Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Síða 7
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986,
VICTOR VPC II með 2 lágum
disklingadrifum, 14" skjá, graf-
ísku skjákorti, 640 KB vinnslu-
minni, raunverulegum 16 bita
örgjöría (Intel 8086, sem gerir
vélina hraðvirkari), MS-DOS 3.1.
stýrikerfi, GW-BASIC, 3 vönduð-
um handbókum, endurstilling-
arhnappi og innbyggðum rað-
og hliðartengjum.
Sem sagt ríkulega búin tölva,
tilbúin til notkunar.
Staðgreiðsluverð kr. 61.275,-
Greiðslukjön
Útborgun kr. 16.000,-
eftirstöðvar til allt að 6 mönaða.
VICTOR VPC II
Einmenningstölvan
sem allir vilja eignast!
VICTOR tölvurnar hafa skapað
sér virðingarsess á íslenskum
tölvumarkaði undanfarin ár.
Reynslan hefur sýnt að þær eru
vandaðar, sterkbyggðar og hafa
lágmarks bilanatíðni.
Fyrir rúmum fimm mánuðum
kom á markaðinn hérlendis ný
og endurbætt kynslóð einmenn-
ingstölva frá VICTOR, VPC II,
sem fyrirtæki, skólar og ein-
staklingar tóku opnum örmum.
Tæplega fimm hundruð VICTOR
VPC II tölvur haf verið teknar í
notkun síðan og sífellt stækkar
hópur ánægðra VICTOR eig-
enda.
Þróun einmenningstölva er
ákaflega ör og sama er að segja
um kröfurnar sem til þeirra eru
gerðar. VICTOR VPC II einmenn-
ingstölvan er mjög vönduð og
tæknilega fullkomin. Hún hefur
vinnsluminni í fullri stærð, þ.e.
640 KB, og er hraðvirkari.
VICTOR VPC II er IBM samhæfð,
sem þýðir að mikið úrval staðl-
aðra forrita er á boðstólum.
VICTOR VPC II er örugg og vel
útbúin tölva sem þú getur reitt
þig á.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33
sipfiBne