Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1986, Side 13
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986.
13
Neytendur
Nýjasta verðkönnun
Verðlagsstofnunar
Verðlagsstofnun kannaði verð á 370 vörutegundum í 120 matvöruverslunum um land allt í september sl.
Niðurstaðan úr könnuninni var
þessi:
Verðlag á ísafirði einna hæst
Könnunin leiddi í Ijós að verðlag
á ísafirði var 8% hærra en verðlag
á höfuðborgarsvæðinu og hefur
munurinn aukistfrá fyrri könnunum
(var 5,2% í janúar).
- Frekari samanburður í könnun-
inni sýndi að verðlag á Isafirði var
1,3 % hærra en á Bolungavík, 3,2 %
hærra en á Pátreksfirði og 4,5 %
hærra en á Neskaupstað.
Verðlagsstofnun gerði sérstaka
könnun á verðmyndun á ísafirði á
sl. vetri. Kom þá m.a. i ljós að smá-
söluálagning var að jafhaði mun
hærri á ísafirði en á höfuðborgar-
svæðinu. Jafnframt virtust heildsal-
ar og umboðsmenn á ísafirði hafa
haft áhrif á verðhækkanir með
óhagstæðum innkaupum og milli-
liðakostnaði .Auk'þess er skortur á
verðsamkeppni talinn vera ein af
ástæðunum íyrir slæmri útkommu.
Könnunin nú bendir til að málin á
ísafirði hafi enn þróast til verri veg-
ar.
Verðlag í Keflavík einna
lægst
- Samkvæmt könnuninni er vprð-
lag á höfúðborgarsvæðinu^V,8 %
hærra en í Keflavík. Verðlág á Suð-
umesjum, annars staðar en í Kefla-
vík, var 2,1 % hærra en í Keflavík.
- Mikil verðsamkeppni á milli
verslana og einnig nálægðin við
höfuðborgina skýra hagstætt verð-
lag í Keflavik.
Verðlag á Höfn í Hornafirði
hagstæðara en áður.
-1 könnuninni sl. vetur skar Höfh
í Hornafirði síg úr með hátt verðlag.
Samkvæmt könnuninni var verðlag
þar 6,6 % hærra en á Neskaupstað.
1 könnuninni nú var verðlag á Nes-
kaupstað hins vegar 2,8 % hærra en
á Höfti.
- Verðlagsstofnun hóf athuganir á
verðmyndun sl. vetur á Höfn og
sýndu verslanir þegar mikinn áhuga
á að endurskoða verðlag hjá sér, og
samkvæmt könnuninni nú hefúr það
borið umtalsverðan árangur.
Verðlag í Vestmannaeyjum
hátt
- Samkvæmt könnuninni er verð-
lag i Vestmannaeyjum 5,8 % hærra
en á höfuðborgarsvæðinu, en var í
könnuninni í janúar 2,4 % hærrar.
- Svipaðar ástæður em fyrir háu
verðlagi og em á ísafirði.
Bilið á milli hverfaverslana
og stórmarkaða á höfuðborg-
arsvæðinu minnkar
Samkvæmt könnuninni var verð-
lag í hverfaverslunum á höfuðborg-
arsvæðinu 3 % hærra en í
stórmörkuðunum. í janúarkönnun-
inni var verðlag í hverfaverslunum
4,2 % hærra.
Ein af ástæðunum að dregið hef-
ur saman með hverfaverslunum og
stórmörkuðunum er hækkun álagn-
ingar hjá stórmörkuðunum á yfir-
standandi ári.
Verðhækkanir í einstökum
byggðarlögum mismiklar
- I könnun Verðlagsstofnunar
hafði verðlag verslana á höfúðborg-
arsvæðinu hækkað um 6,5 % frá
janúar til september.
- Verðlag stórmarkaða á höfuð-
borgarsvæðinu hafði hins vegar
hækkað um 7,0 % frá janúar til sept-
ember en 5,5 % í hverfaverslunum.
Sem dæmi má nefna að verðlag
á Isafirði hækkaði um 8,8 % og Vest-
mannaeyjum um 7,9 % en verðlag i
Keflavík un> 4,9 % og Selfossi 4,7 %.
Verðkönnun Verðlagsstofnunar
liggur frammi á skrifstofu stofnunar-
innar og hjá fulltrúum hennar utan
Reykjavíkur.
BB
Munið að
merkja börnin
vel með endur-
skinsmerkjum
Hvers ber að gæta þegar böm em
send af stað í skólann nú þegar
skammdegið skellur á? Að þau séu vel
merkt endurskinsmerkjum.
Hengja skal endurskinsmerki á báð-
ar hliðar bamsins en ekki aðeins eitt
merki aftan í yfirhöfnina og eitt merki
framan á. Ekki er verra að merkja
skólatösku barnsins.
Gott væri að merkja húfur og skó-
fatnað barnsins því að þá sést það vel
í myrkrinu.
Munið að barnið er aldrei of vel
merkt. Ekki dugir að merkja aðeins
eina yfirhöfri, skó eða húfu heldur ber
að merkja allt sem bamið á. Bömin
em ekki alltaf í því sama utandyra.
Það er einungis verið að bjóða hætt-
uni heim með því að senda bömin
ómerkt eða illa merkt út í myrkrið.
-BB
Hér sjást endurskinsmerkin vel enda
rétt hengd í yfirhöfnina. Merkið á
skónum sést vel niðri við jörð.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
j Heimili
j Sími
j Fjöldi heimilisfólks
I Kostnaður í október 1986:
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
K. Jónsson & Co afturkallar
niðursoðnar rækjur
Ríkismat sjávarafurða og Holl-
ustuvemd ríkisins hafa í samvinnu
og að höfðu samráði við Rannsókn-
arstofnun fiskiðnaðarins hafið
athugun á notkun rotvamarefnisins
hexamethýlentetramín við fram-
leiðslu á niðursoðnum fiskafurðum
hér á landi. Komið hefur í ljós að
áðumefnt efni hefúr verið notað í
niðursoðnar rækjur hjá fyrirtækinu
K. Jónsson & Co. Þar sem notkun
þessa rotvamarefnis er óheimil hefur
Ríkismat sjávarafurða og Hollustu-
vemd ríkisins lagt fram fyrirmæli
um að frá og með deginum í dag
verði útflutningur, dreifing og sala
á niðursoðinni rækju frá K. Jónssjn
& Co stöðvuð. Þess er krafist að
varan verði afturkölluð úr öllum
verslunum hérlendis og mun heil-
brigðiseftirlit á hveijumn stað hafa
eftirlit með að því verði framfylgt.
Rannsókn stendur nú yfir hvort
aðrar niðusuðuverksmiðjur hafi not-
að hexamethýlentetramín við niður-
suðu á rækjum. Skýrt verður frá
niðurstöðum um leið og þær liggja
fyrir og viðunandi ráðstafanir gerð-
ar.
Paloma Picasso-ilmvatnið er komið og verður kynnt á eftirtöld-
um stöðum í dag:
í Amaro, Akureyri
Dísellu, Miðvangi 41, Hafnarfirði.
Libiu, Laugavegi 35, Reykjavík.
Selfossapóteki, Selfossi.