar, dálítil súld eða skúrir verða við vesturströndina og einnig norðan- og norðaustanlands þegar líður á daginn en þurrt að mestu í öðrum landshlutum. Hiti verður 5-10 stig. Akureyri skýjað 3 Egilsstaðir þoka 1 Galtarviti skýjað 4 Hjarðarncs skýjað 2 KeílavíkurflugvöIIur súld 7 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 5 Raufarhöfh skýjað 2 Reykjavík súld 7 Sauðárkrókur úrkoma 6 Vestmannaeyjar úrkoma 7 Útlönd kl. 6 í morgun: Bergen skúr 4 Helsinki rigning 9 Ka upmannahöfn léttskýjað 9 Osló skýjað 4 Stokkhólmur rigning 9 Þórshöfn léttskýjað 6 Útlönd kl. 18 í gær: Algarve skýjað 23 Amsterdam mistur 12 Aþena heiðskirt 25 Barcelona léttskýjað 24 (CostaBrava) Berlín skýjað 21 Chicagó alskýjað 20 Feneyjar þokumóða 23 (Rimini/Lignano) Frankfurt skýjað 20 Glasgow léttskýjað 11 London skýjað 14 LosAngeles skýjað 21 Lúxemborg skýjað 17 Madrid skýjað 27 Malaga heiðskírt 24 (Costa delsol) Mallorca léttskýjað 28 (Ibiza) Montreal hálfskýjað 12 New York léttskýjað 20 Nuuk skýjað 8 París skýjað 20 Vín skýjað 22 Winnipeg alskýjað 12 Valencia hálfskýjað 26 Gengið Gengisskráning nr. 173-15. september 1986 kl. 09.15 Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi Dollar 40,610 40,730 40.630 Pund 60,326 60,504 60,452 Kan. doliar 29,301 29,388 29,122 Dönsk kr. 5,2417 5,2572 5,2536 Norsk kr. 5,5490 5,5653 5,5540 Sænsk kr. 5,8791 5,8965 5,8858 Fi. mark 8,2675 8,2919 8,2885 Fra. franki 6,0644 6,0823 6,0619 Belg. franki 0,9582 0,9611 0,9591 Sviss. franki 24,5081 24,5806 24,6766 Holl. gyllini 17,5801 17,6320 17,5945 Vþ. mark 19,8388 19,8974 19,8631 ít. líra 0,02875 0,02884 0,02879 Austurr. sch. 2,8226 2,8309 2,8220 Port. escudo 0,2772 0,2780 0,2783 Spá. peseti 0,3025 0,3034 0,3037 Japansktyen 0,26222 0,26300 0,26272 írskt pund 54,606 54,768 54,641 SDR 49,1744 49,3186 49,1764 ECU 41,6882 41,8114 41,7169 Símsvari vegna gengisskráningar 22190. 06.00 Tónlist í morgunsárið. Fréttir kl. 7.00. 07.00 Á fætur með Sigurði G. Tóm- assyni. Létt tónlist með morgun- kaffinu. Sigurður lítur yfir blöðin, og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 8.00 og 9.00. 09.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. Palli leikur öll uppá- haldslögin og ræðir við hlustendur til hádegis. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. \ MINNISBLAÐ Muna eftir að fá mer eintak af r Urval

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.