Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1986, Page 17
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986.
17
Lesendux
ER BLAÐIÐ FYRIR ALLA
Fæ enn fiðring... segir Páll Þorsteinsson, dagskrárstjóri Bylgjunnar, í Viku-
viðtalinu.
Ný framhaldssaga, skrifuð af Gunnari Gunnarssyni rithöfundi fyrir Vikuna.
Spennusagan Lifandi lík hefst í þessu tölublaði. Fylgist með frá byrjun.
★
Öldrunarmál á íslandi. Dögg Pálsdóttir lögfræðingur gjörþekkir þennan viðamikla málaflokk og skrifar fyrsta
þátt af tíu í Vikunni nú.
Leiklist í Lindarbæ og Leikslok í Smymu.
í skák getur allt gerst, segir Margeir Pétursson, íslandsmeistarinn í skák 1986. Hann er nafh Vikunnar.
Vetrartískan.
Lúða með broccoli í Viku-eldhúsinu.
Lifa hratt, deyja ungur, gleymast aldrei. James Dean.
Gáleysi
forráðamanna
hvalstóðvarinnar
skemmdarverkamenn ábyrga lagalega
ætti að athuga þá hugmynd að taka á
þeim á þann hátt einan sem hryðju-
verkamenn skilja - það má nefnilega
sökkva þeirra skipum líka án þess að
mannskaði hljótist af, þeir myndu þá
kannski láta sér það að kenningu
verða. Ég myndi alla vega vera fyrstur
og ég veit um fleiri sem myndu leggja
fé eða annað til að styðja hvers konar
aðgerðir gegn þessum aðilum.
Að lokum vona ég bara að hvalbát-
amir og hvalstöðin komist í eðlilegt
horf sem fyrst og hlutaðeigandi láti
sér þetta að kenningu verða með því
að vakta hvalstöðina betur í framtíð-
inni.
„Vítavert gáleysi að athuga ekki hvalstöðina eftir að búið var að sökkva bátunum."
Stefán hringdi:
Ég get ekki orða bundist vegna and-
varaleysis forráðamanna hvalstöðvar-
innar í Hvalfirði eftir að búið var að
sökkva tveimur hvalbátum við
Reykjavikurhöfn, að enginn þeirra
skyldi hafa frumkvæði, þó ekki væri
nema einungis til að athuga eða ganga
úr skugga um hvort allt hafi ekki ve-
rið í lagi í hvalstöðinni fyrst skemmd-
arverk voru framin við Reykjavíkur-
höfn.
Mér skilst að það hafi átt að vera
vaktmaður þama um helgina og því
er harla furðulegt að starfsmennimir
skyldu fyrst verða varir við þetta er
þeir hugðust mæta í vinnuna. Það
hefur mikið þurft að ganga á til að
valda þessum skemmdum og ólíklegt
að það hefði getað farið fram hjá vakt-
manninum. Mér finnst það því vítavert
gáleysi hjá þeim er ráða ríkjum hjá
hvalstöðinni að gæta ekki að þessu
betur fyrst búið var að sökkva bátun-
um.
Ég verð nú að segja það að öll sam-
úð með Shea Shepherd samtökunum
hlýtur að hafa snúist upp í andstöðu
sína. Það em engar óyggjandi tölur
sem sýnt hafa að hæfilegar veiðar Is-
lendinga muni ógna hvalastofninum
og fiskveiðiþjóð sem okkur munar um
hvem spón sem fellur úr askinum.
Ef ekki er hægt að gera þessa
Aftökur
og
uppá-
komur
Guðmundur Jónsson skrifar:
I annars prýðilegri kjallaragrein
Magnúsar Bjamfreðssonar í DV
fimmtudaginn hinn 6. nóvember
var hann að hugleiða sérframboð
þingmannsins að norðan, Stefáns
Valgeirssonar.
Var Magnús þá að hugleiða
hvemig staða þessa þingmanns
yrði á þingi eftir slíkt framboð og
taldi hann að staðan yrði ákaflega
veik. Þingmaðurinn yrði hálfgerð-
ur utanflokkamaður og gjörsam-
lega áhrifalaus, gæti engum
þrýstingi beitt til að koma málum
fram. Dvöl hans yrði í hæsta lagi
eitt kjörtímabil og gerði það stöðu
hans enn vonminni.
Auðvitað er allt þetta rétt álykt-
að hjá Magnúsi. En hér skýst
skýrum sem stundum kemur fyrir.
Má þó alveg reikna með að Magn-
ús viti betur en hann lætur. Um
það verður ekki ftdlyrt. Málið er
hins vegar það að þessum þing-
manni sem öðrum þeim, er hvað
fastast sækja að komast inn á Al-
þingi, er nákvæmlega sama hvort
þeir verða þar einangraðir að mál-
um eða ekki. Aðalatriðið virðist
vera að komast á þing. Það er ós-
kastaðurinn. Þar er gaman að vera
og þar fá menn fréttimar í kaffinu
eða við taflborðið og þar er annað
sem er mest um vert - þar eru góð
laun og síðar eftirlaunin sem menn
vinna sér með stöðugri þingsetu.
Það eru ekki allir eins. Sumir
sætta sig við það atkvæðamagn
sem þeir fá, aðrir ekki. Stefán virð-
ist vera einn þeirra sem ætlar að
halda sínu sæti hvað sem tautar
og raular, bara til þess að vera á
þingi. Eða eins og segir í heiti á
amerískum framhaldsþætti sem
sýndur var hér fyrr á árum; „Have
gun will travel".