Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Síða 16
56
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
Kuldastígvél á herrann
Hér á myndinni má sjá vönduð ítölsk herrastígvél
úr leðri og fást þau í versluninni SKÆÐI, Laugavegi
74, simi 17345. Stígvélin eru fáanleg svört, vínrauð
og brún og kosta þau frá 3.295 krónum. Í Skæði er
mjög mikið úrval af góðum herraskóm, jafnt fyrir
ungu mennina sem þá eldri.
Loðfóðraðir kínaskór
í versluninni SKÆÐI, Laugavegi 74, sími 17345,
fást þessir sérstöku nýju, loðfóðruðu leðurskór sem
kallaðir eru kínaskór. Þeir eru til í mörgum litum og
gerðum og kosta frá 2.590 krónum. Þessir nýju skór
eru ákaflega vinsælir hjá ungu stúlkunum og það
ætti alveg að vera óhætt að setja þá í jólapakka þeirra.
Gjafavörur í Domus
í versluninni DOMUS, Laugavegi 91, sími 19004,
er mikið úrval af hvers kyns gjafavöru til jólagjafa. Á
myndinni er smásýnishorn af hvítum vörum sem eru
mjög vinsælar. Það er kona sem kostar 760 krónur,
vasi með svörtum röndum á 1.305 krónur og hring-
laga vasi á 590 krónur.
Peysur og bolir
i fatadeildinni í DOMUS, Laugavegi 91, sími 19004,
er mikið úrval af fatnaði á börnin á mjög góðu verði.
Á myndinni má sjá sýnishorn af bolum og peysum
sem kosta frá 595 krónum. Hægt er að velja um mjög
margar gerðir, bæði fyrir stráka og stelpur.
Nýtísku dömuskór
í skóversluninni SKÆÐI, Laugavegi 74, sími 17345,
er geysimikið úrval af faliegum dömuskóm. Þessir á
myndinni eru nýir ítalskir spariskór sem fáanlegir eru
í brúnu, bláu, svörtu og svartlakki. Ökklaskórnir kosta
2.990 krónur en þeir lægri eru á 2.750 krónur.
Barnaskór í Skæði
Í skóversluninni SKÆÐI, Laugavegi 74, sími 17345,
er ekki einungis úrval af skóm á eldra fólkið. Það
yngra fær líka skó við sitt hæfi. Hér á myndinni má
sjá skó fyrir stráka og stelpur. Þessir skór eru fáanlegir
í stærðum frá 21 og eru í svartlakki og hvítu lakki.
Einnig er mikið úrval af mokkasínum í barnastærðum.
Legokastali
í leikfangadeildinni í DOMUS, Laugavegi 91, sími
19004, fæst mikið úrval af leikföngum, til dæmis hið
vinsæla Lego frá Reykjalundi sem til er frá 90 krónum
upp í 3.000 krónur. Kastalinn kostar 1.350 krónur.
Playmo space kassinn kostar 2.240 krónur en Playmo
er til í næstum tvö hundrum gerðum og kostar frá
118 krónum. Einnig eru til snjóþotur, með eða án
stýris, frá 480 krónum upp í 5.420 krónur.
Borðklukkur
Hjá GUÐMUNDI HANNAH úrsmið, Laugavegi 55,
sími 23710, er geysilega mikið úrval af alls kyns borð-
klukkum sem eru skemmtilegar jólagjafir. Til vinstri á
myndinni er borðklukka í gleri á 4.695 krónur, sem
hentar kannski betur eldra fólkinu, og hvít klukka
með svörtum vísum sem væri frekar að smekk yngra
fólksins. Hún kostar 5.930 krónur.
Litskrúðugir spariskór
Hver segir að spariskórnir eigi bara að vera svartir?
Slíkt er búið að vera því hælaskórnir á myndinni eru
til í öllum litum og einnig í mismunandi hælahæðum.
Þeir fást í skóversluninni SKÆÐI, Laugavegi 74, sími
17345, og kosta frá 1.559 krónum og upp í 2.495
krónur.
Dömugötuskór
Þessir fallegu götuskór fást í skóversluninni SKÆÐI,
Laugavegi 74, sími 17345. Þeir eru reyndar fáanlegir
í fimmtán mismunandi gerðum í svörtu, brúnu og
vínrauðu. Götuskórnir eru ítalskir og kosta um 3.500
krónur. Allt eru þetta nýjar og spennandi gerðir. Versl-
unin Skæði sendir í póstkröfu um allt land.
Uppáhaldsdúkkurnar
Þær hafa verið í uppáhaldi lengi, þessar dúkkur, og
margar stúlkur, sem eitt sinn léku sér með þær, eru
nú orðnar mæður sjálfar. Barbie kostar 378 krónur,
Sindy kostar 463 krónur, Ken kostar 978 krónur og
sófinn, sem er í kassa með ýmsu smádóti, kostar 961
krónu. Þessi leikföng fást í leikfangadeildinni í DOM-
US, Laugavegi 91, sími 19004.
Úr-úr-úr-úr
Það er GUÐMUNDUR HANNAH úrsmiður, Lauga-
vegi 55, sími 23710, sem býður upp á allt þetta
úraval og langtum meira en þetta. Frá hægri talið á
myndinni er Orient kvenúr, reyndar eru þau öll af
sömu gerðinni og kosta 9.850 krónur, 4.950 krónur
og 7.800 krónur. Næst er hvítt táningaúr sem kostar
2.450 krónur, Adec herraúr sem kostar 5.290 krónur
og gyllt Seiko úr á 10.700 krónur.