Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1986, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986.
Anthony (Feiti Tony)
Salemo,
núverandi
guðfaðir.
Carmine
Philip Rastelli.
núverandi guðfaðir
Anthony (Tony Oucks)
Corallo,
núverandi guðfaðir
Persico,
núverandi
guðfaðir.
Paul Gastellano,
myrtur 1985.
Charmine Galante,
myrtur 1979.
Carmine Tramunti,
fangelsaður
1974, dáinn 1978.
Frank (Funzi) Tieri,
dáinn 1981.
Fallnir guðfeður
f'rarn til 1980
Carlo Gambino,
dó 1976.
Philip Rastelli,
fangelsaður
1975-79.
Joseph Colombo,
hlaut örkuml i
skotárás 1971
og andaðist 1978.
Thomas Eboli,
myrtur 1972.
Caetano Lucchese,
dáinn 1967.
Albert Anastasia,
myrtur af
Gambino og
fleirum úr fjöl-
skyldunni 1957.
Fallnir guðfeður
Vito Genovese,
samstarfsmaður
Lucianos.
Fangelsaður
1959, dáinn 1969.
Joseph Bonanno.
flæmdur frá 1964.
Joseph Profaci,
dó 1962.
Thomas Gaglíano,
dáinn 1953.
Frank Costello,
settist í helgan stein
eftir að Genovese
hafði sýnt honum
tilræði 1957.
Philip og Vincent
Mangano,
settir af 1951.
Philip var myrt-
ur af Anastasia.
„Lucky" Luciano,
dæmdur lí
dáinn 1962.
Salvatore Maranzano
skapaði fimm
mafíufiölskyldur
í New York, og
varð guðfaðir
allra, myrtur
1931
Joe guðfaðir
Masseria
drepinn af
Maranzano 1931
m
COLOMBO
GAMBINO
Utlönd
Hörð hríð gerð að
bandarísku mafíunni
Æ ofan í æ hefur réttvísin lagt til atlögu við
mafíuna en glæpasamtökin hafa staðið allt af
sér. Síðustu fimm árin hafa 2554 mafíubófar
sætt ákærum. Nú gera menn sér vonir um að
greiða henni högg sem undan kenni. Fimm
helstu „fjölskyldumar‘‘ eru undir smásjánni.
Lögregla og ákæruvald hafa nú orðið meira
bolmagn og ganga harðar fram.
Hinir voldugu fimm fingur mafiunnar sem teygja sig um New York
John Gotti,
núverandi guðfaðir
Fimm helstu mafiufjölskyldur Bandarikjanna hafa nú sverð réttvísinnar reitt yfir sér. Aldrei fyrr hefur armur lag-
anna haft jafnmíkið bolmagn til þess að glíma við þetta marghöfða skrímsl.
Nú skal skraekur skjálfa og skuggi
kyssa völl, mundi Skugga-Sveinn
segja ef hann sæi atlögu bandarísku
réttvísinnar að mafíunni núna. En
jafnvel þótt draga eigi alla toppa
fimm helstu „fjölskyldnanna'1 til
reikningsskila eru fáir trúaðir á að
endanlega verði að þessu sinni geng-
ið milli bols og höfuðs á La Cosa
Nostra. Það er jafnan fljótt að
spretta upp aftur nýtt illgresi þótt
eldri arfi sé reyttur.
Þó var fyrir nokkrum vikum einn
öflugur kvistur höggvinn af, sem var
Philip Rastelli í Bonanno-fjölskyld-
unni. Og jafnframt hafa mafíu-rétt-
arhöldin í New York sýnt fram á
annað í leiðinni. Þagnarlögmálið
(omerta), hræðsluvaldið, hefur verið
rofið. Félagar í mafíunni, sem áður
þorðu ekki fyrir sitt litla líf að bera
vitni eða yfir höfuð talað opna á sér
munninn, láta nú orðið tilleiðast að
vitna gegn íyrri glæpafélögum til
þess að bjarga eigin skinni. En hve
lengi endist sú kokhreysti?
