Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1986, Page 11
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986.
11
Fréttir
Slátrarinn
lenti í stjömu-
flokknum
- með skemmtilegu fólki á sjúkrahúsinu á Húsavík
Jón G. Hauksson, DV, Akureyn:
Við gengum á hljóðið þó það væri
ekki hátt. Þetta voru samræður á
vinalegu nótunum. Málin voru ekki
krufin frekar en fyrri daginn en þau
voru rædd, á milli þess sem sopið var
á tíu dropunum. Ágæti lesandi, þú ert
staddur á sjúkrahúsinu á Húsavík, í
setustofunni á deild 2.
„Við verðum eiginlega að hafa hann
Guðmund sem talsmann okkar, hann
er gamall stórsöngvari, hann er til á
plötu með karlakómum Þrym þar sem
hann tekur góðan einsöng," sagði
Guðrún Jónasdóttir bóndakona.
Hún var kankvís, Guðrún, þegar
hún sagði þetta. Félagar hennar, þeir
Guðmundur Gunnlaugsson vömbíl-
stjóri, Jóhannes Þórarinsson slátur-
hússtjóri og Sigurður Rögnvaldsson,
fyrrum sjómaður, höfðu greinilega
gaman af Guðrúnu. Þeir glottu.
Má ekkert segja lengur
„Það má ekkert segja lengur á
sjúkrahúsum. Við erum eins og lækn-
amir, við erum bundin þagnareiði. En
við megum til með að koma því að
hve okkur líður vel hér á sjúkrahúsinu
á Húsavík, það er stjanað við okkur,“
sagði Sigurður Rögnvaldsson. Orð
hans vom samþykkt.
Skyndilega bar að kofiu sem settist
við næsta borð. Hún gjóaði augunum
til okkar, nánast eins og eitt stórt
spumingarmerki. Því næst greip hún
til kaffikönnunnar. „Viltu ekki frekar
skála í vatni,“ var sagt. Síðan var hleg-
ið. Hún „var hann“ þessar mínút-
umar.
Stundum smáýfingar
„Við ræðum lítið um pólitík. Við
tökum samt stundum smáýfingar, það
er til að halda okkur við í pólitík-
inni,“ sagði Guðmundur Gunnlaugs-
son, stórsöngvarinn, kíminn.
Hann leit svo á Jóhannes slátur-
hússtjóra. „Annars vorum við að ræða
kjötmálin þegar þú komst. Jóhannes
er sláturhússtjórinn hér á Húsavík.
Þeir segja að hann hafi lent í stjömu-
flokknum í haust."
Lenti í fituflokknum
Jóhannes var ekki alveg sama sinn-
is. „Ég held að ég sé nær O-flokknum,
fituflokknum," svaraði hann að
bragði.
Talið barst að sláturtíðinni. Ég
spurði hvemig hinn frægi „fallþungi
dilka", sem alltaf er verið að tala um,
hefði verið á Húsavík i haust.
„Það komu vænir dilkar," svaraði
sláturhússtjórinn. „Meðalvigtin var
um 14 kíló.“ Ekki leist þeim annars á
hvemig komið væri í landbúnaðar-
málum þjóðarinnar, en nóg um það.
Datt heima hjá mér
Kúvent var í samræðunum og Guð-
rún spurð að því hvemig hún hefði
handleggsbrotnað. „Það var bölvaður
klaufaskapur, ég datt heima hjá mér
og hafði það af að bijóta mig.“
Við ræddum næst um sjónvarpið.
„Borðið“ var sammála því að fréttim-
ar í því væm mjög góðar, einnig væm
samtalsþættir skemmtilegir.
„Jú, jú, við fylgdumst með leiðtoga-
ftmdinum í sjónvarpinu. Við áttum
von á því að þeir væm að semja þama
í Höfða á sunnudeginum, ekki síst
vegna þess hve fundurinn dróst á lang-
inn. En það er gleðilegt að heyra þær
fréttir að fundurinn hafi þrátt fyrir
allt borið talsverðan árangur."
„Borðið“ brosti
Það var Jóhannes sláturhússtjóri
sem mælti. Hin vom á sama máli.
„Heyrðu, ætlar þú að hafa þetta allt
eftir okkur?“ spurði Guðrún skyndi-
lega. Ég hélt nú það, og meira til, þau
yrðu að horfa framan í ykkur, lesend-
ur, þegarsmellt væri afmyndavélinni.
„Borðið" brosti, það var kvatt með
virktum. Hljóðið, sem barst nú frá
gangi deildar 2 var ekki um sláturtíð-
ina heldur DV.
„Það má ekkert segja lengur á sjúkrahúsum. Við erum eins og læknamir, við erum bundin þagnareiði, en okkur liður
vel.“ Á setustofu deildar 2 á Sjúkrahúsi Húsavíkur. Frá vinstri: Guðmundur Gunnlaugsson, Guðrún Jónasdóttir, Jóhann-
es Þórarinsson og Sigurður Rögnvaldsson. DV-mynd JGH
Nýkomin borðstofuhúsgögn
Nýjar vörur í öllum deildum
Opið til kl. 20 í kvöld
og kl. 9-16 á morgun
í öllum deildum.
Munið
Barnahornið
á 2. hæð.
Jlil
KORT I
ws*
Jór. Loftsson hf.
_ Hringbraut 121 Simi 10600
Húsgagnadeild - Simi 28601
Bókaútsala bókaforlaga við Þingholtsstræti
Mik', AÐ ÞINGH0LTS-
WAH .K STRÆTI3
Föstudag kl. 9-18
IÆSsjóds Laugardag kl. 9-16
pófeaútgáfan|D|óÖðaga
Skáldsögur
Barnabækur
Fræðirit
Ævisögur o. fl.
?) HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG
Sunnudag kl. 13-16
ÍSAF0LD
rf
Bókagerðin Lilja