Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1986, Side 48
FRETTASKOTIÐ
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.500 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 4.500
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1986
Piltur sá sem handtekinn var í kjöl-
far brunans á Laugavegi 171 hefur
játað að hafa kveikt í húsinu. Eldur-
inn kom upp seint á föstudagskvöld-
ið og var húsið aleida er slökkviliðið
kom að. Um klukkustund tók að ráða
niðurlögum eldsins. Pilturinn, sem
handtekinn var, sást koma út úr
húsinu skömmu áður en eldsins
varð vart. Var hann handtekinn áður
en slökkviliðið kom á vettvang.
-FRI
Forseta-
Htari
sækir um
prestakall
„Ég hef alltaf stefnt að því að fara
í prestsskap, en hvort það verður nú
er ómögulegt að segja þar sem kosn-
ingamar eru ekki fyrr en 12. október,"
sagði Halldór Reynisson forsetaritari
í samtali við DV.
Halldór, sem í íimm ár hefur starfað
sem forsetaritari, er einn fiögurra
umsækjenda um prestakallið Hruna i
Hrunamannahreppi.
„Auðvitað geri ég mér vonir um að
komast þama að, en eins og ég sagði
óður get ég ekkert sagt um þetta fyrr
en kosningar em yfirstaðnar," sagði
t Halldór.
Samkvæmt upplýsingum DV stend-
ur jafnvel til að fella niður embætti
forsetaritara eins og það er í dag og
færa það inn í utanríkisráðuneytið.
-KÞ
1 1
m _ M — mMmSSSm mini. v b—wk m. F
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF.,
IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVIK.
SÍMAR: 92-4700-92-3320.
LOKI
Rótarinn hjá Yoko Ono Band
er Ijóshærður!
Ólafur Ragnar tekur við fnðawerðlaunum úr hendi Yoko Ono:
Mild og
yfiiveguð
ii
„Mér þótti ákaflega ánægjulegt
og fróðlegt að hitta og ræða við
Yoko Ono sem er ein af goðsagna-
persónum minnar eigin kjmslóðar.
Við sátum saman til borðs og rædd-
umst við meira og minna í þrjár til
fjórar klukkustundir," sagði Ölafur
Ragnar Grímsson sem nýverið tók
við friðarverðlaunum úr hendi Yoko
Ono fyrir hönd samtakanna Global
Action er hann hefur veitt forstöðu
á undanfömum árum. Friðarverð-
launin em veitt af samtökunum
Betri heimur og tilgangurinn að
vekja athygli á nýjum leiðum sem
gert geti veröldina betri og mannlíf
farsælla. I stjóm þessara samtaka
sitja auk Yoko Ono, Jimmy Carter,
fyrrum forseti Bandaríkjanna, Ted
Tumer, eigandi NCC, stærstu sjón-
varpsstöðvar í veröldinni, Gro
Harlem Brundtland, forsætisráð-
herra Noregs, og kvikmyndaleikar-
amir Jack Lemmon og Shirley
MacLaine svo einhverjir séu nefnd-
ir. Verðlaunafhendingin fór fram í
Waldorf Astoria hótelinu í New
York og veislustjóri var þjóðlaga-
söngvarinn John Denver.
„Þetta er eitt af örfáum skiptum
sem Yoko Ono kemur opinberlega
fram og mér virtist hún vera mildari
og yfirvegaðri en ég átti von á. I
samræðum okkar varð mér ljóst að
Yoko er mjög vel heima í alþjóða-
málum og virðist fylgjast vel með.
Hins vegar er Ijóst að hér fer kona
með erfiða lífsreynslu að baki sem
dregið hefur sig inn í skel sína eftir
morðið á eiginmanni sínum, John
Lennon."
- Rædduð þið eitthvað um ísland?
„Það var nú ekki mikið en hún
sýndi óhuga. Hún vissi um náttúruf-
egurðina hér á landi, hreina loftið
og vatnið," sagði Ólafur Ragnar
Grímsson. -EIR
Yoko Ono og Olafur Ragnar Grímsson á Waldorf Astoria hótelinu í New York.
Veðrið á morgun:
Þurrt
og bjart
austan-
lands
Á morgun verður vestlæg átt á
landinu. Skúrir verða ó vestanverðu
landinu en þurrt og bjart austan-
lands.
Hiti verður á bilinu 6 til 11 stig.
á
Breytingar a namslanum: j
Samkomu-
lag um |
tvenns
konar lán
í nefhd stjómarflokkanna, sem fjall-
að hefur um hugsanlegar breytingar á
lögum um lánasjóð námsmanna, er
samkomulag um að framvegis verið
veitt tvenns konar lán. Annars vegar
vaxtalaus lán og hins vegar lán sem
beri almenna vexti. Gert er ráð fyrir
að samkomulag geti orðið milli stjóm-
arflokkanna um frumvarp sem sent
verður menntamálaráðherra í næsta
mánuði.
Hugmyndir nefndarinnar snúast um
að námslón upp að 11 til 1200 þúsund
krónum á námstímanum verði vaxta-
laus eins og námslán hafa verið fram
til þessa. Þessi upphæð samsvarar um
4 til 5 ára námi einstaklings. Lán
umfram þessa upphæð beri síðan vexti
og jcdhframt verði ákveðið þak á lán-
veitingum, t.d. um 2 milljónir. Rétt er
að taka fram að engar endanlegar
ákvarðanir hafa verið teknar um þess-
ar upphæðir er hér hafa verið nefridar
og ekki hefur verið ákveðið hvaða
vexti lánin muni bera.
Þá er samkomulag um að innheimta
1% lántökugjald af námslónunum og
er því ætlað að standa undir kostnaði
við lánasjóðinn. Einnig eru hugmynd-
ir um að breyta ferðastyrkjum í lán
en fram til þessa hafa þeir verið hrein-
ir styrkir. Þó eru hugmyndir irrnan
nefndarinnar um að auka almennt
styrkveitingar til námsmanna. Vel
kemur til greina að sá námsmaður,
sem hefiir fengið hámarkslán, eigi
kost á styrkjum til að ljúka sínu námi.
í nefhdirmi eiga sæti þeir Friðrik
Sophusson og Tryggvi Agnarsson fyrir
Sjálfstæðisflokk og Haraldur Ólafsson
og Finnur Ingólfeson fyrir Framsókn-
arflokk. -APH
Egilsstaðir:
4
tgnssiauii.
Skotfærum
stolið á
í
Brotist var inn í kaupfélagið ó Egils-
stöðum um helgina og þaðan stolið
skotfærum og sjónauka. Atburðurinn
ótti sér stað aðfaranótt laugardagsins.
Þjófurinn hafði ó brott með sér, auk
sjónaukans, fjóra pakka af 22 cal. riff-
ilskotum. -FRI
Akranes: r a
Kappakstur
endaði
með klessu
Kappakstur tveggja bifreiða eftir
Vesturgötunni ó Akranesi á sunnu-
dagskvöld endaði með því að annarri
bifreiðinni var ekið aftan ó bifreið, sem
ók á undan ökuþórunum, með þeim
afleiðingum að tvennt var flutt á
sjúkrahús.
Talið er að bifreiðamar hafi verið
komnar á 80-100 km hraða er árekst-
urinn varð en annar bíllinn skall aftan
á bifreiðina ó undan eftir að hafa flog-
ið yfir hraðahindrun ó götunni. Annar
bíllinn er gjörónýtur eftir óreksturinn
og númerin voru klippt af báðum. r A
Meiðsli þeirra sem flutt voru á sjúkra- 4g|
hús eru ekki talin alvarleg. -FRI