Og nú er svo komið að loks viður-
kenna hinir ákærðu að til sé fyrir-
bæri sem kallað er mafía eða La
Cosa Nostra. Verjendumir viður-
kenna það og ýmsir mafíuforingjar
hafa jafnvel skrifað endurminningar
sínar. En það er síðan langur vegur
til þess að þeir játi á sig lögbrot.
Nefndin
Enginn veit með vissu hversu
umsvifamikil mafían er. Sæmilega
kunnugir menn giska á að mafíufjöl-
skyldumar hafi í fyrra velt á milli
handanna um 150 milljörðum doll-
ára, og árshagnaðurinn hafí verið
26 milljarðar. Fjárþvinganir, ólög-
legt fjárhættuspil og veðmól, mútur,
falskir verktakasamningar, vændi,
eiturlvfjasala og morð em hluti þess-
ara umsvifa.
Til þess að stýra allri þessari at-
hafhasemi og deila kökunni „réttlát-
lega“ á milli var sett ó laggimar
1931 nefnd sem í daglegu tali kallast
einfaldlega „neftidin“. Þetta er
æðstaráð yfirmanna fjölskyldnanna
í New York. I nefndinni em leyst
innbyrðis ágreiningsatriði. Nefhdin
varð til upp úr innbyrðis styijöldum
sem fjölskyldumar háðu þann blóð-
uga septembermánuð 1931. Topp-
skarfamir settu sér og öðrum
starfsreglur um hvað væri leyfilegt
og hvað ekki. Til dæmis varð ekki
liðið framar að hóttsettur mafíufor-
ingi væri ráðinn af dögum, nema þá
með blessun hinna í „nefndinni“.
Eða svo sagði eitt vitni, Angelo
Lonardo, fyrir rétti á Manhattan á
dögunum. Hann valdi að leysa frá
skjóðunni til þess að komast hjá lífs-
tíðarfangelsi eða 103 ára fangelsi (án
möguleika á eftirgjöf).
Sé það satt að leyfi nefridarinnar
þurfi til að ráða guðföður, eins og
æðstráðendur hverrar mafiufjöl-
skyldu em kallaðir, þá er Ijóst að
nefndin hefur ekki verið nísk á slík-
ar undanþágur í gegnum tíðina: 1957
var Albert Anastasia myrtur á rak-
arastofu. Hann var jafhan kenndur
við skuggalegt fyrirtæki sem kallað
var Morð hf. Joseph Colombo var
drepinn 1971. Carmine Galante var
ráðinn af dögum á matsölustað í
Brooklyn 1979. Paul Castellano var
drepinn fyrir utan steikarhús á
Manhattan í desemher í fyrra. - Og
þetta eru aðeins nokkur dæmi.
Af þeim átta, sem sitja á sakabekk
í New York réttarhöldunum um
þessar mundir, mundi útlitsins
vegna enginn þeirra þekkjast frá
vammlausum borgurum og máttar-
stólpum í þjóðfélaginu. Þetta sýnast
heldrimenn fram í fingurgóma og
sumir kannski starfandi í sóknar-
nefiidinni heima.
Þama er til dæmis Feiti Tony,
höfuð Genovese-fjölskyldunnar, en
hennar jdhráðasvæði er Greenwich
Village, Austur-Harlem, Brooklyn
og New Jersey. Fullu nafni heitir
hann Anthony Salemo og er 75 ára
að aldri. Annar er Anthony (Tony
Ducks) Corallo, yfirmaður Lucc-
hese-fjölskyldunnar, sem hefur sig
mest í frammi í Bronx og raunar
einnig í Brooklyn og Austur-Harlem,
enda hefur komið til árekstra milli
hennar og Genovese-fjölskyldunnar.
Þriðji guðfaðirinn þama á sakabekk
er Carmine Persico, sem raunar hef-
ur setið í fangelsi í fjórtán ár, en
stýrir samt ennþó Colombo-fjöl-
skyldunni í Brooklyn og Manhattan.
Hann annast sjálfur eigin mólsvöm
og ferst það ekki illa af fréttum að
dæma. Carmine junior er meðal
margra sem bendlaðir hafa verið við
morðið á Anastasia en hefur þó aldr-
ei sætt ákæm fyrir það. Það er
óbreyttur dáti, Anthony (Bruno)
Indelicato (þrítugur að aldri) sem er
látinn svara til saka fyrir Bonanno-
fjölskylduna, en hann hefur raunar
stýrt henni mikið til fyrir guðfoður-
inn, Philip Rastelli (68 ára), sem
dæmdur var í fangelsi 1975 og sat
inni til 1979. Meðal ákæruatriða á
hendur honum em 25 morð og 24
fjárkúgunartilfelli.
Réttarhöldin yfir þessum hafa farið
fram ó Manhattan, en voldugasta
mafíufjölskylda New York, Gamb-
ino-fjölskyldan, svarar til saka í
Brooklyn. Þar em guðfaðirinn, John
Gotti, og sex aðrir úr fjölskyldunni
á sakabekknum. Saksóknin byggist
að mestu leyti ó brotum á lögum sem
kennd em við Rico og fjalla um fjár-
kúgun og spillingu.
Seinlegt málaþras
Það munu líða margir mánuðir
áður en málin verða tekin til dóms.
Á þeim tíma verður leiddur fram til
vitnis fjöldi liðhlaupa úr mafíunni
og lögð fram gögn sem byggjast á
hljóðupptökum, símhlerunum auk
margs annars. Sækjendumir era
bjartsýnir á málalok.
Af segulspólum, sem leiknar em í
réttarsölunum, má heyra setningar
eins og „verður að deyja“, „við ætt-
um að drepa þá“, eða „losaðu þig
við þá, skjóttu þó“ og svo framvegis.
I einni hljóðrituninni heyrist Feiti
Tony bera sig upp undan því að það
skorti á tilhlýðilega virðingu. Þann-
ig hafi einn óbreyttur dáti vogað sér
að kalla hann Feita Tona, sem þykir
óheyrilegur skortur á aga og hefði
fyrrum aldrei liðist af nokkrum guð-
fóður. Og þar er komið að einu
vandamálinu, sem mafían virðist
eiga meira við að stríða í dag en
fyrrum. Gamlir siðir em ekki lengur
virtir sem fyrr. Þagnarlögmálið er
ekki lengur heilagt, og þar í eygir
réttvísin sér góðar vonir um meiri
framgang í baráttunni gegn maf-
íunni.
Kerfisbákn þess opinbera getur
boðið þeim, sem vitni ber, eftirgjöf
saka, vemd og nýtt líf á allt öðrum
stað. Hinir ákærðu geta einvörð-
ungu haft í hótunum um hefndir.
Einn og einn lætur hræðast
Fyrir kemur það að hótanimar
hrífa. John Turano, vitni saksóknar-
ans Michael Chertof, meðgekk blátt
áfram að hann þyrði ekki að bera
vitni, þegar minnið tók allt í einu
að bregðast honum í vitnaleiðslu um
morðið á Carmine Galante.
En þótt einn og einn láti hræðast,
er þó auðfinnanleg stórbreyting á
ofsahræðslunni, sem fyrir aðeins
fóum árum aftraði öllum, jafht félög-
um í mafíunni sem utanscimtaka-
mönnum og jafnvel fómardýrum, frá
því að veita yfirvöldum nokkrar
minnstu upplýsingar.
Margt veldur þessu. Öðmvísi er
staðið að ráðningu nýrra manna til
starfa fyrir fjölskylduna. Hin gamla
tiyggð innflytjendanna, sem enga
áttu að aðra en hver annan, oggöm-
ul tengsl frá fæðingarlandinu (Italíu
eða Sikiley) hnýta ekki menn lengur
sanian jafhföstum böndum og fyrr.
Og með því að ganga að mörgum
guðfeðrum í einu sverfur að heildar-
samtökunum í sömu andránni. Það
veikir mátt þeirra.
Mafíósamir em uggandi. Þess
gætir að rottumar telji sig þurfa að
flýja sökkvandi skipin þegar fyrir-
sjáanlegt er að forkólfamir verði
dæmdir. Veldi þeirra sýnist vera
hnekkt og óttinn, sem menn höfðu
af þeim, hverfur með.